Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 164
1953
— 162 —
eða súrheysgjöf, skal ósagt látið, en
sumir kalla þaS súrheysbragS. Líka
getur það komið af þvi, að kýr eru
nokkuð kvillasamar og þvi talsvert
um lyfjagjöf.
Grenivíkur. MjólkurframleiSsla svip-
uð og undanfarin ár. Mjólkin send til
Akureyrar þá tíma árs, sem þangað er
fært. Færri hafa nú kýr hér á Greni-
vík en áður, svo að tíma úr ári er
mjólk hér af skornum skammti.
Seyðisfj. í sjálfum bænum fer kúm
fækkandi með hverju ári, og er það
að ýmsu leyti gott, því að mikil óþrif
fylgja kúahaldi við slæmar aðstæður.
EitthvaS er þó enn selt af mjólk, sem
framleidd er i bænum. 2 mjólkurbúðir
eru nú reknar í kaupstaðnum. Enginn
skortur hefur verið á mjólk síðast
liðið ár, og vonandi verður svo fram-
vegis. Mjólk hefur verið flutt úr Hér-
aði bæði sumar og vetur. Eru það
snjóbilar, sem komnir eru til sögunn-
ar og bjarga þessu við, því að ekki
hefur framleiðslan aukizt í firðinum.
Ekki mun þó allt af þessari mjólk
fullnægja þeim heilbrigðiskröfum, sem
gera verður til sölumjólkur. Vonandi
stendur það til bóta.
Vestmannaeyja. ErfiSlega gengur að
koma mjólkursölu hér i viðunandi
horf, einkum að því er snertir að-
flutta mjólk, en vonir standa til, að
úr rætist i vor, jíannig að Mjólkur-
samsalan setji hér upp mjólkurstöð
með hæfilegu dreifingarkerfi og
mjólkin verði, þegar veður leyfir, flutt
daglega frá Þorlákshöfn.
7. Áfengisnautn. Kaffi og tóbak.
livík. ÁfengisvarnarstöS Reykiavíkur
tók til starfa 15. janúar 1953. Á tíma-
bilinu 15. janúar til 31. desember vorn
skrásettir þar 360 drykkjumenn. Flest-
ir þeirra leituðu aðstoðar af frjálsum
vilja, en fyrir hönd nokkurra komu
vinir og vandafólk. Auk þeirra, sem
skráðir voru, aflaði stöðin sér upp-
lýsinga um 89 aðra áfengissjúklinga.
StöSin hefur því á fyrsta starfsári sinu
aflað sér vitneskju um 449 drykkju-
menn. Skipting hinna skrásettu sjúk-
linga var þannig: Eftir kyni: Karlar
324, konur 36. Eftir aldri: Yngri en
20 ára: 6, 20—30: 78, 30—40: 145,
40—50: 86, 50—60: 34, 60—70: 7, 70
—80: 1. Eftir hjúskaparstétt: Ókvænt-
ir karlar: 126, ógiftar konur: 11,
kvæntir karlar: 143, giftar konur: 12,
fráskildir karlar: 51, konur: 9, ekkju-
menn: 4, ekkjur: 4. Börn þessara
drykkjusjúklinga eru samtals 416 inn-
an 16 ára aldurs. Starf Áfengisvarnar-
stöðvarinnar var fólgið i því, að sjúk-
lingar komu með reglu á stöðina til
meðferSar, og var hún höfð opin alla
virka daga, 2 tima á dag. Einnig fóru
læknar stöðvarinnar i 348 vitjanir til
sjúklinga og hjúkrunarkonur í 206
vitjanir. 45 sjúklingar voru lagðir inn
á hæli eða sjúkrahús, þar af 21 á Far-
sóttahúsið, 10 á Sólheima, 9 að Kleppi
og Úlfarsá, 4 á HvítabandiS og 1 að
Arnarholti. StöSin aðstoðaði marga
drykkjumenn við útvegun á vinnu og
húsnæði. I.æknar stöðvarinnar eru
þeir AlfreS Gíslason, sem jafnframt er
forstöðumaður hennar, og Kristján
Þorvarðsson. Mestan hluta ársins vann
1 hjúkrunarkona við stöðina, en 1.
október bættist önnur við.
Dorgarnes. Áfengisnautn töluverð og
hefur valdið og veldur einstaka heim-
ili þungum búsifjum. Órói og vand-
ræði af drykkjuskap gesta, einkum
aðkomumanna, var orðið svo til vansa
á almennum skemmtunum, að hér var
sett upp héraðslögregla, sem litur eftir
almennri reglu á skemmtunum og um-
ferð á vegum. Virðist eftirlitið hafa
nokkur áhrif. Nokkur blóðsýnishorn
hafa verið tekin eftir beiðni lögregl-
unnar úr bilstjórum, grunuðum um
ölvun við akstur, með samþykki við-
komandi manna. Kaffi er þambað,
tóbak brælt, önnur tóbaksnautn hverf-
andi.
Ólafsvikur. Áfengi notað nokkuð, ef
til vill í rífara lagi, og smáróstur
stundum, einkum á dansleikjum. Vind-
lingar mikið reyktir og fer vaxandi,
jafnvel af börnum innan fermingar,
og er það vandamál. Kaffi mikið
notað.
Búðardals. Áfengisnautn nokkur á
skemmtunum, einkum meðal yngra
fólks. AllmikiS ber á þvi fádæma
kæruleysi, bæði yngri sem eldri, að
vera drukknir við bílstýrið. Virðist