Morgunblaðið - 04.06.2020, Síða 51
MINNINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020
✝ Ragnar Bald-vin Baldvins-
son fæddist í
Reykjavík 22.
ágúst 1976. Hann
varð bráðkvaddur
á heimili sínu 15.
maí 2020.
Foreldrar
Ragnars eru
Ragnhildur Lýðs-
dóttir, f. 21. maí
1941 í Litlu-
Sandvík í Flóa, og Baldvin
Halldórsson, f. 3. janúar 1944
í Hafnarfirði. Bróðir Ragnars
er Halldór Baldvinsson, f. 17.
Ragnar ólst upp í Norð-
urbæ Hafnarfjarðar og gekk í
Engidals- og Víðistaðaskóla.
Hann útskrifaðist sem húsa-
smiður frá Iðnskólanum í
Hafnarfirði árið 1998 og sem
húsasmíðameistari frá Iðn-
skólanum í Reykjavík árið
2005. Hann vann við smíðar
alla sína starfsævi.
Áhugamál Ragga eins og
hann var alltaf kallaður voru
fjölmörg. Tónlist, kvikmynd-
ir, íþróttir, heimspeki og
saga skipuðu þar stóran sess.
Einnig var hann mikill dýra-
vinur og gaf sig alltaf að dýr-
um þegar þau urðu á vegi
hans.
Ragnar Baldvin var jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði 28. maí 2020 að
viðstaddri fjölskyldu, ætt-
ingjum og góðum vinum.
október 1969,
giftur Söndru Ösp
Gylfadóttur, f. 1.
apríl 1975, börn
þeirra eru Viktor
Snær, f. 2001,
Karen Sól, f.
2004, og Baldvin
Máni, f. 2008.
Systir Ragnars er
Aldís Baldvins-
dóttir, f. 14. ágúst
1972, gift Víði Má
Atlasyni, f. 15. júní 1973,
börn þeirra eru Vala María,
f. 1993, Katrín, f. 1997, og
Baldvin Már, f. 2007.
Í dagsins önnum dreymdi mig
þinn djúpa frið, og svo varð nótt.
Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt,
þeim svefni enginn rænir þig.
En samt var nafn þitt nálægt mér
og nóttin full af söngvaklið
svo oft, og þetta auða svið
bar ætíð svip af þér.
Og þungur gnýr sem hrynji höf
mitt hjarta lýstur enn eitt sinn:
Mín hljóða sorg og hlátur þinn,
sem hlutu sömu gröf.
(Steinn Steinarr)
Við söknum þín svo mikið,
elsku drengurinn okkar.
Hvíl í friði í ljósinu bjarta.
Mamma og pabbi.
Elsku bróðir minn.
Nú er sumar og fuglasöngur
berst inn um gluggana. Sólin skín,
dagurinn lengist og blómin lifna
við eftir vetrardvalann. Elsku
bróðir minn heyrir ekki lengur í
fuglunum, finnur ekki angan
blómanna. Þú ert farinn, farinn á
brott í bjartan svalann.
Í æsku virtist framtíðin bein.
Þú alla tíð mig gladdir.
Eftir stend ég sár og ein.
Tár mín renna, eftir að þú kvaddir.
Hér kveð ég þig með söknuð í hjarta.
Ég veit að þú munt vaka yfir okkur
þar sem þú ert kominn í dalinn bjarta.
(AB)
Við systkinin ólumst upp á góðu
og ástríku heimili í Hafnarfirði
þar sem við fengum umhyggju-
samt uppeldi. Það var mikið ærsl-
ast og hlegið á heimilinu, enda
voru þar þrjú börn á svipuðu reki.
Við bjuggum við það lán að móðir
okkar var heimavinnandi þegar
við vorum börn og var því alltaf til
staðar fyrir okkur á meðan faðir
okkar var við vinnu. Foreldrar
okkar ferðuðust mikið með okkur
bæði innan- og utanlands. Tjald-
ferðalögin voru ófá í rigningu og
roki en það var samt gaman. Enn í
dag eru foreldrar okkar alltaf til
staðar fyrir okkur, hvort sem það
er í gleði eða þegar á móti blæs.
Ég man þegar þú vildir alltaf
hanga yfir mér og vinkonum mín-
um á unglingsárum mínum og
hlusta á hvað við vorum að spjalla
um. Þú þóttist vera að lesa Andr-
ésblað en varst í raun að njósna
um okkur og hafðir gaman af.
Svona eins og flest yngri systkini
eru þá er spennandi að forvitnast
um þau eldri. Ég var nú ekki alltaf
glöð yfir þessu en í dag gleðst ég
yfir þessum minningum að þú
vildir vera með mér.
Kisan Dúlla og önnur dýr eru á
ófáum myndum með þér og það
kemur ekki á óvart þar sem dýrin
höfðuðu sterkt til þín og þú alltaf
svo ljúfur við öll dýr og vildir þeim
allt hið besta. Það sást einnig í
sveitinni þar sem við dvöldum oft
hjá ömmu og afa hvað þú naust þín
vel með dýrunum og sýndir þeim
mikla alúð.
Litli bróðir minn hann Raggi
var vinmargur, glaðlegur, stríð-
inn, uppátækjasamur prakkari
sem barn og fram á fullorðinsár.
Hann menntaði sig sem húsa-
smíðameistari og vann þá vinnu
vel og hafði unun af. En lífið er
ekki alltaf beinn og breiður vegur
heldur er lífið hlykkjótt sem get-
ur valdið því að draumar geta
brostið. Vegurinn var að sléttast
hjá Ragga, en þá var þörf á hon-
um á öðrum ókunnum slóðum.
Við sem eftir stöndum trúum
því að þegar okkar tími kemur að
yfirgefa jarðlífið, þá munir þú,
elsku bróðir, koma og taka á móti
okkur í sumarlandinu fagra sem
þú varst svo viss um að væri til.
Sjáumst síðar, elsku Raggi
minn.
Þín systir,
Aldís.
Elsku Raggi.
Hverfulleika lífsins fengum við
fjölskylda þín að kynnast á fal-
legu föstudagskvöldi núna í maí.
Þessi óraunverulega frétt er því
miður veruleikinn sem við þurf-
um að sætta okkur við og lifa með.
Ég kynntist þér fyrir nálægt
þrjátíu árum, ég 18 ára að slá mér
upp með Aldísi systur þinni, þú 15
ára. Mér var laumað inn bakdyra-
megin, framhjá mömmu og
pabba, inn í stofu þar sem við Al-
dís kúrðum saman yfir MTV og
einhverju álíka merkilegu. Þá
sast þú oft yfir okkur, varst í tölv-
unni eða eitthvað að dunda þér,
slétt sama um að systir þín vildi fá
að vera í friði, eða kannski varstu
aðeins forvitinn um okkur.
Á þessum tíma var svarta plat-
an með Metallica nýkomin út og
þá fengu nú hátalarar heimilisins
að vinna yfirvinnu. Ég tengdi ekki
alveg við þessa tónlist þá, sem þú
elskaðir, en seinna fór ég að skilja
snilldina og tengi sterkt við þessa
tónlist í dag.
Við náðum ágætlega saman,
helst að við tengdum í gegnum
fótboltaspjall, en þú hélst með
Man. Utd en ég Liverpool. Við
vorum sennilega aldrei sammála
um ágæti þessara liða, en það var
gaman að rökræða við þig um
allskonar hluti, þú varst bæði klár
og rökfastur og hugmyndaflug
þitt mikið. Við munum sakna
þess.
Eftir að þú settir stefnu þína á
húsasmíðanám, þá flaugst þú í
gegnum það eins og ekkert væri.
Þú varst vel gefinn og þegar þú
varst búinn að ákveða eitthvað
varð því ekki breytt svo glatt. Eft-
ir nám vannstu við smíðar við
góðan orðstír þar til veikindi þín
brugðu fyrir þig fæti og sveiflur í
byggingariðnaði fækkuðu tæki-
færum.
Hin síðari ár voru þér stundum
erfið, en síðasta árið virtist sem
þú værir kominn á beinu brautina
og björt framtíð blasti við. Þá var
þér kippt í burtu.
Við sem eftir stöndum trúum
því að þú sért kominn á góðan
stað.
Þú komst frá yndislegu heimili
þar sem þið systkinin bjugguð við
ást, alúð og hlýju. Þau sterku
bönd fylgdu þér til dauðadags, þú
í daglegum samskiptum við
pabba þinn og mömmu sem voru
þínir klettar í lífsins ölduróti.
Farðu í friði, elsku Raggi minn.
Víðir Már Atlason.
Við kvöddum kæran frænda
okkar, Ragnar B. Baldvinsson, í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í fal-
legri kveðjustund. Hann varð
bráðkvaddur á heimili sínu 15.
maí. Ragnar var yngri sonur elsta
bróður míns Baldvins og konu
hans Ragnhildar Lýðsdóttur.
Mikill er söknuðurinn. Við þökk-
um fyrir þennan stutta tíma sem
Ragnar gaf okkur.
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur sendum við fjölskyldu og
vinum.
Góða ferð, elsku Raggi minn, og
farðu í guðs friði.
Hvers virði er allt heimsins prjál
ef það er enginn hér
sem stendur kyrr
er aðrir hverfa á braut.
Sem vill þér jafnan vel
og deilir með þér gleði og sorg
þá áttu minna en ekki neitt
ef þú átt engan vin.
Hvers virði er að eignast allt
í heimi hér
en skorta þetta eitt
sem enginn getur keypt.
Hversu ríkur sem þú telst
og hversu fullar hendur fjár
þá áttu minna en ekki neitt
ef þú átt engan vin.
Það er komin vetrartíð
með veður köld og stríð.
Ég stend við gluggann
myrkrið streymir inn í huga minn.
Þá finn ég hlýja hönd
sál mín lifnar við,
eins og jurt sem stóð í skugga
en hefur aftur litið ljós.
Mín vetrarsól.
(Ó.H. Símonarson)
Björgvin Halldórsson
og fjölskylda.
Það er með sorg í hjarta sem ég
kveð þig, elsku Raggi minn, og
það alltof snemma. Við þessi sorg-
legu tímamót hrannast upp góðu
minningarnar.
Þegar þú varst lítill og stalst í
Tinnabækurnar mínar, enda Tinni
langbestur og bækurnar úti um
allt þegar ég kom heim úr skól-
anum. Tíðar ferðir fjölskyldunnar
í sælureitinn fyrir austan og þegar
við löbbuðum um túnin í sveitinni.
Allar bíóferðirnar okkar, spjall-
ið um leikara og leikstjóra og oft
vorum við sammála um hvað væri
góð mynd. Spjallið um tónlistina,
sem var nú þitt aðaláhugamál, og
þá auðvitað þungarokkið. AC/DC,
Metallica, Slayer og Guns N’ Ro-
ses voru þar í uppáhaldi.
Handlaginn varstu svo sannar-
lega og þú fékkst þá náðargáfu í
vöggugjöf. Þegar þú byrjaðir að
vinna við smíðina fórstu létt með
að kaupa þér íbúð og glænýjan
Volkswagen Polo. Tíminn okkar
saman þegar við vorum að byggja
fjölskylduhúsið er ógleymanlegur
og sérstaklega síðasta mánuðinn
þegar unnið var alla daga frá því
eldsnemma að morgni til tíu um
kvöld og okkur var færður kvöld-
matur að heiman svo tíminn færi
ekki til spillis. Án þín hefði þetta
ekki verið hægt.
Aðfangadagur verður ekki
samur hér eftir þegar þig vantar
við borðstofuborðið og ég mun
sakna eftirvæntingar barnanna
minna eftir jólagjöfunum þínum,
sem voru alltaf flottastar.
Ég veit að síðustu ár hafa verið
þér erfið og þú þurft að ganga
þung skref í vanlíðan þinni. Alltaf
var ég bjartsýnn á að þetta væri
að koma, því síðustu mánuði
varstu búinn að vera á svo góðu
róli. En hjartað gafst bara upp á
endanum og nú ertu farinn frá
okkur.
Minningin um þig mun lifa að
eilífu og ég veit að núna loksins
sérðu sólina dansa.
Góða ferð elsku vinur.
Halldór Baldvinsson.
Lífið er hverfult og ekki það
sem maður býst við þegar jafn-
aldrar manns kveðja. Í dag kvaddi
ég æskuvin minn. 43 ára er enginn
aldur. Raggi, gamli æskuvinur
minn, hefði orðið 44 ára í sumar.
Við kynntumst þegar hann flutti í
götuna mína þegar við vorum
smákrakkar og urðum strax bestu
vinir. Vorum ekki saman í bekk en
það skipti engu máli, lékum saman
alla daga: Starwars, playmo, tin-
dátar og skák, úti að hjóla í æv-
intýraferðum og klifra í nýbygg-
ingunum á Bæjarhrauninu.
Öfundaði hann af BMX-hjólinu á
meðan ég dröslaðist á DBS-inu
mínu. Þess á milli að horfa á Skon-
rokk-þætti eða stelast í plötur
systkina okkar með ómældri
ánægju þeirra, eða þannig. Ragga
og Raggi. Bestu vinir. Strákur og
stelpa. Já, þetta var nefnilega
þannig. Stranglers, Duran Duran,
Culture Club, allt skrýtna pönkið
sem við hlustuðum forvitin á. Bíó-
myndir á VHS. Góðmennskan
uppmáluð, saklaus, traustur vinur
og skemmtilegur.
Ég skrifa þennan pistil því ég
vil minnast góðs æskuvinar og op-
inbera mína hinstu kveðju til hans
hér. Að öðru leyti vil ég líka nefna
það hversu andleg öng sem snýr
að einelti einstaklinga eða annað
ofbeldi eða stríðni eins og það vildi
kallast getur haft áhrif á framtíð
og sjálfsmótun einstaklings.
Raggi var klár, vel menntaður, vel
lesinn, góðhjartaður, umvafinn
kærleiksríku fólki, en tók sínar
misjöfnu beygjur í lífinu, misjafn-
ar eru þær sem verða á vegi okk-
ar. Lokaorð mín eru þessi: kenn-
um börnum okkur að vera góð
hvert við annað og lítum í eigin
barm.
Hvíldu í friði, Raggi minn.
Þín vinkona,
Ragnhildur
Ægisdóttir.
Ragnar Baldvin
Baldvinsson
Okkar ástkæri
GRÍMUR ORMSSON
Markarvegi 17,
lést laugardaginn 23. maí.
Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn
9. júní klukkan 13.
Birna Grímsdóttir
Inga K. Grímsdóttir
Óðinn Grímsson Kristín Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURÐUR RICHARDSSON
kennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
27. maí. Útför fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 5. júní klukkan 15.
Louisa Sigurðardóttir Pétur Haukur Ólafsson
Anna María Sigurðardóttir Viðar Sigurðsson
Brynja Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ALDA JÓHANNSDÓTTIR,
Flúðaseli 38,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
þriðjudaginn 26. maí.
Útför hennar fer fram frá Lindakirkju
fimmtudaginn 11. júní klukkan 13.
Steingrímur Matthíasson
Svanhildur Steingrímsdóttir Guðmundur Kr. Gíslason
Jenný Steingrímsdóttir Ólafur Snorrason
Hrönn Steingrímsdóttir Egill Sandholt
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
GARÐAR SIGURÐSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 28. maí.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 11. júní klukkan 11.
Helgi Eyjólfsson Sveindís Sveinsdóttir
Dagur Garðars Guðrún Sigurðardóttir
Guðrún Garðars Guðmundur Vikar Einarsson
Margrét Garðars Mölk Rúnar Mölk
Helga María Kristinsdóttir
Sigurður Garðars Sigrún Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
✝ Guðbjörg JónaSigurðardóttir
fæddist á Geld-
ingalæk á Rang-
árvöllum 14. janúar
1933. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 22. maí 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður
Sigurðarson, bóndi
á Efri-Þverá í
Fljótshlíð og síðar af-
greiðslumaður á Bifreiðastöð Ís-
lands, BSÍ, f. 18.12. 1906, d. 6.7.
1977 og Ingibjörg Jónsdóttir
húsfreyja, f. 1.12. 1908, d. 9.1.
1985.
Bróðir hennar er Leifur
Sigurðsson, bóndi á Kvígs-
stöðum í Borgarfirði, f. 19.5.
1939, d. 6.1. 1994. Eiginkona
hans er Særún Æsa Karlsdóttir,
f. 20.5. 1945. Börn þeirra eru
Svala Leifsdóttir, f. 10.12. 1962,
Sigurður Ingi
Leifsson, f. 19.3.
1964, Sigurþór
Leifsson, f. 15.3.
1966, Karl Dúi
Leifsson, f. 15.1.
1970.
Jóna giftist þann
17. júní 1953 Jóni
Þóri Einarssyni,
bílstjóra og síðar
sjómanni, f. 31.1.
1927, d. 18.8. 2007.
Foreldrar hans voru Einar Guð-
mundsson bifreiðarstjóri, f.
2.10. 1898, d. 7.3. 1946 og Þóra
Valgerður Jónsdóttir, f. 24.4.
1998, d. 29.11. 1988.
Jóna ólst upp á Efri-Þverá í
Fljótshlíð en flutti til Reykjavík-
ur á fermingaraldri.
Hún vann ýmis verslunarstörf
en var lengst af hjá Blindravina-
félagi Íslands í Ingólfsstræti 17.
Útför Jónu fór fram í kyrr-
þey.
Sumarið 1971 fluttum við í
Vesturberg 28. Á hæðinni fyrir
ofan okkur bjuggu dásamleg
hjón, Jón og Jóna, sem seinna
voru kölluð Jón afi og Jóna
amma í okkar fjölskyldu og
stóðu þau vel undir því nafni.
Fyrir okkur stelpurnar sem
áttum ömmur og afa í sveit var
yndislegt að eiga eitt sett í
Reykjavík. Minningarnar eru
óteljandi, alltaf gleði, sprell og
alls konar uppátæki sem Jón afi
sá um að mestu leyti. Ef honum
fannst leiðin of löng milli hæða
veigraði hann sér ekki við að
klifra milli hæða af svölunum,
fannst það mun fljótlegri leið.
Ekki er hægt að minnast
þeirra án þess að upp í hugann
komi hjálpsemi, kærleikur og
örlæti sem var óendanlegt. Enn
eru til dúkkur frá þeim á heim-
ilum okkar, svo ekki sé minnst
á skápinn bak við hurð sem
virtist vera ótæmandi af alls
konar. Þau sáu til þess að við
systur færum aldrei tómhentar
heim.
Þótt við flyttum úr blokkinni
eftir 5 ár og svo norður í land
10 árum síðar hélst sambandið
alla tíð. Heimsóknir þeirra
norður voru reglulegar meðan
heilsan leyfði en síðastliðin ár
eftir að Jón kvaddi urðu þær
fáar.
Takk fyrir dýrmæta sam-
fylgd í gegnum öll þessi ár,
elsku Jóna amma og Jón afi.
Minningin um yndislega vini
mun fylgja okkur alla ævi.
Guðgeir, Sigrún, Særún,
Sunneva og Björk.
Guðbjörg Jóna
Sigurðardóttir