Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Side 130
1953
128 —
losa fylgju meS hendi. Gekk það mjög
erfiðlega í annað skiptið, þvi að pla-
centa var þar accreta á parti. Ekki
veruleg eftirblæðing og enginn hiti.
Einu sinni var mín vitjað til konu,
sem fæddi a. m. k. mánuði fyrir tíma,
og hafði ekki náðst til ljósmóður.
Þetta var sitjandafæðing, og þegar ég
kom að, var barnið komið upp að öxl-
um og búið að vera svo i nokkrar mín-
útur. Ég dró það fram í skyndi, enda
auðvelt verk, þar sem það var aðeins
8 merkur. Það var flutt á sjúkrahús á
Húsavik og dafnaði vel. Konan fékk
mikla eftirblæðingu og var lengi að
ná sér, en heilsaðist þó vel á endan-
um. Aðrar fæðingar voru tiðindalitlar.
Kópaskers. Kona var flutt i flugvél
til Reykjavíkur. Hafði hún verið með
jóðsótt í 2 sólarhringa heima, og sat
kollurinn í efra grindaropinu. Konan
var orðin mjög þreytt og máttfarin.
Var nú fenginn flugbátur til að sækja
hana, og átti hún að fara í sjúkrahús
á Akureyri. En í lendingu þar rakst
flugvélin á dufl, og féll sjór inn kol-
blár. Fyrir snarræði flugmannsins
tókst að komast aftur á loft, og var
lent á Reykjavíkurflugvelli. Fæddi
konan strax eftir komuna á fæðingar-
deild Landsspítalans. Hjá konu á
Raufarhöfn var fóstur í andlitsstöðu.
Skip kom, er ég hafði nýlokið skoð-
un, og varð það að ráði, að konan
fór með því i sjúkrahús á Húsavík,
og þar var gerð vending. Árið áður
hafði ég gert vendingu hjá þessari
konu af sömu ástæðu. Hjá þriðju kon-
unni var fóstur mjög stórt og dautt,
líklega fyrir nokkrum dögum. Hún var
flutt í bifreið til Húsavíkur í sjúkra-
hús. Einu sinni var mín vitjað vegna
fósturláts, og gekk það eftirkastalaust.
Ung stúlka á Raufarhöfn dó úr
eclampsia gravidarum. Veiktist hún
skyndilega og fyrirvaralaust. Ekki
hafði hún látið athuga heilsufar sitt
áður, svo að mér sé kunnugt um. Ég
var við fæðingu hjá annarri konu, sem
gat ekki náð til Ijósmóður í tæka tið.
Var þvi sóttur læknir til Þórshafnar
á báti, enda sýnt, að það yrði fljót-
legra, þar sem ófært var bifreiðum
um vegi. Var læknir hjá konunni, þar
til hún andaðist, tæpum sólarhring
eftir að hún veiktist. Fæðing var ekki
byrjuð.
Bakkagerðis. 3 fósturlát á árinu;
þurftu engrar hjálpar við. 34 ára
primipara hafði praeeclampsia, en
ekkert alvarlegt varð úr þvi. Einu »
sinni þurfti að losa fylgju með hendi.
Konan náði sér vel, þrátt fyrir all-
mikla blæðingu.
SeyðisJJ. Flestar konur fæddu i
sjúkrahúsinu, enda Ijósmóðir þar
starfandi sem aðstoðarhjúkrunarkona.
Öllum heilsaðist konunum vel. 1 barn
dó eftir rúma 2 sólarhringa. Fullburða
barn, virtist fyrst eðlilegt, en byrjaði
fljótt að blána og verða lélegt, þrátt
fyrir stimulantia, og sofnaði út af.
Kunnugt um 2 fósturlát.
Nes. Einu sinni varð læknir að
sækja fylgju.
Bnða. Framdráttur gerður tvisvar
(fóta- og sitjandafæðingar). Nokkrum
sinnum þurfti að herða á sótt. Föst
fylgja tvisvar. Kunnugt um 2 fóstur-
lát. 1 barn fæddist vanskapað. Var
með spina bifida og microcephalia.
Dó stuttu eftir fæðingu.
Djápavogs. Ein tvíburafæðing,
primipara. Fæddist fyrra barnið,
drengur, áður en ég kom. Leið kon-
unni vel, og ætlaði ég að biða eðli-
legrar fæðingar. Leið 21 klukkustund.
Var konan þá orðin kvíðin og óróleg.
Svæfði ég hana þá og sótti barnið,
sem lá i heilum belgjum, og var sitj-
andi niður. Gekk allt vel og heilsaðist
konu og barni vel á eftir. Abortus
incompletus hjá einni konu. Gerð
abrasio.
Kirkjubæjar. 1 andvanafæðing. Ann-
ars eðlilegar fæðingar, og allar mæður
lifðu.
Vestmannaeyja. Einu sinni gerður
keisaraskurður vegna þröngrar grind-
ar. Þrisvar lögð á töng, einu sinni
vegna þröngrar grindar og tvisvar
vegna sóttleysis. Öllum konunum
heilsaðist vel. Sjö sinnum var gerð
aðgerð vegna fósturláta á sjúkrahús-
inu hér. Abortus provocatus ekki
gerður á árinu.
Eyrarbakka. Oftast ekkert að, stund-
um sóttleysi. Einu sinni tangarfæðing.
Einu sinni snúið fóstri.
*