Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Page 15
13
1901
dysenteria vegna blóðniðurgangsins, sem allmikið bar á í mörgum tilfellunum, þótt
hann væri eigi constant symptom.
Sauðárkrókshérnð: Slæmur niðurgangur hefur stungið sér niður við og við, þó
enginn dáið, en margir legið 3—4 vikur. Byrjar veikin með uppsölu og feber, er varir
vanalega ekki rtema 1 sólarhring.
Siglufiarðarhérað: Að catarrh. intest. acut. kvað mest í júní og einkum í júii-
mánuði, og tók veikin bæði fullorðna og börn; lágu margir mjög þungt haldnir, enda
fylgdi mjög' mikill hiti sjúkdóminum, svo að á sumum varð hitinn 39,8 st. mest og nið-
urgangurinn mjög' tíður, stundum oft á sama klukkutíma; var hann slimkenndur og'
stundum blóðlitaður (sár í colon eða rectum); miklir „tenesmi“ fylgdu, voru menn
mjög oft lasnir á eftir og lengi að ná sér.
Akureijrarhérað: 1 ársfjórðungsskýrslunum, síðustu 5 mánuði ársins, hef ég
getið um, að hér hafi gengið illkynjuð cholerine samfara blóðniðurgangi, og ég hef
talið hana, ásamt öðrum garnasjúkdómum í flokknum „cholerine & catarrh. intest“.
Af því að kvilli þessi er alveg ólíkur venjulegri enteritis eða gastroenteritis hef ég i
hinu almenna yfirliti yfir sjúkdóma talið hann sérstakan undir nafninu dysenteria
nostras, svo að honum yrði eigi blandað saman við venjulegan garnakalar. Veiki
þessi er hin sama, sem byrjaði sunnanlands 1897, hefur breiðzt þaðan út til Austur-
og Vesturlands og síðan hingað norður. Af því að dysenteri hefur gengið hér fyrr
seni hungursótt, þegar óáran var í landi, þá er eftirtektarvert, að veiki þessi hefur
sýkt, og það alvarlega, siima, sem hafa verið ágætlega settir með fæði, húsnæði og
þvílíkt. Hættulegust hefur veikin orðið ungum börnum og' gamalmennum, einkum
eí þau hafa verið veik fyrir. Ég hygg, að eigi sé oftalið, þó að sagt sé, að 10 hafi dáið
úr veiki þessari. Um 7 veit ég með vissu, en eflaust hafa fleiri dáið úr henni. Ein-
kenni veikinnar eru mjög ólík á þeim, sem fá snert af henni og aftur hinum, sem
þungt leggjast. Þeir, sem veikin leggst létt á, fá nokkra hitaveiki, ógleði og' síðan
niðurgang blóðlausan. Allt þetta er um g'arð gengið eftir l—3 sólarhringa, og síðan
ei' sjúklingurinn alheill eða því sem næst. Þegar veikin er þung, varir hitaveikin oft
dögum saman, 3—5—-0 daga, nær oft 39—40 st.; auk ógleðinnar kemur áköf uppsala,
svo að sjúklingurinn er nærfellt næringarlaus hálfa viku eða meira. Niðurgangurinn
verður á 1—2 sólarhring blóðblandinn, stundum svo álcafur, að fáar mínútur líða
milli hægða. Tenesmi mjög sárir, kolik sömuleiðis. Meðan veikin stendur sem hæst,
htur sjúklingurinn næstum því út sem moribund. Þótt flestum batni veikin innan
skannns til fulls, þá hef ég þó orðið þess var, að þrálát chron. colitis hefur haldizt
vikum saman eftir hana. Einnig hef ég vitað 2 dæmi þess, að submucös abscessar
hafa myndazt í endaþarminuín. Gróf slikur abscess lit á öðrum sjúklingnum gegnum
perineum og myndaði þar anus praeternaturalis. Þó að veiki þessi sé næm, þá er
langt frá því, að næmleikinn sé mjög mikill, svo að liklegt er, að vel hefði verið auðið
að stöðva veikina með sóttvörn.
Höfðahverfishérað: Af öðrum umferðarsjúkdómum er að nefna gastroenteritis
epidemica (dysenteriformis), þó að ég viti, að nafnið sé ekki íuikils virði; en sé ekki
rétt að nefna sjúkdóminn dysenteria, sem ég reyndar er ekki sannfærður um, þá
get ég' varla skírt hann annað eftir þeirri litlu þekkingu, sem ég fékk af honum.
Reyðarfiarðarhérað: Cholerine gekk hér fyrri hluta sumars og í haust. Ég veit,