Morgunblaðið - 04.06.2020, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Hæ!
Hjón kaupa íbúð, hann er bara
skráður fyrir íbúðinni en bæði hjón-
in fyrir lánum. Hvernig virkar það
við skilnað? Er það 50/50?
Kveðja, B
Sæl B.
Algengast er að eignir hjóna séu
svokallaðar hjúskapareignir. Um
leið og stofnað er til hjúskapar verða
þannig allar eignir maka að hjú-
skapareignum viðkomandi nema
hjónin hafi gert sérstakar ráðstaf-
anir eða lög standi til annars. Þannig
geta hjón gert sérstakan formbund-
inn samning sín á milli sem kallast
kaupmáli og með honum stofnað til
séreigna sem falla utan skipta við
skilnað. Meginreglan við fjárskipti
milli hjóna er á hinn bóginn svo-
nefnd helmingaskiptaregla. Sam-
kvæmt henni á hvor maki um sig til-
kall til helmings úr skýrri hjú-
skapareign hins. Af fyrirspurn þinni
má ráða að íbúðinni yrði skipt eftir
framangreindri helmingaskipta-
reglu þar sem um hjúskapareign er
að ræða. Breytir engu í þeim efnum
þótt maðurinn sé þinglýstur eigandi
eignarinnar.
Kveðja,
Sævar Þór Jónsson
Lögmaður/MBA
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú
getur sent Sævari Þór spurningu á
eftirfarandi slóð: www.mbl.is/
smartland/spurdu_logmanninn/
Hvernig skiptist eignin við skilnað?
Ljósmyndir/Unsplash
Sævar Þór Jónsson lögmaður/
MBA svarar spurningum les-
enda Smartlands. Hér fær
hann spurningu frá manneskju
sem veltir fyrir sér hvað gerist
við skilnað ef annar aðilinn er
bara skráður fyrir fasteign í
þeirra eigu.
Sævar Þór Jónsson lög-
maður rekur lögmannsstof-
una Sævar Þór & Partners.