Rit Mógilsár - 2013, Page 40

Rit Mógilsár - 2013, Page 40
 40 Rit Mógilsár 27/2012 slíkum stöðum gegnir öspin mikil- vægu hlutverki við að styrkja ár- farvegi og draga úr landbroti og jarðvegseyðingu. Auk þess framleiðir hún lífmassa sem nýtist dýralífi í og við árnar. Vel mætti hugsa sér að nýta alaskaösp í auknum mæli sem áreyrategund hér á landi. Þörfin fyrir kynbætur Á Íslandi er alaskaösp yfirburðatré hvað varðar vaxtarhraða og harð- gervi (Arnór Snorrason og Stefán Freyr Einarsson, 2002). Hins vegar hefur skort vaxtaröryggi og gott vaxtarform víða á landinu, auk þess sem heppilega klóna hefur vantað fyrir héruð með erfitt veðurfar. Erfðabreytileiki meðal íslenskra asparklóna er mikill, þar sem þeir koma frá ólíkum svæðum í Alaska (Aðalsteinn Sigurgeirsson 2001, Freyr Ævarsson 2007, Halldór Sverrisson o.fl. 2011). Með kyn- bótum, sem byggja á víxlunum ólíkra klóna, má fá fram afkvæmi sem eru líkleg til að henta við ólík skilyrði. Víða eru aðstæður erfiðar til trjáræktar og er þá öspin það tré sem fyrst kemur og veitir skjól fyrir önnur tré. Einnig er mikilvægt að fá fram klóna með mikla vaxtargetu við góð skilyrði. Með ræktun slíkra klóna fást afurðir fyrr en ella og landþörf fyrir ræktunina er minni en þegar seinvaxinn trjágróður er ræktaður. Önnur meginástæða fyrir því að kynbætur eru stundaðar á ösp eru sjúkdóma- og meindýravandamál. Rannsóknir hafa sýnt að asparryð dregur mjög úr vexti og veldur oft kali á sprotum (Albers o.fl., 2006, Jónsdóttir, 2011). Alaskaösp byrjar að bera fræ í kring um 20 ára aldurinn við þær aðstæður sem ríkja hér á landi. Á áttunda áratug síðustu aldar voru því 1. mynd. Staðsetning afkvæmatilrauna úr víxlunum á alaskaasparklónum á árunum 1995, 2002, 2004 og 2005.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.