Morgunblaðið - 04.06.2020, Page 61

Morgunblaðið - 04.06.2020, Page 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2020 „ÁTTU EKKI PRÓF Á ÍSLENSKU?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að muna að lífið heldur áfram. ENGAR ÁHYGGJUR, ÉG ER MEÐ FULLA STJÓRN Á ÞESSU ÞARNA ER HANN! NÆST SKALTU HENDA SPÝTU… EKKI STEINI! „ÞEIR VORU AÐ GERA BREYTINGAR Á TEIKNINGUNUM. HVAÐ ERTU LENGI AÐ BÚA TIL AÐRA ÚTGÁFU?” lögum og samveru við börnin mín, vini og fjölskyldu. Nú í seinni tíð hef ég stundað útivist og að fara út fyrir þægindarammann og prófa eitthvað nýtt og svala for- vitninni sem ég hafði aldrei tíma til að gera áður. Ég er líka dugleg að njóta litlu hlutanna, lifa í núinu og búa til fallegar minningar.“ Fjölskylda Börn Sesselju og fyrrverandi eiginmanns hennar, Ólafs Hjálm- arssonar, f. 16.2. 1963, verkfræð- ings eru Kolbeinn Ólafsson, f. 4.11. 2001, nýstúdent frá Verzl- unarskóla Íslands, og Nanna Rut Ólafsdóttir, f. 27.9. 2007, nýút- skrifuð úr Melaskóla. Systkini Sesselju sammæðra eru Rósbjörg S. Þórðardóttir, f. 19.1. 1972, tómstundafræðingur, býr í Kópavogi, og Stefanía A. Þórðardóttir, f. 24.3. 1975, mót- tökuritari, býr í Kópavogi. Systk- ini samfeðra eru Kristín Sólveig Kristjánsdóttir, f. 27.9. 1972, læknir, býr í Danmörku, og Bjarki Elías Kristjánsson, f. 18.9. 1974, tækniþróunarstjóri, býr í Mos- fellsbæ. Foreldrar Sesselju: Borghildur Stefánsdóttir, f. 23.2. 1942, d. 10.1. 2020, matráðskona og bjó lengst af í Kópavogi, og Kristján Friðrik Guðni Friðriksson, f. 26.10. 1945, verksmiðjustjóri, kvæntur Björk Bjarkadóttur. Þau eru búsett í Mosfellsbæ. Uppeldisfaðir Sess- elju og eiginmaður Borghildar er Þórður Flosason, f. 23.6. 1946, raf- virki, býr í Kópavogi. Sesselja Kristjánsdóttir Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja í Innri-Bug Þorgils Þorgilsson bóndi í Innri-Bug í Fróðárhr., Snæf. Sólveig Þorgilsdóttir húsfreyja í Reykjavík Friðrik Jón Ásgeirsson Jóhannsson sjómaður og verkamaður í Reykjavík Kristján Friðrik Guðni Friðriksson verksmiðjustjóri í Mosfellsbæ Bjarney Jóníma Friðriksdóttir húsfreyja áAuðkúlu Jóhann Jónsson útvegsbóndi áAuðkúlu íArnarfirði Bjarni Friðriksson júdókappi Sigrún Stefánsdóttir úsmóðir í Hafnarfirðih Sigga Klingenberg spámiðill Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Landbrotum Sigurður Jónsson bóndi í Landbrotum í Kolbeinsstaðahr. Sesselja Sigurðardóttir húsfreyja íAkurholti Hans Stefán Sigurðsson bóndi íAkurholti í Eyjahr., Hnapp. Anna Davíðsdóttir húsfreyja í Fögrubrekku Sigurður Jónsson bóndi í Fögrubrekku í Kolbeinsstaðahr., Hnapp. Úr frændgarði Sesselju Kristjánsdóttur Borghildur Stefánsdóttir matráðskona, bjó lengst af í Kópavogi Pétur Stefánsson yrkir „í hóg-værð“ á Leir: Efnistökin góð og gild, geislar fjör í orðum. Yrkir Pétur oft af snilld eins og skáldin forðum. Ólafur Stefánsson yrkir „Á land- inu ísakalda“, gott ljóð og minnir okkur á hvar við búum: Við þreyð höfum Þorra og Góu, því þráum við hagvænni tíð. Í vetur er vonirnar dóu, og vesluðust upp í hríð, þá börðum við búkinn til hita, báðum um dálítinn hita, um sólhvelin háreist og fríð. Í ár á Skerplu enn skjálfum, í skjólin leitum sem hross. Því funa hjá fjandanum sjálfum, er freistandi’ að ná fyrir oss, sem lifum í landinu smáa, af langþættum andskotans þráa, og kyssum það júdasarkoss. Við sættast verðum, því sökin, er oss sjálfra, en ekki þess lands, hvar frýs um vetur hver vökin, og vistar er hert hvert band. Þar verður ei feigum forðað, – ég fæ ekki betur orðað, þá ást til míns Ísalands. Jón Atli Játvarðarson skrifar á Boðnarmjöð: „Landgræðslustjóri hefur tekið af skarið með að stöðva þurfi lausagöngu sauðfjár. Rollur skuli í beitarhólf og bændur græði það á þessu að þeir þurfi ekki að smala, bara reka saman. Búfé þeirra verði ekki fyrir bílum frek- ar en flugvélum. Þetta vekur óskipta gleði einnig hjá til dæmis öðrum landeigendum“: Ekkert rugl og rollustúss, reima létt nú skóna. Allir bændur innanhúss eru nú að prjóna. Lesa póst og ganga um gólf greiða á sér hárið. Rollan bítur beitarhólf bústin þetta árið. Gylfi Þorkelsson orti á sunnu- dag: Hvítasunnuværð og vom. Á vel til hnífs og skeiðar. Heilagur andi óvænt kom yfir lærissneiðar. Guðmundur Halldórsson bætti um betur: Hvítasunnuværð þig vefur víst með anda tærum. Heilagur andi oftar hefur yfir sveimað lærum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lausaganga sauðfjár á landinu ísakalda Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888 OPIÐ ALLA DAGA. Mán. til fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16. Sunnud. kl. 12–16 RAFLAGNAEFNI Í MIKLUÚRVALI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.