Studia Islandica - 01.06.1940, Side 79

Studia Islandica - 01.06.1940, Side 79
77 3iisk skriver“ o. s. frv.1) Er það furða, þó að Paul V. Rubow segi: „Man maa forbauses over de senere islandske filologers totale miskendelse af de- res forfædres digteriske genius og skabende evne“.2) Þessi orð Rubows get eg tekið undir af heilum huga, þó að eg sé ekki samdóma ýmsu öðru, sem hann held- ur fram um aldur og uppruna íslendinga sagna í grein sinni. Þær rannsóknir á efni íslendinga sagna, sem í raun og veru hefjast með ritgerð Konráðs Maurers um Hænsa-Þóris sögu, var haldið áfram í svipuðum anda af Birni M. Ólsen (einkum í ritgerð hans um Gunn- laugs sögu), en nú er loks reynt að þoka áleiðis í sam- fellu í sambandi við útgáfur Hins íslenzka Fornrita- félags, — hafa jafnan siglt milli skers og báru. Á báðar hendur hafa verið skoðanir manna, sem vildu leysa viðfangsefnið á einfaldara hátt. Annars vegar hefur verið rótgróin trú á traustleik og ágæti munn- mælanna, hins vegar, einkum í seinni tíð, afneitun þess möguleika, að munnmæli geti varðveitt nokkurt sögulegt efni í tvær til þrjár aldir. Rannsókn af því tagi, sem hér hefur verið reynt að gera á sannindum Hrafnkötlu, hlýtur að verða Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimska: í augum trúmannanna ræktar- laus árás á það, sem skylt sé að verja og fóðra í lengstu lög, þar sem afneitendurnir undrast þá ein- feldni að eyða orðum að því, sem fyrir fram megi vita, að sé uppspuni. En — úr því að hinir strang- dæmu sagnfræðingar hafa ekki fært þau rök fyrir skoðunum sínum, að þau hafi getað útrýmt þeim draumkenndu hugmyndum um munnlegar sögur, sem enn eru ríkjandi hjá sumum ágætustu fræðimönnum, getur það varla talizt þarfleysa að ræða málið ræki- 1) Litt. hist. II, 206—7; leturbreyting-in er mín. 2) Smaa kritiske breve, 11.

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.