Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1962, Blaðsíða 107
— 105 —
1962
Rvík. Vitað er um 2 menn, sem likur eru til, að hafi veikzt vegna
óhollra vinnuskilyrða. Annar þeirra vann við að skera sundur plast-
teninga með rafmagnsþræði. Við þetta myndast gufa, en loftræsting var
léleg. Fljótt fór að bera á kláða í andliti, slappleika og' niðurgangi. Um
helgar dró úr þessum sjúkdómseinkennum. Loftræsting var bætt í verk-
smiðjunni, og frekari kvartanir hafa ekki borizt þaðan. Hinn maðurinn
vann við argonlogsuðu á ryðfríu stáli. Á stálinu var oft feiti, og við
logsuðuna myndaðist reykur og sterkja, sem lagði að vitum mannsins
undir logsuðuhjálminum. í ársbyrjun, er hann hafði stundað þetta starf
í tæpt ár, fór að bera á mikilli svefnþörf, máttleysi og höfuðverk, og
ágerðust þessi einkenni með vorinu. Enn fremur þurfti hann að ræskja
sig áberandi oft. Hann lét af þessu starfi 1. desember, og við læknis-
rannsókn um það leyti fannst ekkert athugavert. Brýnt var fyrir log-
suðumönnum við þetta starf að sjá fyrir nægri loftræstingu.
Stykkishólms. Ungur bóndi er mjög illa faxúnn af emphysema pul-
monum og bronchitis chronica, og allar líkur benda til, að hann verði
að hætta búskap fyrir þær sakir. Sjúkdóm hans virðist mega rekja til
atvinnunnar, þar sem honum versnar mjög, ef hann stundar gegningar
eða vinnur við hey. Ungur iðnaðarmaður fékk zinkeitrun af því að log-
sjóða málmhúðað járn.
Reykhóla. „Heymæði“ á mismunandi háu stigi mun vera algengur kvilli
hér, en yfirleitt ekki leitað læknis. Þó hef ég' skoðað 3 eldri menn með
mikið emphysema pulm., sem þola mjög illa heyryk. Tveir ungir menn
hafa leitað til mín vegna ofnæmis fyrir heyryki, sem kemur fram í aller-
giskri rhinitis og conjunctivitis.
Hofsós. Margir hafa heymæði á lágu stigi. Aðallega eru þetta mið-
aldra menn, allt bændur. Nokkrir eru svo slæmir, að þeir mega vart í
hey koma að vetrinum. Loftræstingu í hlöðum er víða mjög ábótavant.
Norður-Egilsstaða. Einn bóndi er að verða ófær að stunda atvinnu
sína vegna heymæði.
Austur-Egilsstaða. Einn bóndi er alger öryrki vegna heymæði.
Bakkagerðis. Tveir menn, sem fást nokkuð við búskap, hafa ofnæmi
fyrir heyryki og' eru með byrjandi emphysema pulmonum (chronic
farmer’s lung).
Víkur. Allmargir eldri bændur með heymæði.
F. Fötlun.
Töflur XV, XVI.
1. Fávitar. 2. Daufdumbir. 3. Málhaltir. 4. Heyrnarlausir. 5. Blindir.
Fávitar eru taldir 474, daufdumbir 94, málhaltir 51 (vantar úr Reykja-
vik), heyrnarlausir 138 og blindir 271. í Heyrnleysingjaskólanum í
Reykjavík voru 24 nemendur skólaárið 1962—1963.
Siðan tekið var að sinna málefnum fávita, hefur lengstum verið litið
14