Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 146
1953
— 144
Veslmannaeyja. Á árinu var lokið
við víðtæka viðgerS á sjúkrahúsinu
hér, sem staðið hefur yfir í mörg ár.
SíSasti áfanginn, sem lokið var i sum-
ar, var nýtt bárujárnsþak á allt húsið,
en áður hafði innanhússviðgerð farið
fram.
Keflavíkur. Nú loks, eftir langa og
stranga baráttu og fjárhagslega og
aðra erfiðleika, hillir undir farsælleg
endalok þessa máls. Tekizt hefur að
brýna hina 7 hreppa héraðsins svo,
að til samkomulags hefur leitt, og
vonir standa til, að sjúkrahúsið taki
til starfa á eða upp úr miðju næsta
ári. Er þá sjúkrahúsiS búið að standa
10 ár í byggingu, og er það öllu leng-
ur en vænta liefði mátt, jafnbrýn
þörf og er auðsýnilega fyrir það.
B. Sjúkrahjúkrun. Sjúkrasamlög.
Heilsuvernd.
Hjúkrunarfélög.
1. Hjákrunarfélagið Líkn í Reykja-
vík gerir svofellda grein fyrir störfum
sínum á árinu:
Árið 1953 hafði Hjúkrunarfélagið
Líkn 10 fastráðnar hjúkrunarkonur í
þjónustu sinni, en auk þess 2 hjúkr-
unarkonur frá 1. júní. Auk þess starf-
aði hjúkrunarkona i 4 mánuði að
berklaprófum á vegum berklavarn-
anna. Hjúkrunarkonurnar störfuðu 3
að berklavörnum, auk einnar í 7
mánuði, 4 við ungbarnaverndina, auk
einnar í 7 mánuði, og 3 við heimilis-
vitjanir til sjúklinga. Auk þess réð fé-
lagið til sín hjúkrunarkonu i sumar-
orlofum og á frídögum heimilishjúkr-
unarkvenna. ViS heilsuverndarstöðina
voru auk læknanna og hjúkrunar-
kvennanna starfandi 1 ljósmóðir, 2
afgreiðslustúlkur og 1 stúlka, sem sá
um ljósböð ungbarna, en þau eru
starfrækt frá 1. september til 1. júní.
FariS var í 6951 sjúkravitjun. MeS-
limir Hjúkrunarfélagsins Líknar eru
um 160. Tekjur félagsins voru kr.
896285,08 og gjöld kr. 807438,98. Ung-
barnaverndin flutti í hið nýja hús-
næði Heilsuverndarstöðvar Reykjavik-
ur i lok septembermánaðar. Enn
fremur var opnuð ný ungbarnavernd-
arstöð i hinum nýbyggða Langholts-
skóla á þessu ári. Stöðvunum bárust
eins og að undanförnu gjafir í pen-
ingum, lýsi og fatnaði, að verðmæti
ca. kr. 4000,00, sem útbýtt var til þurf-
andi fólks.
2. Hjúkrunarfélag Ólafsvíkur. Rek-
ur röntgentæki til gegnlýsinga. Er
tækið í umsjá héraðslæknis.
3. Ftauðakrossdeild Akureyrar
(starfsskýrsla fyrir árið marz 1953—
marz 1954). Starfsemi deildarinnar
lík og áður. Deildin annaðist sjúkra-
flutninga með sjúkrabifreið sinni, en
hafði auk þess einnig afnot af annarri
sterkri bifreið, sem gripið var til í
nokkrar sveitaferðir, þegar vont var
færi og vafasamt eða ómögulegt að
komast í bifreið deildarinnar. Voru
alls farnar 177 ferðir, þar af 109 inn-
anbæjar, en 68 út um sveitir. Halli á
rekstri bifreiðarinnar varð á árinu kr.
2429,97, en auk þess var bifreiðin af-
skrifuð um kr. 7000,00, svo að kostn-
aður alls varð því kr. 9429,97. Ljósa-
stofan var rekin eins og áður. Nutu
ljósbaða alls 108 í 1692 skipti. Var
þetta heldur minni aðsókn en árið
áður. Stafar þessi minnkandi aðsókn
sennilega af því, að undanfarið hefur
verið flutt inn mjög mikiS af Ijósa-
lömpum, sem margir hafa keypt sér
og nota heima. Eru þetta að vísu þæg-
indi fyrir fólkið að þurfa ekki að
hafa fyrir þvi að fara með börnin í
ljós eitthvað út i bæ, en sá galli er
aftur á þessu, að margir þessir lampar
eru mjög litlir og misgóðir og verk-
unin oft ótrygg. Halli á rekstri Ijósa-
stofunnar varð á árinu kr. 5566,14, en
að vísu eru þar í taldir varahlutir,
sem keyptir voru seint á árinu fyrir
kr. 2856,70 og eru óeyddir. Hins veg-
ar er ekki þarna tekin með afskrift
af ljósatækjunum, kr. 2500,00, sem
næstum vegur þá upp á móti vara-
hlutunum. Deildin beitti sér fyrir fjár-
söfnun til kaupa á sjúkraflugvél, sem
staðsett væri á Akureyrarflugvelli og
annaðist sjúkraflug um Norður- og
Austurland fyrst og fremst. Var í
þessu skyni stofnaður sjúkraflugvélar-
sjóður með kr. 3000,00 framlagi frá