Morgunblaðið - 27.11.2020, Síða 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Hágæða handverkfæri frá
Stubai og Crown Tools
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
6 stk sett
14 stk sett
Gott úrval af
stökum járnum
Vefverslun brynja.is
Útskurðajárnasett
með hnífum
Útskurðahnífar gott úrval
Sporjárn 4
- 40 mm Rennijárn
sett - 4 st
Hallamál 0,5mm/m nákvæmni 3 lengdir
Útskurða-
járna-
taska
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
a-
k.
Kjullur
Heflar
Sniðmát
Rismát
Bakkasög
RennijárnHallamál
SVARTUR FÖSTUDAGUR
10% afsláttur
af öllum vörum í netverslun
föstudag til mánudags
Útskurðar-
járnasett
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á dögunum urðu þau tímamót að Björgun
flutti starfsemi sína endanlega úr Sæv-
arhöfða við Elliðaárvog, en þar hafði fyrir-
tækið verið með höfuðstöðvar í 44 ár.
Sem kunnugt er af fréttum hefur staðið til
að Björgun flytti á nýjan stað í Álfsnesvík á
Álfsnesi en þau áform hafa tafist af ýmsum
ástæðum. Á þessari stundu er óvíst hvenær
og hvort Björgun geti haslað sér völl á Álfs-
nesi eins og til stóð. Sem kunnugt er áformar
Minjastofnun að friðlýsa svæðið vegna forn-
minja sem þar er að finna. Á meðan hefur
Björgun komið sér fyrir í bráðabirgða-
húsnæði í Mosfellsbæ, að sögn Eysteins
Dofrasonar framkvæmdastjóra. Sand-
dæluskip félagsins, Sóley og Dísa, munu
áfram hafa viðlegu í Ártúnshöfðahöfn og eins
fær fyrirtækið að geyma ýmsan búnað á
svæðinu enn um sinn.
Björgun ehf. var stofnað 11. febrúar 1952.
Reksturinn snerist í upphafi um björgun
strandaðra skipa og er nafn félagsins þannig
til komið, segir í samantekt á heimasíðu
Björgunar. Fyrsta verkefni Björgunar var að
vinna að niðurrifi flutningaskipsins Clam
sem strandað hafði á Reykjanestá.
Kristinn í Björgun þjóðsagnapersóna
Meðal stofnenda félagsins var Kristinn
Guðbrandsson og var hann helsti sérfræð-
ingur þess um björgun strandaðra skipa og í
raun þjóðsagnapersóna fyrir þau afrek.
Kristinn var fyrsti forstjóri fyrirtækisins og
stýrði félaginu farsællega um áratugaskeið.
Árið 1954 eignaðist Björgun sitt fyrsta dælu-
skip sem hlaut nafnið Leo og var það fyrsti
vísir að breyttri starfsemi fyrirtækisins. Leo
var í rekstri allt til ársins 1975. Árið 1962 var
stigið stórt skerf í sögu fyrirtækisins þegar
það keypti flutningaskipið Wumme og lét
breyta því í sanddæluskip í Þýskalandi.
Wumme fékk nafnið Sandey og Björgun kom
sér upp athafnasvæði við Vatnagarða í
Reykjavík.
Við Vatnagarða kom félagið sér upp að-
stöðu til löndunar og flokkunar á sandi og
möl af sjávarbotni. Efninu var dælt upp í
hörpu sem flokkaði það í fjóra stærðarflokka.
Þessi aðferð var notuð allt til ársins 2008
þótt efnisvinnslan hafi með tímanum orðið
mun meiri en var í fyrstu. Björgun starfaði
við Vatnagarða til ársins 1976 þegar fyrir-
tækið flutti starfsemi sína á Sævarhöfða.
Upp úr 1990 hófst nýr kafli í sögu Björg-
unar þegar félagið réðst í stækkun á lóð fé-
lagsins við Sævarhöfða og uppbyggingu
bryggjuhverfis að erlendri fyrirmynd. Hug-
myndin var þróuð í samvinnu við Björn Ólafs
arkitekt og var upphafið að þátttöku Björg-
unar í landþróunarverkefnum þar sem ná-
lægðin við hafið er nýtt til afþreyingar og
útivistar.
Þegar farið var að huga að stækkun
Bryggjuhverfisins í vesturátt var ljóst að
Björgun yrði að víkja af svæðinu með starf-
semi sína. Haustið 2016 var gengið frá samn-
ingum þess efnis að Faxaflóahafnir keyptu
eignir Björgunar á lóðinni Sævarhöfða 33.
Jafnframt var um það samið að fyrirtækið
fengi að vera með starfsemi á svæðinu fram í
maí árið 2019. Þá var eiginlegri starfsemi
hætt en Björgun nýtti verkstæðis- og skrif-
stofubyggingar til loka október sl.
Björgun yfirgefur Sævarhöfðann
Fyrirtækið hefur verið með höfuðstöðvar þar í 44 ár Óvissa með flutning Björgunar í Álfsnesvík
Svæðið áður Vélbúnaður sem notaður var til að flokka og vinna steinefni af hafsbotni setti svip á
Sævarhöfðann. Nú er búið að fjarlægja allan búnað og ný tæki verða notuð í Álfsnesi.
Morgunblaðið/sisi
Svæðið núna Allur búnaður hefur verið fjarlægður og ekkert sem minnir á starfsemi Björg-
unar nema sanddæluskipið Sóley, sem liggur í Ártúnshöfðahöfn. Íbúðir munu rísa á svæðinu.