Morgunblaðið - 04.06.2020, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 04.06.2020, Qupperneq 37
FRÉTTIR 37Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is VINNUFATNAÐUR MERKINGAR Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, lýsti því yfir í gær að hann legðist gegn því að svokölluð „uppreisnarlög“ frá 1807 yrðu virkjuð til þess að kveða niður mótmælin sem skekið hafa Bandaríkin undanfarna viku. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði því í ræðu sinni á mánudagskvöldið að ef ríkisstjórar gætu ekki eða vildu ekki kveða niður óeirðirnar myndi hann senda herlið á vettvang, en deilt hef- ur verið um hvort Trump hafi heimild til þess án þess að ríkisstjórar viðkomandi ríkis hafi beðið um það. Esper sagði hins vegar að hann teldi að þjóð- varðlið viðkomandi ríkja væri rétti aðilinn til þess að styðja við löggæslu í aðstæðum sem þessum. „Það að nota herlið til slíkra verka ætti aðeins að vera síðasti kostur, og þá aðeins í brýn- ustu og alvarlegustu aðstæðum,“ sagði Esper og ítrekaði að slíkar aðstæður væru enn ekki upp á teningnum. Hótun Trumps um að kalla til herinn er byggð á svonefndum „uppreisnarlögum“ frá árinu 1807, sem veita forsetanum heimild til þess að beita bandarísku herliði á bandarískri grundu við ákveðnar aðstæður. Í lögunum felst undan- þága frá lögum frá 1878, þar sem Bandaríkjaher var sérstaklega meinað að sinna löggæsluverk- efnum innan landamæra Bandaríkjanna. Áður stillt til friðar Þannig má Bandaríkjaforseti skipa hernum að senda herlið á bandaríska grundu, ef ríkis- þing eða ríkisstjóri viðkomandi ríkis biður um það til að kveða niður uppreisn eða viðhalda lög- um og reglu. Þannig var herinn kallaður til í Los Angeles 1992 að beiðni þáverandi ríkisstjóra Kaliforníu til að hafa hemil á kynþáttaóeirðun- um sem spruttu upp eftir sýknudóm lögreglu- mannanna í Rodney King-málinu. Sama var upp á teningnum árið 1968, þegar Lyndon Johnson beitti hernum til þess að hafa hemil á óeirðum sem spruttu upp í bæði Balti- more og Chicago í apríl það ár eftir að Martin Luther King var myrtur, en þá var herinn kall- aður út að beiðni ríkisstjóra eftir að ljóst varð að þjóðvarðlið Maryland og Illinois myndi ekki ná stjórn á óeirðunum. Ekki er víst að Trump hefði lagaleg rök til þess að senda herlið á vettvang byggt á þessum fordæmum, þar sem ekkert ríki hefur nú beðið um aðstoð hersins, og nokkrir af ríkisstjórunum fimmtíu hafa meira að segja lýst því sérstaklega yfir að þeir muni ekki biðja Trump að senda her- inn á vettvang, þar sem slík viðbrögð yrðu frek- ar til að hella olíu á eld en stilla til friðar. Yrði þriðja ákvæðinu beitt? Þriðja ákvæði uppreisnarlaganna felur hins vegar í sér heimild forseta til þess að kveða nið- ur uppreisnir, innanlandsofbeldi eða ólögmæt samsæri sem snúa að því að svipta Bandaríkja- menn stjórnarskrárvörðum réttindum sínum, og þar sem viðkomandi ríki getur ekki, mistekst eða neitar að verja þau réttindi. Þetta ákvæði var sett í lögin 1871 að beiðni Grants Bandaríkjaforseta til að bregðast við uppgangi Ku Klux Klan sem og tregðu suður- ríkjanna fyrrverandi til þess að verja þau rétt- indi sem fólust í 14. stjórnarskrárviðbótinni og afnámi þrælahalds. Grant beitti ákvæðinu þannig í Suður-Karól- ínu og í Louisiana og bæði Dwight D. Eisen- hower og John F. Kennedy beittu þessu ákvæði laganna á 20. öldinni án þess að viðkomandi ríki óskaði eftir aðstoðinni, en Eisenhower sendi herlið á vettvang í Little Rock, höfuðstað Arkansasríkis, til að tryggja að níu svartir nem- endur gætu sótt framhaldsnám þar, og Ken- nedy beitti ákvæðunum tvisvar með um eins árs millibili 1962 og 1963 til að tryggja rétt blökku- manna til að sækja nám í Mississippi og Ala- bama, þvert á óskir ríkisstjóra í ríkjunum. Yrði örugglega kært Áhöld eru hins vegar um hvort innanlandsó- eirðir geti talist brot á stjórnarskrárvörðum rétti fólks, og telja má nánast öruggt að ef Trump reyndi að senda herinn á vettvang án þess að viðkomandi ríki hafi óskað sérstaklega eftir því yrði sú ákvörðun þegar í stað kærð til dómstóla. Letitia James, ríkissaksóknari New York-rík- is, lýsti því yfir á mánudaginn, strax í kjölfar ræðu Trumps, að forsetinn væri ekki einræðis- herra og hefði enga heimild til þess að senda herinn á vettvang án þess að beiðni ríkisins lægi fyrir. Hét James því að embætti sitt myndi verja réttindi New York-ríkis og ekki hika við að leita til dómstóla til að hnekkja slíkri ákvörðun. Pentagon leggst gegn hervaldi AFP Samstaða Lögreglumenn við þinghús Bandaríkjanna sýndu samstöðu með mótmælendum.  Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir að herútkall til að kveða niður mótmæli ætti að vera allra síðasti kostur  Deilt um hvort lögin heimili Trump að senda herinn á vettvang án samþykkis ríkjanna Kínversk stjórnvöld vöruðu í gær Breta við því að skipta sér af málefn- um Hong Kong eftir að Boris John- son, forsætisráðherra Bretlands, hét því að íbúar borgarinnar myndu fá hæli í Bretlandi kysu þeir að flýja sjálfstjórnarhéraðið eftir að ný þjóðaröryggislöggjöf Kínverja tekur gildi. Utanríkisráðuneyti Kínverja sakaði Breta um að sýna af sér „kaldastríðs- hugsunarhátt“ og „nýlenduhyggju“ og krafðist þess að þeir hættu að skipta sér af innanríkismálum Kínverja. Gert er ráð fyrir mótmælum í Hong Kong í dag, en þá verður þess minnst að 31 ár er liðið frá atburðunum á Torgi hins himneska friðar. Stjórnvöld í Hong Kong hafa bannað athöfnina í fyrsta sinn í ár, en þau segja of hættulegt að halda hana vegna heimsfaraldursins. AFP Handtaka Hörð mótmæli voru í síðustu viku í Hong Kong vegna laganna. Vara Breta við afskiptum  Kínverjar gagnrýna boð um hæli fyrir íbúa Hong Kong Mótmæli vegna drápsins á George Floyd hafa teygt anga sína út fyrir landsteina Bandaríkjanna. Haldin voru fjölmenn mótmæli í gær í nokkrum af helstu borg- um Evrópu, þ. á m. Stokkhólmi, Helsinki og Lundúnum. Leikarinn John Boyega (fyrir miðju), sem lék í Stjörnustríðsmyndunum nýju, flutti þar ræðu og lýsti yfir samstöðu sinni með George Floyd og öðrum fórnar- lömbum kynþáttahyggju í Bandaríkjunum og víðar. AFP Fjölmenn mótmæli víða um heim
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.