Studia Islandica - 01.06.1940, Page 26

Studia Islandica - 01.06.1940, Page 26
24 ingum hennar.1) Hvers v.egna lá Hallfreðargata frá. Hallfreðarstöðum upp í Hrafnkelsdal? Hvaða erindi átti einhver Hallfreður þessa leið? Það gat vel verið nafnið á götunni, sem gaf höf. þá hugmynd að láta. Hrafnkel vera Hallfreðarson. Á svipaðan hátt hygg eg, að nafn Eyvindar Bjarna- sonar sé til komið. Ef það er tilbúningur, að Þjóstars- synir hafi v.erið til, Hrafnkell hafi verið hrakinn nið- ur í Fljótsdal o. s. frv., þá er Eyvindur og víg hans vitanlega líka skáldskapur. Hann ber þess líka sæmi- lega glögg merki. Hann hefur ekki einungis verið úti í Miklagarði, alveg eins og Þorkell leppur, á þeim tíma, sem mjög er efasamt, að nokkurir Væringjar hafi v.erið þar, heldur hefur hann líka skósvein að sið erlendra höfðingja. En þar sem voru örnefnin Ey- vindarfjöll og Eyvindardalur, fann höfundur í senn nafn á hann og staðfestingu sögu sinnar fyrir síðari kynslóðir. Eyvindardalur gengur austur úr Jökuldal, eftir honum rennur Eyvindará, og Eyvindarfjöll eru. nokkuru innar en vegurinn úr Fljótsdal að Aðalbóli> Þó að einhver Eyvindur hefði nú verið drepinn þarna uppi á heiðinni, væri mikið í borið að kenna alla þessa staði við hann. Miklu sennilegra er, að nöfnin sé gef- in neðan af Jökuldal, fyrst Eyvindardalur og Eyvind- ará, síðan fjöllin uppi á heiðinni. En þá er Ey vind- a r t o r f a. Nafnið er nú óþekkt, en hafi það nokk- urn tíma verið til, hefur það, eins og fleiri nöfn, sem eg kem síðar að, v.erið gefið eftir sögunni. Ef til vill 1) Hallfreðargötu þekkja menn enn, og nafnið er varla til- búið af höfundi sögunnar, þó að lýsing hans sé ónákvæm. Sjá. Safn II, 454. í þeirri ritgerð er bent á, að í 2. kap. sögunnar eigi að standa Fljótsdalsheiði f. Fljótsdalsheraði. Sama villa kemur fyrir tvisvar seinna í sögunni, þar sem sagt er frá þingreið Hrafnkels og brottrekstri frá Aðalbóli. En lík- legra er, að þetta sé afbökun í handritunum en villa frá hendi höfundar.

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.