Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1904, Qupperneq 86
1903
84
Sjúkrahús 1903.
Frá fyrra ári Ivomnir á árinu Sjúklinga 22 ci s « 09 Oánir Legu- | dagar
St. Joseplis sjúkrahús í Reykjavík 18 221 239 18 7697
Sjúkrahúsið á Patreksfirði — — x)13 1 —
— - ísafirði — — 2) 36 6 907
— - Akureyri 4 176 180 8 4556
— - Seyðislirði — — 28 1 603
— - Fáskrúðsfirði3) . . 30 30 — 583
Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi 61 11 72 9 22692
Framli. af 79. siðu.
lengri tíma. Hirðing á ungbörnum er auðvitað nokkuð mismunandi, og fer það eftir
því, hvernig efnahagnum er varið, en þetta lagast þó með ári hverju.
Ólcifsvíkurhérað: Mæður hafa hér víða börn sin á brjósti, þó að ekki sé eins
mikill áhugi á því hér, eins og æskilegt væri, þar eð barnasjúkdómar eru hér almenn-
ari en víða annars staðar, og það, að mínu áliti, mest vegna þess, að börnin hafa oft
óhentuga fæðu og' illan aðbúnað.
Þingeyrarhérað: Það sýnist vera að „ganga úr móð“ að hafa börn sín á brjósti
hér sem annars staðar, og eru þess vegna meltingartruflanir mjög algengar í börnum.
Nauteyrarhérað: Fremur er það sjaldgæft, að konur hafi börn sin á brjósti. Geri
ég það, sem ég' get, til að koma þessum skaðlega óvana af, og geri ég mér von um, að
þetta geti lagazt smátt og smátt, einkum ef yfirsetukonurnar gera sitt til að kippa
þessu í lag.
Reykdælahérað: Margar mæður hafa börn sín á brjósti, en nokkuð er hér af
taugaveikluðum konum, sejn álita, að þær þoli ekki að hafa börn sín á brjósti og
börnin hafi ekki gott af mjólkinni.
Vopnafjarðarhérað: Meðferð ungbarna er allgóð, en margar mæður, sem gjarna
vilja legg'ja börn sín á brjóst, treystast ekki til þess vegna vinnufóiksskorts, sem er
að verða tilfinnanlegri með hverju ári, en, eins og skiljanlegt er, tefur það móðurina
frá öðrum störfum að hafa barn á brjósti.
Mýrdalshérað: Telja má sem undantekningar, að mæður hafi börn sín á brjósti.
Það gera ekki einu sinni tómthúskonur í Vik, bláfátækar; þær nenna því hreint og
beint ekki og vilja því heldur kaupa mjólkina; má nærri geta, að það kemur tals-
vert niður á börnunum, því að ekki er keypt nema sem allra minnst. Meðferð á börn-
’) 3 af sjúklingunum voru útlendingar. !) 13 af sjúklingunum voru útlendingar. s) Sjúkrahúsið
aðeins opið ^/s— 31/s. 26 af sjúklingunum voru útlendingar.