Studia Islandica - 01.06.1940, Side 64

Studia Islandica - 01.06.1940, Side 64
62 af kveikju efnisins að þakka eldri sögum um sann- sögulegri atburði. Sámi er lýst með dálítilli kímni, ,en þó er höfundin- um þelgott til hans. Sámur er ekki smámenni, hann er djarfur og stórhuga, metur virðinguna mikils, er nógu stórlátur til þess að hafna gjöfum Þjóstarssona, þegar þeir neita honum um liðveizlu í sögulokin. En hann er ekki borinn til höfðingja. Upphefð hans er ekki annað en duttlungur örlaganna, sem hann kann ekki með að fara. Til þess skortir hann vitsmuni, raunsæi og samkvæmni. Þegar hann hefur borið sigur úr mál- unum á alþingi, er hann ánægður, þó að þessi sigur sé sýnd, en ekki reynd. „Beðit þykkir mér Hrafnkell hafa sneypu, er lengi mun uppi vera,----------ok er þetta við mikla fémuni“. Hann brestur hörku til þess að taka Hrafnkel af lífi, þegar hann hefur hann á valdi sínu, skilur það ekki, að hann getur aldrei verið óhultur fyrir Hrafnkeli eftir viðskipti þeirra. Honum fer við Hrafnkel líkt og Sturlu Sighvatssyni við Giss- ur í Apavatnsför. Það er ofgert og vangert í senn. Hann er varaður við: „muntu þessa mest iðrask, er þú gefr honum líf“. Sámr kvað þá svá vera verða“. Honum er þetta ósjálfrátt, enda talar Þorgeir síðar bæði um vizkuleysi hans og gæfuleysi, er hann minn- ist á það. Þorgeir hefur beðið hann að vera varan um sig, „því at vant er við vándum at sjá“. En Sámur kann ekki að ugga að sér. Hann fer laglega með völd sín, en hann vex ekki eins við ábyrgðina og Hrafnkell við mótlætið. Eins og þeim mönnum hættir við, sem stefna út yfir þau takmörk, sem þeim eru sett, brúar Sámur bilið milli drauma og veruleika með talsverðu yfirlæti. Að þessu hendir höfundur stundum gaman. Þorbjörn karl segir við Sám: „Þú ert hávaðamestr ór ætt várri“. Sámur þykist af lögkænsku sinni: „Styrk þurfum vit af hpfðingjum, en málaflutning á ek undir mér“. Hann.

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.