Studia Islandica - 01.06.1940, Blaðsíða 48

Studia Islandica - 01.06.1940, Blaðsíða 48
46 Þorbjörn, Einar, Þorkell, Þorgeir. Með þessum 8 mönnum er taflið leikið, og þeim er öllum skýrt lýst. Þessi hófsemi í framtali manna er einstök í íslendinga sögu, jafnvel þó að Víglundar saga og Króka-Refs saga sé teknar til samanburðar, þar sem engin arfsögn var til þess að leiða höfundana í mannfræðilegar freistingar. Miklu ósparari er sagan á staðanöfn (örnefni). Þau eru 70 talsins. Venjulega er hlutfallið öfugt, manna- nöfnin miklu fleiri. En í Hrafnkötlu er lögð rækt við að telja fram örnefni og skýra þau, og er þess áður getið og eins hins, að fræðimenn, sem telja efni sög- unnar annars runnið frá sögusögnum, hafi í þessu at- riði þótzt finna merki höfundarins. Sumt af því, sem áður er tekið fram (í II. kafla), bendir til þess, að hann hafi ekki einungis haft gaman af örnefnum, heldur líka gagn. Hann sækir til þeirra efni, býr til persónur og atvik eftir þeim og getur svo vísað til þeirra til staðfestingar þessu efni. Því að auðvitað vildi hann, að sem mestur trúnaður væri lagður á sögu hans, eins og allir höfundar fornsagna, jafnvel fornaldarsagna.1) Og þetta hefur honum tekizt furð- anlega, allt til þessa dags. Örnefnaskýringarnar sýna, að þótt höfundur Hrafn- kötlu hefði aðaluppistöðuna jafnan skýrt í huga og kynni vel að takmarka efnið, er hann engan veginn smásmugull í sparsemdinni (sbr. líka hin óþörfu mannanöfn, einkum í 1. kap.). Nú skulu þess enn dæmi sýnd, að hann lætur fleira fljóta með en nauð- syn krefur. 1) Sbr. rit mitt um Snorra Sturluson, þar sem fáein dæmi þessa eru nefnd, 130, 135, 147—48, 150.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Studia Islandica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.