Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Side 71
(59
1903
13. Lungnabólga (pneumonia crouposa).
Nokkru færri voru skráðir með lungnabólgu (pn. croup.) en árið áður (260 nú,
306 þá), en eitthvað varð hennar vart í flestuin héruðunum. Þó er hennar hvergi
getið í aðalskýrslunum, svo að neitt sé á að græða fram yfir þá vitneskju, sem fæst i
inánaðarskránum.
14. Kvefsótt (bronchitis incl. pneunionia catarrhalis).
Kvefsótt var enn tíð. Nokkru færri voru að vísu skráðir en árið áður (1635 nú,
1811 þá), en þá hefur að Iíkindum allmargt af kíghóstasjúklingum verið talið meðal
kvefsóttarsjúklinga (sbr. Heilbrigðisskýrslur 1902). Nú liafa sennilega verið minni
brögð að því, en hefur þó komið fyrir, 1. d. í Síðuhéraði. Sumt al' þeim, sem talið er,
að hafi dáið úr kvefsótt, hefði og átt að telja dána úr kíghósta, því að kveflungabólg-
an, sem reið þeim að fullu, hefur verið fylgisjúkdómur kíghóstans (sbr. kaflann um
kíghóstann í Reykjavíkurhéraði).
Læknar láta þessa getið:
ísfiarðarhérað: Bronchitis (kvefsótt) 89 tilfelli, mörg allslæm og lengi að batna.
Húsavikurhérað: í kvefsóttum hel'ur óvenjulega oft komið fyrir hið svonefnda
pseudocroup á börnuin. Ekkert barn hefur þó dáið al' því. Nú um áramótin hefur
gengið vont kvef, einkum á börnuin, með kveflungnabólgu á suinum.
Síðuhérað: Kvefsótt (tracheo-bronchitis) gekk i börnum framan af árinu, eink-
um í Fljótshverfi. Hóstinn var ákafur, og köstuðu börnin oft upp á eftir hóstaköst-
unum. í desember dóu 2 gamalmenni, yfir sjötugt, úr pneumonia catarrhalis.
15. Kverkabólga (angina tonsillaris).
Nokkru fleiri voru skráðir með kverkabólgu en árið áður (553 nú, 491 þá). Að-
eins 2 læknar minnast á hana í aðalskýrslum, en þeir láta báðir í ljós grun um, að
sumt af sjúklingunum hafi raunar haft barnaveiki. Þeir segja svo:
Skipaskagahérað: Kverkabólga gerði venju fremur vart við sig á árinu. Alls hef
ég skrifað hjá mér 22 tilfelli, er ég' vissi af, en því miður sá ég' þau ekki öll. Ef til vill
hefur eitthvað af þeim verið væg diphtheritis, sérstaklega hafði ég 1 bæ grunaðan.
Þar fengu 4 börn veikina, og voru að sögn sum þeirra þungt haldin, en mín var
aldrei vitjað þangað.
Síðuhérað: Kverkabólga (angina tonsillaris) gerði vart við sig í byrjun og við
lok ársins. 1 af tilfellum þeim, er komu l'yrir í desember, hið eina, sem endaði með
dauða, sýndist vera barnaveikiskennt (diphtheritis). Það var drengur, 6 ára, sem var
að öðru leyti óhraustur. Ég bannaði samgöngur við bæinn og' lét sótthreinsa. Varð
ekki vart við neina hálsveiki eftir það neins staðar.
16. Magakvef með sótthita (febris gastrica s. continua).
Miklu færri voru skráðir en næstu ár á undan, bæði þau ár rúmlega 60 hvort
árið, en þetta ár 35. Af þeim dóu 2. Mun þetta langoftast hafa verið væg taugaveiki,
eins og að undanförnu.