Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Page 138
1953
136
Sauðárkróks. 2 skráðir, annar
hóndi, sem skyndilega varð óður. Var
lionuin komið á Klepp, og varð hann
brátt jafngóður. Hinn er 15 ára dreng-
ur, sem verið hefur í heimahúsum.
Hann fæst ekki til að vinna neitt og
talar næstum aldrei orð, en er rólegur
og má kallast apathiskur. Um tíma
neitaði hann að borða; var þá tekinn
hér á sjúkrahúsið, og lagaðist það.
Hofsós. Geðveiki og geðveiklun alls
konar algengur sjúkdómur. 5 sjúkling-
ar sendir á árinu til lækninga til
Reykjavíkur. 3 þeirra komu aftur
heim fyrir áramót og virðast nolckurn
veginn albata. Fengu þeir allir elec-
troshockmeðferð.
Ólafsfj. 1 kona á Kleppi. Önnur
heima, sem var þar áður, bóndinn flú-
inn burtu og hún darkar ein í húsinu.
Er auk þess plága í næstu húsum.
Þriðji sjúklingurinn, karlmaður, er
dágóður, heldur áfram barngetnaði,
sem ekki er efnilegt, þar sem frúin
er með afbrigðum vitgrönn; var einu
sinni á Kleppi. Fjórði sjúklingurinn,
ókvæntur karlmaður, er endurskráður
nú. Var áður fyrr á Kleppi.
Grenivíkur. Roskinn maður, er var
á leið upp í Fnjóskadal, stanzaði hjá
kunningja sínum, brjálaðist þar, var
hér á sjúkraskýlinu um tíma, en þá
sendur suður á Kleppsspítala.
Breiðumijrar. Kona um fimmtugt
hefur haft greinilegan cyclus manio-
depressivus. Varð hámanisk. Er í geð-
veikraskýli á Akureyri.
Vopnafj. 3 nýir geðveikisjúklingar
skrásettir á árinu, allir nokkurn veg-
inn rólegir. 2 af kunnri geðveikisætt
hér í héraðinu og systkini. Einn þess-
ara sjúklinga var sendur á Klepp. Einn
lá lengi á Landakotsspítala, meðal
annars vegna nýrnasjúkdóms, en fékk
lítinn bata. Hinn þriðji var til rann-
sóknar hjá sérfræðingum í Reykjavík,
en án verulegs árangurs. Depressio
mentis 2.
Bakkagerðis. 60 ára kona er hér
geðveik. Getur sennilega talizt með
dementia senilis, þótt ekki sé hún
eldri. Hefur farið smáversnandi síð-
ustu árin og er nú alveg rugluð og
fremur erfið viðfangs.
Seyðisfj. 55 ára kona, sem lengi hef-
ur verið á geðveikraskrá, hefur nú
fengið bata við lobotomia, sem gerð
var í Reykjavík.
Vestmannaeyja. 1 geðveikur sjúk-
lingur dó á árinu, 2 batnaði, og 1 fór
á Klepp, en 1 nýr bættist við. Flest
er þetta fólk, sem nú dvelst heima í
héraði, litið veikt og vandræðalaust
að annast það hér.
Um fávita:
Hafnarfj. Fávitar nokkrir, og af
þeiin eru 3 vistaðir á hjúkrunarheim-
ilinu Sólvangi, sem tók til starfa í
nóvemberbyrjun.
Flateyjar. 2 mórónar, 1 idiót, sem
fluttist burt á árinu.
Hólmavíkur. 1 fáviti, áður skráður.
Hvammstanga. Fávís telpa í Bæjar-
hreppi, sem um getur í fyrra, komst
á hæli.
Sauðárkróks. Hinir sömu og áður.
Grenivíkur. Hinn eini fáviti, sem
hér hefur verið, er nú á fávitahælinu
í Kópavogi og unir sér þar vel.
Vopnafj. Enginn algerður fáviti er
í héyaðinu. Annar hinna vanþroska
manna, sem um getur í ársskýrslu
1953, varð hálfruglaður upp úr inflú-
enzu og hefur verið erfiður síðan,
sinnulítill og órólegur; þarf mikillar
umönnunar, sem heimilið er ekki fært
um að veita honum. Um tíma var
honum komið fyrir á geðveikradeild
sjúkrahússins á Akureyri. Foreldrun-
um líkaði ekki aðbúnaður hans þar
og tóku hann heim til sin aftur. Siðan
hefur ekki tekizt að ráðstafa honum.
Seyðisfj. Fávitar hinir sömu og áð-
ur, en auk þess hefur verið sett á
skrá 7 ára stúlka, sem er vangefin, en
tæplega hægt að kalla fávita. Stendur
til, að barninu verði komið fyrir á
hæli fyrir vangefin börn.
Nes. Miðaldra kona varð brjáluð
fyrra hluta ársins. Var flutt á Klepp
og dó þar skömmu siðar. Önnur kona,
sem greinilega hefur verið psychotisk
með köflum um margra ára bil, en
ekki er getið í skýrslum undanfarin
ár, er nú skráð.
Vestmannaeyja. Hinir sömu og í
fyrra.