Studia Islandica - 01.06.1940, Page 49

Studia Islandica - 01.06.1940, Page 49
47 Sérstaks eðlis eru hinar lögfræðilegu skýringarr „Eigi er maðrinn alsekr, meðan eigi er háðr féráns- dómr, ok hlýtr þat at heimili hans at gera; þat skal vera fjórtán náttum eptir vápnatak. En þat heitir vápnatak, er alþýða ríðr af þingi“. „Villtu fara með Sámi ór garði á brott í prskotshelgi við bœinn ok heyja féránsdóm á grjóthól npkkurum, þar sem hvárki er akr né ,eng. Þetta skyldi í þann tíma gera, er sól væri í fullu suðri“. Á þessum stöðum er bersýnilega stuðzt við ritaða lögbók.1) Stundum koma fram skýringar á atferli manna og hugsunarhætti, sem virðast ekki nauðsynlegar, enda að jafnaði farið sparlega með slíkt í fornsögum: (Einarr) „þóttisk vita, at hann myndi fljótara yfir bera, ef hann riði heldr en gengi“. — „En við þann átrúnað, at ekki verði at þeim mpnnum, er heitstreng- ingar fella á sik, þá hljóp hann af baki til hans ok hjó hann banahpgg“. „Nú hefir hann sofnat síðan ok hefir réttan fótinn út undan fgtunum fram á fóta- fjplina, sakir ofrhita, er á er á fœtinum". „Af því lagði Hallfreðr karl inar efri gptur, þó at þær væri lengri“. Fleiri svipuð dæmi mætti nefna, einkum í samtölunum, sem senn verður vikið að. Þó að atburðalýsingar sögunnar sé ekki fyrirferðar- miklar, eru þær mjög skýrar og stundum jafnvel 1) Um lögfræði Hrafnkötlu er til ritgerð eftir Otto Opet, sem eg hef ekki náð til. Það efni get eg að mestu leitt hjá mér. Sögu- ritarinn flaskar á því að láta vígsmálið eftir Eyvind fara beint til alþingis (sjá 16. bls. að framan). Hann talar um, að dómur hafi verið settur á Lögbergi. Varla er þetta fáfræði, heldur hirðu- leysi: dómar fóru út frá Lögbergi, og þar var vigsökum lýst. Hefur þetta eitthvað ruglazt fyrir honum. Misskilningur á eðli goðavaldsins, mannaforráða, kemur fram í orðunum: „Lagði hann (Hrafnkell) land undir sik allt fyrir austan Lagarfljót“. — Ekki veit eg, hvað Finnur Jónsson hefur átt við, er hann sagði, að Hrafnkatla „indeholder adskilligt af vigtighed" um lög og réttarfar.

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.