Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Síða 57

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Síða 57
55 1902 sýnist sem bráð nauðsyn bæri til þess, að kýr væru rannsakaðar hér sem fyrst fyrir berklaveiki, og vil ég leyfa mér að skora á yður, herra landlæknir, að hlutast til um, að þetta verði gert. BerujjarSarhérað: Eitt verð ég sérstaklega að nefna, sem ég verð að álíta stór- kostlega framför í heilbrigðislegu tilliti, en það eru skilvindurnar. Fyrir svo sem 2 árum þekktust þær ekki hér um slóðir, en nú eru þær komnar á allflest heimili. Meðferð mjólkurinnar lil sveita verður ólíkt þrifalegri með þeim en með gömlu að- ferðinni, og vel get ég' ímyndað mér, að þær með öðru verði til þess að minnka sulla- veikina. Trog'in, sem áður voru notuð til að setja mjólkina i, voru, eins og lög gera ráð fyrir, þvegin í hvert sinn og þau voru tæmd. Að því búnu voru þau látin út til þerris og' oft reist upp við bæjarþilið, þar sem hundar áttu hægan aðgang að því að sleikja þau, og siðan var mjólkin sett í þau á ný. Nú er loku skotið fyrir, að þetta eigi sér stað framvegis, þar eð slík mjólkurílát leggjast nú alveg niður eða fara stórum fækkandi. Annar þarfur hlutur er líka orðinn hér mjög algengur, en það er eldavél- in. Eldhúsreykurinn gamli, sem margan gerði rauðeygðan, er nú alveg að hverfa. Það var áður siður hér eins og annars staðar að fleygja sorpi, beinarusli, skólpi og' öðru þess háttar rétt í kringum bæina. Þar lá þetta og úldnaði og gerði ódaun og óloft. Nú eru menn farnir að l)}rggja lokaðar safnforir fyrir allan þess konar úrgang og óhroða, og þótt þær séu ekki svo algengar enn sem skyldi, þá er áhugi manna vakn- aður fyrir því, að þetta sé hið rétta, bæði frá hagfræðilegu og heilbrigðislegu sjónar- miði. Salerni eru á mörgum bæjum. Vestmannaeyjahérað: Húsakynni og þrifnaður fer stöðugt batnandi. Eyrarbakkahérað: Hollustuháttum er víða i héraðinu mjög ábótavant og óþrifn- aður sums staðar talsverður, enda húsakynni víða léleg. Nokkrar framfarir muhu þó vera, hvað byggingar snertir, og er einkum járn iniklu meíra notað en áðiir. Grimsneshérað: Þrifnaður fer batnandi ár frá ári og húsakynni. 4. Mataræði. Læknar láta þessa getið: Borgarfjarðarhérað: Viðurværi manna virðist yfirleitt ekki vera hejipilegt. A það benda meltingarkvillarnir, sem eru svo almennir. Nýmeti er ekki borðað nema fáa dag'a af árinú hér upp til sveita, en saltur og súr matur allt of mikið, og oft leggja menn sér morkna eða jafnvel úldna fæðu til munns. Kjöt af sjálfdauðum skepnum (pestarkjöt o. s. frv.) er víðast borðað með beztu lyst, að því er sýnist, en vel verkað hrossakjöt, sem er góð og' holl fæða, vilja margir ekki sjá. Þó er þetta ef lil vill smáLt og smátt að lagast. Kálmeti sést varla borðað, og er það leitt, þó að garðrækt sé heldur að aukast smámsaman. Akureyrarhérað: Lifnaðarhættir héraðsbúa eru svo sem ég hef fyrr Iýsl í skýrsl- uin niínuni. Helzta breyting er sú, að fleiri og fleiri setjast að í þurrabúð við sjávar- síðuna, bæði hér í bænum og út með firði. Þetta leiðir til þess, að víða er lílið um mjólk handa börnum. Og sennilega er matarhæfi o. s. frv. öllu verra á slíkum býlum en áður var í sveitinni. Reykdælahérað: Næringarskortur er enginn, en fæðan ekki sem hollust mikinn tíma ársins, þegar ekki fæst nýmeti. Verður þá löngum að notast við geymda fæðu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.