Rit Mógilsár - 2013, Side 18
18 Rit Mógilsár 27/2012
Útdráttur
Ýmsar leiðir hafa verið reyndar til að
draga úr myndun rótarskota alaska-
aspar eftir fellingu. Algengasta
aðferðin er sennilega að hringbarka
öspina ári áður en hún er felld. Þetta
er þó ekki óbrigðult. Önnur algeng
leið er að nota plöntueitur sem borið
er á stubbinn í þó nokkrum styrk-
leika strax eftir fellingu. Þetta getur
gefið góða raun, en hefur þó sýnt sig
geta einnig stórskemmt eða jafnvel
drepið önnur aspartré í næsta
nágrenni, sem geta þá fengið eitrið í
sig í gegnum rótartengsl.
Aðferðin sem þróuð var í þessu
rannsóknaverkefni fólst í því að í
stað þess að bera eitur beint á
stubbinn í talsverðum styrkleika
strax við fellingu var beðið með
eitrunina þar til að nýir sprotar tóku
að myndast á rótarhálsi asparinnar
ári síðar. Reynd voru tvö plöntueitur
(Roundup og Herbamix) í fjórum
mismunandi styrkleikum, alls 8
ólíkar meðferðir auk samanburðar
þar sem ekkert var gert.
Niðurstöðurnar lofa góðu fyrir þessa
aðferð. Best reyndist að nota
Herbamix í styrkleikanum 1,0% (160
ml í 5 l af vatni). Rótarskotin hurfu
nær algjörlega en trén sem stóðu
eftir grisjunina sýndu engin merki
um skaða.
Inngangur
Alaskaösp (Populus trichocarpa) er
vinsælt garðtré hérlendis og hún
hefur einnig verið að stórauka
hlutdeild sína í nytjaskógrækt á
undanförnum 20 árum (Jón Geir
Pétursson, 1999; Einar Gunnarsson,
2011).
Alaskaösp getur, eins og fleiri
tegundir ættkvíslarinnar, dreift sér
með rótarskotum (Ceulemans,
1990). Myndun nýrra rótarskota
margfaldast ef eitthvað hendir stofn
móðurtrésins. Myndun rótarskota
getur valdið vandamálum þegar
garðeigendur vilja fjarlægja tré eða
þegar skógareigendur vilja grisja
samfellda asparskóga.
Ýmsar leiðir hafa verið reyndar til að
draga úr myndun rótarskota eftir
fellingu. Algengasta aðferðin er
sennilega að hringbarka öspina ári
áður en hún er felld til að koma í veg
fyrir flutning á sykrum niður í rótina
og draga þannig úr möguleikum
hennar til rótaskotamyndunar. Þetta
Notkun plöntueiturs til að varna endurvexti á alaskaösp
eftir fellingu
Bjarni Diðrik Sigurðsson1 og Jón Ágúst Jónsson2
1Landbúnaðarháskóla Íslands; 2Náttúrustofu Austurlands
1. mynd. Hér var Roundup borið í háum
styrk á stubbana á alaskaraspartrjám sem
voru felld sitt hvorum megin við tréð sem
rétt tórir til vinstri á myndinni. Það hefur
fengið í sig plöntueitri í gegnum rótar-
tengsl. (Ljósm. Bjarni Diðrik Sigurðsson, júlí 2009).