Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Side 129
— 127 —
1953
°g þar sem nokkur blæíSing var og
konan hitalaus, var keisaraskurSur á-
kveðinn. Rétt á eftir kemur massiv
blæðing, svo að konan er talsvert
shockeruð, þegar operatiónin byrjar.
Páll Kolka læknir kom mér til aðstoð-
av> °g gerði hann skurðinn. Barnið
aáðist ekki lifandi, en konan hresstist
bráðlega eftir macrodexgjöf, og heils-
aðist henni vel á eftir. Episiotomia
var gerð tvisvar, annað skiptið við
langvarandi fæðingu og stíft peri-
neum á primipara. 1 hitt skiptið var
gerð episiotomia við tangarfæðingu
á secundipara; var höfuðið komið
alveg niður, en fæðing virtist stöðnuð.
Töng var mjög auðveld, og blæddi
Ptið bæði þá og eftir á. Heilsaðist
konunni vel fyrstu dagana, en á 4.
degi var þvi veitt athygli, að konan
var orðin óeðlilega föl. Blæðing var
þó engin, svo að séð yrði. Ágerðist
þetta óðum, og næsta dag var Sahli
tæplega 25%, og hrakaði konunni
sýnilega. Var þá í skyndi leitað eftir
óonor, og er hann var fundinn, fékk
bún blóðgjöf, 500 ccm. Hresstist hún
við það og hélt svo áfram að batna.
Engin orsök fannst til blóðleysisins
(haemolysis? af einhverjum ástæð-
uni). Þenna dag var hér læknafundur,
ug naut ég góðrar aðstoðar yfirlæknis
Olafs Þorsteinssonar við blóðgjöfina.
Aðra tangarfæðingu hafði ég einnig
bjá secundipara. Hafði fyrra barnið
einnig verið tekið með töng. Heilsað-
ist móður og barni vel. Einir tvíburar
jæddust hjá secundipara úr Hofsós-
heraði. Konan var með praeeclamp-
siu> en hafði ekki leitað læknis fyrr
en rétt fyrir fæðingu. Var hún á
sjúkrahúsinu 3 daga fyrir fæðinguna.
Oekk fæðingin vel, og heilsaðist kon-
unni vel á eftir.
Hofsós. Undanfarin ár hafa fæðing-
ar yfirleitt gengið eðlilega. En nú brá
svo við á þessu ári, að slikt mátti
heita undantekning. Öllum konunum
heilsaðist þó vel á eftir. Ég var sóttur
n 16 sængurkvenna á árinu, og var
eðlileg fæðing aðeins hjá 4 þeirra. 2
engu barnsfararsótt, önnur á 2., hin
a, degi eftir fæðingu. Læknir var
u ki viðstaddur fæðingarnar. Batnaði
ouunum fljótt og vel af pensilíni og
aureomycíni. 2 konur byrjuðu fæðingu
með háum liita vegna pyelitis. Hjá
annarri þeirra var sitjandafæðing, og
gekk allt vel að lokum, hin fæddi fyrir
tíma, og dó barnið skyndilega 4 klst.
eftir fæðingu. Fótafæðing var hjá 2
konum. Hjá annarri þeirra var lækur
fallinn fram, púlslaus, fóstrið dáið 1
—2 klst. fyrir fæðingu. Hjá hinni,
sem var 28 ára primipara, var fóstrið
dáið 2—3 klst. fyrir fæðingu. Þegar
það fæddist, kom í Ijós, að lækurinn
var margvafinn um háls barnsins og
þess vegna svo stuttur frá fylgju, að
ekkert var upp á að hlaupa, er fóstrið
fór að ganga niður, enda var lækur-
inn teygður i mjóan streng. 32 ára
fjölbyrja fæddi hálfdautt fóstur, sem
tókst þó að lífga. Var það sitjandafæð-
ing og barnið fullburða, en hafði pes
equino-varus vinstra megin og auk
þess einn fingur krepptan. Hjá 35 ára
fjölbyrju var fóstrið í skálegu, bar öxl
að, og var lækur fallinn fram, púls-
laus, fóstrið dáið. Þar sem fóstrið var
stórt (4 kg) og allt legvatn runnið
burt, tókst með engu móti að venda
eða rétta fóstrið í höfuðstöðu. Var
það því limað frá konunni. Heilsaðist
henni furðu vel á eftir. Föst fylgja
var hjá 31 árs fjölbyrju. Fylgjuna
þurfti að sækja með hendi. Konu úr
Sléttuhlið flutti ég á Sjúkrahúsið á
Sauðárkróki nokkrum dögum fyrir
fæðingu. Hafði hún praeeclampsia og
gekk með tvibura, mjög stóra (3,5 og
3,6 kg).
Ólafsfj. Engar meira háttar aðgerð-
ir. Eina konu sendi ég til Siglufjarðar.
Virtist fæðing alveg strönduð eftir allt
að 2 sólarhringa. Barn var mjög stórt.
Fæddi þar með erfiðri töng eftir ca.
4 daga.
Dalvikur. Ég var viðstaddur sem
svarar 3. hverja fæðingu. 1 barn fædd-
ist vanskapað (spina bifida, með
snúnum og krepptum neðri útlimum);
var lagt í sjúkrahús og dó þar á 3.
mánuði. Annað vanskapað barn (blue
baby) dó fárra klukkustunda gamalt.
Grenivikur. 1 eitt skipti var fylgja
mjög föst, virtist gróin við uterus, og
varð að losa hana með hendi. Abort
3 mánaða. Orsök ókunn.
Dreiðumýrar. Tvívegis þurfti að