Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Blaðsíða 49
47
1902
Stykkishólmshérað: Tuberculosis virðist hér afar óalmenn.
Blönduóshérað: Tuberculosis virðist heldur vera í rénun í héraðinu, en gerir þó
enn eigi alllítið vart við sig. Er hún aðallega í einstökum bygg'ðarlögum, í Blöndudal
°g Svartárdal og framan til í Svínadal.
Fáskrúðsjjarðarhérað: Hvað berklaveiki snertir, skal ég geta þess, að síðan ég
kom hingað (apríl 1900) hef ég alls fundið 22 sjúklinga með tuberculosis pulmo-
num, þar af eru nú dánir 8, og' 7 með tuberculosis aliis locis, nú dánir 3.
Keflavikurhérað: Af tubercplosis i lungum hafa komið fyrir þetta ár 6 tilfelli og
af tuberculosis aliis locis 0 tilfelli. Virðist veiki þessi vera að útbreiðast jafnt og þétt,
þótt hægt fari.
3. Holdsveiki (lepra).
í mánaðarskrám eru taldir 10 með líkþrá (I. tuberosa) og 6 með limafallssýki
U. anaesthetica. Er það ekki nema fátt þeirra sjúklinga, sem í héruðunum voru, og eru
orsakir þær, sem greindar eru í Heilbrigðisskýrslum fyrir 1901. Samkv. rannsóknum
próf. Sæm. Bjarnhéðinssonar, sem þar er skýrt frá, voru í árslok 1902 samtals 163
holdsveikir menn á landinu, þar af 61 í holdsveikraspítalanum í Laugarnesi og 102
utan spítalans. 88 af sjúklingunum höfðu líkþrá og 75 limafallssýki. Karlar voru 95,
konur 68.
4. Sullaveiki (echinococcosis).
A mánaðarskrám eru taldir 139, en í aðalskýrslu úr Seyðisfjarðarhéraði sést,
uð þar hefur láðst að telja 2 sullaveika sjúklinga á mánaðarskránni. Er þeim bætt við
á skárnar hér, og eru því skráðir alls 141 (113 árið áður). í aðalskýrslunni úr Eyrar-
bakkahéraði er og geti'ð um 19 sullaveika, og er það 2 fleira en talið er á mánaða-
skrám, en af því að þetta gæti veri'ð misritun í aðalskýrslunni, er hér farið eftir
niánaðaskránum. Langflestir eru skráðir í Reykjavíkurhéraði (22), og er flest af
þeim aðkomusjúklingar. Næst-flestir eru skráðir úr Eyrarbakkahéraði, 17 alls, jafn-
margir og árið áður.
Hundalækninga svo nefndra er víða getið, og eru þær sums staðar taldir í góðri
reglu, en annars staðar miður vel ræktar.
Læknar láta þessa getið:
Blönduóshérað: Sullaveikin er áreiðanlega i rénun í jiessu héraði, og er það
vafalaust að þakka varúð í umgengni við hunda, sem alltaf er heldur að verða meiri,
Pótt enn skorti mikið á, að vel sé, og hinum árleg'u hundalækningum á haustin.
Akureijrarhérað: Sjúklingurinn, sem hér segir frá, var drengur, 11 ára. Heilsu-
goður til þess fyrir 3 árum. Fór þá að fá höfuðverkjarköst framan í höfuðið, sem síð-
an héldust við og' við, ca. annan hvern dag, og stóðu yfir um % tíma. Verkir þessir
v°ru oftast mjög miklir. Skömmu eftir að höfuðverkurinn byrjaði, kom æðalömun
1 vinstri hönd (og framhandlegg), sem varð þrútin og bláleit, og hélzt það síðan.
'lafnframt þessu myndaðist alger radialislömun með flexio í lilnlið og olnbogalið.
Skömmu síðar byrjaði lömun í vinstra fætinum, sem fljótlega ágerðist svo, að hann
gat ekki gengið. Seinna fór hann að kenna titrings á hægri hendinni og stöðugra
krampa í hálsvöðvunum að aftan, svo að höfuðið dróst aftur á milli herðanna. Krömp-
um þessum reyndi hann að verjast með því að ganga og sitja álútur, því að þeim