Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Page 80

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Page 80
1903 78 þó fjarri, að ekki sé margt, sem laga mætti, þó að efnin sén lítil, ef önnur skilyrði til þess væru fyrir hendi. Gólfin gætu t. d. verið hreinni og fötin og húsbúnaðurinn en viðast hvar er. Kláða og' öðrum óþrifum á mönnum mætti útrýma, og maturinn gæti verið skynsamlegar samsettur, geymdur og matreiddur og verið þrifalegri. Vatnsbólin gætu verið betri og á heppilegri stöðum en nú er, og ekki þyrftu hund- arnir að vaða am allan bæinn, eða annar hver maður að hrækja nærri því hvar sem hann er staddur. En til þess að laga þetta allt og annað, sem aflaga fer, þarf reyndar líka fé eins og til bygginganna. Það þarf að breyta hugsunarhættinum, ala upp æsku- lýðinn svo, að hann fái smekk fyrir hreinlæti og innri hvöt lil að lag'færa það, seni ábótavant er, og' þekkingu til þess. Reykhólahérað: Húsabyggingarnar, torfbæirnir illa hyggðu, eru það, sem að er í Reykhólahéraði. Þeir eru sá heilsuspillir með rakanum, veggjasúrnum og óþrifun- iiiii, sem þeim fylgir, að miklu nemur og líklega verður seiut ráðin bót á. Nauteyrarhérað: Þótt því verði ekki neitað, að hreinlæti og allir hollustuhættir eru fjarri því að vera í sem æskilegustu ástandi, þá er víst ekki öllu verra hér en við- ast annars staðar. Húsakynni eru allvíða mjög óhentug, þröng' og' loftill, en þó eru mjög' margir bæir ágætlega hýstir, og fer þeim fjölgandi. Vatnsbólum er víðast hvar mikið ábótavant, aðeins notaðir opnir lækir eða ársprænur. Akureyrarhérað: Það er mikils verð framför, að vatnsveiting er komin í flest bæjarhús hér í stað vondra og illa hirtra brunna. Næsta sporið verður sennilega skólpveiting frá öllum húsum, sem enn þá er í ólagi. Þó eru það allmörg hús, sem leiða alll skólp í vönduðum, loftheldum rennum í burtu, útbúnum með þéttum vatns- lásum. Bæði vatns- og skólpveiting innleiddi ég' hér í bænum fyrstur inanna. Síðan hafa aðrir tekið hana upp. Vopnafjarðarhérað: Til framíara í heilbrigðislegu tilliti má telja það, að vatns- leiðsla í lokuðum pípum hefur verið lögð í 3 hús á Vopnafirði. Vatnið er tekið í safn- brunni uppi í brekkunni fyrir ofan kauptúnið. Því verr er vatnssafnið svo litið, að það reiknast til að nægja 4—5 húsum, en ekki meir. í Hofsprestakalli liafa nýlega verið byggðar 2 kirkjur, og í þeim eru ofnar, er hitaðir eru á undan hverri opinberri guðsþjónustugerð, et' þörf krefur. Mýrdalshérað: Hibýli manna eru stórum að batna, og fer mönnum árlega fram í því að byggja betur yfir sig en áður; en því miður vill sóðaskapurinn elta þá inn í timburhúsin líka, ekki síður en inn í moldarkofana, og þótt húsin liti þrifalega út að utan, eru þau sum sem „kalkaðar grafir“ að innan. Loftleysið er víðast sama og í moldarkofunum, því að ekki er verið að hafa gluggana of marga á hjörum; að sjá glugga opinn — jafnvel á sumardegi — það mætti heita undur! Veg'na kuldans á vetrum situr vanalega allt heimilisfólkið í einu og' sama herbergi, þótt jiröngt sé; stundum liggja þar líka sjúklingar inni, t. d. með brjóstveiki. Er ekki alltaf spurt, hvar skyrpa megi út úr sér þvi, sem upp er hóstað, því að hrákadallar eru sjaldnast til á bænum, og' þótt til væru, þá held ég, að fólki íuundi seint lærast að nota þá, að minnsta kosti ekki á meðan það sjálft finnur ekki lil hins viðbjóðslega við hráka- klessurnar eða rekur sig beint á hættuna, sem af þeim getur hlotizt. Vestmannaeyjahérað: Húsakynni og þrifnaður fara stöðugt batnandi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.