Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Qupperneq 105
— 103 —
1953
15. Asthma.
Kleppjárnsreykja. 2 tilfelli.
Borgarnes. Alltaf nokkuð áberandi,
en helzt i skefjum með symptomatica.
Sjaldan hægt að tala um lækningu,
t- d. með því að leggja niður sérstaka
fæðutegund. Oft hefur mér gefizt vel
pulvis fumealis stramonii, og reynd-
ar hef ég stundum furðað mig á því,
l>egar mér hefur verið sagt, að það
hafi ekki verið reynt fyrr en eftir
margra ára veikindi og vandræðaá-
stand. Það er eins og okkur gleymist
stundum, að það, sem gamalt er, getur
hka stundum verið gott.
Ólafsvíkur. 3 tilfelli.
Flateyjar. 1 tilfelli.
Hólmavíkur. 4 sjúklingar. 1 maður
°ft slæmur, hin tilfellin væg.
Hvummstanga. 4 sjúklingar, hinir
sömu og áður.
Blönduós. Ekki óalgeng í sambandi
við heymæði eða ofnæmi fyrir hey-
ryki. Kona ein á sextugsaldri hefur
11 ni áratuga skeið fengið öðru hverju
ffijög slæm asthmaköst, sem standa í
marga daga og varna henni þá svefns.
Bóndi um sextugt fær einnig öðru
hverju slík köst, jafnvel þótt hann
komi ekki i hey. Bóndi sá, er ég gat
Uln i síðustu skýrslu, hefur aftur á
nioti verið stórum betri, síðan hann
yar hér á spítalanum í pensilínmeð-
ferð fyrir ca. 2 árum.
Hofsós. Nokkuð algengur sjúkdóm-
ur> einkum á miðaldra karlmönnum
ug eldri, sem mikið hafa þurft að vera
i heyryki um ævina. Flestir eru við
þolanlega líðan á sumrin, en versnar,
Þegar kólnar að á vetrum og gegning-
ar byrja. 12 ára drengur hefur undan-
tarin ár verið þjáður af kvilla þess-
um. Hann hefur aldrei fengið kast
utan heimilis síns, og virðist allt
henda til, að hann hafi ofnæmi fyrir
einhvers konar ryki i stórum og göml-
Um hæjarhúsum, þar sem hann er
æddur og uppalinn. Nú er nýtt ibúð-
arhús i smiðum, og er fróðlegt að vita,
hvort það breytir einhverju um gang
sJukdómsins.
Breiðumýrar. 4 sjúklingar, sem ég
^t.um. 1 þeirra, kona á fimmtugs-
afuri, fékk slæman status asthmaticus
á árinu. Annar þessara sjúklinga,
bróðir konu þessarar, er lítt vinnufær
vegna þessa, en hinir 2 slarkfærir.
Nes. Sömu sjúklingar og áður. Á-
stand óbreytt að kalla.
Búða. 1 nýr sjúklingur bættist við
á árinu.
16. Avitaminosis.
Rvík. Barn á fyrsta ári lézt úr bein-
kröm. Lungnabólga var hin beina dán-
arorsök.
Borgarnes. Hve mikið af alls konar
verkjum og vanlíðan kann að vera
avitaminosis, veit ég ekki, en miklu
oftar en ég hefði trúað fyrir fram
telur fólkið sér batna af vitamíngjöf,
sem si og æ verður að grípa til, ef
fólkið á ekki að æða til Reykjavikur
og fá þar svo nákvæmlega sömu með-
ferð með ærnum kostnaði fyrir sjálft
sig og sjúkrasamlög. Sem betur fer,
virðist árangur oft meiri en vænta
mætti af svo lítt rökstuddri meðferð.
Ólafsvíkur. 22 tilfelli. Erfitt er að
afla nýmetis að vetrinum vegna
strjálla samgangna og fæði því senni-
lega vítamínrýrt. Taka börn flest lýsi
með glöðu geði og verða áberandi
gráðug í hráar gulrófur, þegar liður á
veturinn.
Flateyrar. Sjúklingunum, sem eru á
ströngum diet, alltaf gefið nokkuð af
B- og C-vítamíni, sömuleiðis sjúkling-
um með handadofa og blóðskort, eink-
um Súgfirðingum.
Árnes. Fann einkenni riboflavin-
skorts hjá einu barni, og batnaði því
vel við riboflavíngjöf. Hef ekki orðið
var við beinkröm í ungbörnum. En á
2 unglingum fann ég merki gamallar
beinkramar (fuglsbrjóst á báðum, og
vottaði fyrir Harrisons-sulcus á öðr-
um). 1 skyrbjúgstilfelli fann ég, og
batnaði það vel við C-vitamíngjöf.
Töluvert virðist bera á hypovita-
minosis, enda er fæðið einhæft.
Hvammstanga. Tel mig ekki hafa
séð nein greinileg einkenni um víta-
mínskort, enda er fæði fólks sæmilega
fjölbreytt og gott. Börn fá yfirleitt
lýsi, og margir sjúklingar, enda full-
orðnir líka, taka lýsi. Ávextir hafa
fengizt hér í verzlunum öðru hverju.
Garðmatur var og rikulegur vegna