Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Side 56

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Side 56
1902 54 er t. d. ekki nógu almennt. Brunnar eru oft grafnir þar sem sízt skyldi, t. d. í fúa- mýrum, þar sem rotnun er mikil í jörðu, svo að vatnið er alltaf slæmt í þeim. Þeir eru oft illa hlaðnir og ekki verndaðir sem skyldi fyrir regnvatni. Stundum standa þeir allt of nærri fjóshaugum og öðru endeini. Það er heldur ekki nógu almennt hugsað um að hafa sérstakt ilát til að ausa vatninu með, eða það ekki notað, þó að til sé. Þannig hef ég oftar en einu sinni séð fjósamenn sökkva vatnsfötunum úr fjós- inu eða úr bænum niður í brunninn, óhreinum af flórnum eða af eldhúsgólfinu, þar sem hundarnir snuðra um og karlmennirnir hrækja sem mest. Hreinlæti í meðferð líkamans er frekleg'a ábótavant, og hygg ég, að þeir muni þykjast leysa sig frækilega af hólmi, sem skolpa eitthvað af skrokknum á sér einu sinni á ári, og hamingjan má vita, hvort það er ekki yfirborðið af almúgafólki til sveita, sem þvær sér ekki nokk- urntíma um allan líkamann á ævinni, eftir að það er koinið á fullorðins ár. Loft og ljós vantar í híbýlin. Ofnar eru allt of sjaldgæfir, og þó að þeir séu til, eru þeir litið notaðir, svo að fólkið verður að hópa sig saman i 1—2 herbergi til að lialda á sér hita. Af ofnleysinu verða svo húsakynnin endingarlaus og óholl. Þau eyðileggjast af raka á fáum árum, ef þau eru þá ekki því gisnari, og þá er aftur ólíft í þeim á veturna fyrir kulda sakir. Ólafsvíkurhérað: Húsakynni í sjóþorpunuin eru þröng, og víðast er aðeins ein stofa, sem notuð er bæði sem setu-, borð- og svefnherbergi. Inni í slíkri stofu er enginn ofn, en aðeins eldavél, sem allur matur er soðinn við. Loftið í slíkum húsakynnum er því víða óþolandi. Þau hús, sem risið hafa upp á síðari árum, eru þó að sumu leyti hag- anlegar útbúin. Þrifnaði og hreinlæti manna á meðal er hér mjög ábótavant. Eigi að síður verður ekki annað sagt, en menn hafi tekið miklum framföruin í þessu efni nú á síðari árum. Reijkhólahérað: Þrifnaður er hér með betra móti. Það miða ég t. d. við það, að sullaveiki er hér í héraði fátið á ungum og gömlum. Hofsóshérað: Hér er vart uin önnur híbýli að ræða en torfhæi og þá flesta lélega. Má hér eigi teljast óalgengt, að baðstofur séu óþiljaðar, berir moldarveggirnir, og torfgólf j)á auðvitað í þeim. Eru því mjög mörg heimili hér hin bezta gróðrarstía fyrir hvers konar kvilla, er upp kunna að koma. Auðvitað eru hér til líka stöku fyrir ■ myndarheimili, en þau eru því miður sárfá, í hlutfalli við hin. Reijkdælahérað: Svo sem nærri má g'eta, er margt, sem að hollustuháttum lýtur, athugavert í héraðinu. Skal þess t. d. getið, að neyzluvatn er víða slæmt — ár og lækir notaðir, og' þótt brunnar séu, eru þeir víða illa hlaðnir og ófullkominn frágangur á þeim, svo að vatnið í þeim hlýtur að óhreinkast. Húsakynni eru víða köld, rakasöm og illa loftræst. Ýmislegt fleira, sem lýtur að hollustu og þrifnaði, er í ólagi, en þess skal þó getið, að mörg' mein, sem óþrifnaður styður, l. d. scabies, favus, sullaveiki, taugaveiki og jafnvel berklasýki, eru alls ekki líð i héraðinu. Fljótsdalshérað: í héraðinu er híbýlum manna allvíða talsvert ábótavant. Bygg- ingar eru víða gamlar, baðstofur portbyggðar og loftlitlar, gluggar víðast á þeim mjög' smáir, en undir loftinu eða baðstofunni þröngar gluggatóftir, svo vanalega kemst aldrei sólarg'eisli inn. Því miður hafa menn hér ekki enn þá lært sem skyldi, hve nauð- synlegt er að fara varlega með hráka sína. Eru haðstofur daglega sópaðar og ryki þyrlað upp, enda ber líklega meira á lungnaberklum hér en víða annars staðar. Mér
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.