Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Side 16

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Side 16
190 i 14 að margir læknar kalla þá veiki dysenteri, og stundum lítur út fyrir, að fremur megi skýra hana svo, en í langflestum tilfellum vantar aðaleinkennin við dysenteri, og sér þó læknirinn aðeins hin erfiðari tilfellin. Þess vegna kalla ég veikina cholerine. Fáskrúðsffarðarhérað: Að garnakvefi hafa verið mjög mikil brögð þetta ár, alls 83 sjúklingar. Hefur sóttin verið mjög næm; á mörgum heimilum hefur hún tekið alla, eða því sem næst. Lágu flestir 2—8 daga. Blóðniðurgang hafa ekki allfáir haft, líklega 12—15%. Enginn dáið, að því er ég' veit. Beruffarðarhérað: Niðurgangsveiki tók menn ákaflega geyst. Hún byrjaði með höfuðverk, máttleysi svo miklu, að sjúklingarnir gátu naumast reist höfuðið frá koddanum, verk fyrir hringspölum eða til og frá í abdomen, lystarleysi, velgju og háum hita. Það mátti svo heita, að sjúklingarnir veiktust allt í einu. Hitinn var mest- ur í byrjun veikinnar ca. 1 sólarhring, og' gat oft orðið býsna hár; mesta hitastig, er ég mældi, var 42 st. Hitinn og þessi almennu sóttareinkenni stóðu sjaldan lengur en sólarhring', þar til þau fóru að réna; hitinn minnkaði snögglega — datt ef til vill á einum deg'i niður úr 41—42 st. niður í ca. 38 st., og' næsta dag á eftir var svo hiti nor- mal eða því sem næst, og það sem eftir var sýkinnar, stundum með smásveiflum upp og niður. En þegar sóttareinkennin fóru að réna — eftir ca. 1 sólarhi'ing — þá fengu sjúklingarnir profus diarrhoe með tenesmis, slím rnikið með hægðunum, en aldrei blóð né neinar trefjar í saurnum, það ég vissi. Eftir 6—10 daga var sjúklingurinn albata aftur. Veiki þessi var sýnilega næm, því að hver tók hana af öðrum á sama heimilinu og hvert heimilið af öðru. Á suma bæi kom hún oftar en einu sinni, og fékk þá sama fólkið hana tvisvar. Hún lagðist engu þyngra á börn — ef ekki léttar — en á fullorðna. Engum hefur hún orðið að bana og' virðist alveg hættulaus fyrir líf manna og framtíðarheilsu. Síðuhérað: Garnakvef gekk sem landfarsótt um allt héraðið síðustu mánuði ársins. Það var mjög næmt og tíndi víða upp alla heimilismenn, einkum stálpuð börn og unglinga. Sóttin byrjaði oftast með vanalegum sóttarumleitunum (höfuð- verk, beinverkjum, köldu, ógleði eða uppköstum), en skömmu á eftir fylgdi áköf kveisa og' niðurgangur. Hægðirnar urðu mjög þunnar og' slímkenndar, er frá leið, og stundum blóðlitaðar. Sjúkdómurinn stóð yfir 1—2 vikur. Engum varð hann að bana. Vestmannaeyja: Garnakvefið, sem ég í skýrslu minni um landfarsóttir hef nefnt dysenteria, hefur enn að öllu hagað sér svo sem ég lýsti því í síðustu ársskýrslu og hefur hin sömu einkenni og' gang', sem héraðslæknir G. Björnsson tilfærir í skýrslu sinni fyrir árið 1899 (sbr. skýrslu landlæknis fyrir það ár, bls. 6). Auk þess komu fyrir nokkur (13) tilfelli af mildu garnakvefi (niðurgangi) í mánuðunum febr.— júní, voru þau væg, án blóðsóttar, og' oftast án nokkurrar hitasóttar. 8. Barnsfararsótt (fehris puerperalis). 21 kona skráð i 13 héruðum, dóu 4. Mun því að vísu fara fjarri, að þar komi öll kurl til grafar. Þannig eru aðeins taldar 2 konur með barnsfararsótt á mánaðar- skrám úr Akureyrarhéraði og ekki getið um, að nein hafi dáið, en í aðalskýrslunni þaðan segir svo: „Þetta ár hafa ekki færxú en 4 konur sýkzt af barnsfararsótt. 2 af þeixn komust í opinn dauðann, en varð bjargað með skurði. 1 dó eftir 1—2 sólar- hringa (3 af þessum konum ern taldar hafa haft parametritis post partum).“ -
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.