Rit Mógilsár - 2013, Side 84
84 Rit Mógilsár 27/2012
Í öllum tilfellum var gert nákvæmt
skipulag af görðunum í tölvu með
forritinu Microstation. Með slíku
nákvæmu skipulagi, þar sem hver
planta er teiknuð inn, helst góð
yfirsýn yfir plöntusöfnin. Grunngögn
af svæðum voru fengin hjá Land-
búnaðarháskólanum og viðkomandi
sveitarfélögum.
Mælingar og úttektir á
tilraunaplöntum
Í fyrsta hluta Yndisgróðurs-
verkefnisins sem lauk haustið 2012,
var ekki lögð áhersla á sérstakar
vísindalegar mælingar eða úttektir á
plöntum, heldur var markmiðið fyrst
og fremst að koma upp plöntu-
söfnum. Töluverðar úttektir og mæl-
ingar hafa engu að síður verið
gerðar á öllum rannsóknasvæð-
unum. Ljósmyndir af hverju yrki
hafa verið teknar einu til þrisvar
sinnum á ári. Lifun hefur verið skráð
árlega og gerð hefur verið úttekt á
kali og laufgun á Reykjum vorin
2009-2012, í Sandgerði og á
Blönduósi vorin 2010 og 2012.
Stærðarmæling (hæð+breidd) hefur
verið gerð á Blönduósi og í
tilraunabeltum á Hvanneyri vorin
2010-2012 og á Reykjum og Sand-
gerði vorið 2012.
Út frá þessum úttektum er að
nokkru hægt að meta hvaða
tegundir og yrki þrífast best á
hverjum stað, þótt að verkefnið sé
enn ungt að árum. Með samanburði
á yrkjum á fleiri en einum stað, auk
víðtækari reynslu frá öðrum aðilum,
má draga almennar ályktanir um
harðgeri mismunandi yrkja.
Niðurstöður - Tegundir og yrki
í safni Yndisgróðurs sem gætu
hentað í skjólbelti
Í safni Yndisgróðurs eru nú 611 yrki
af um 230 tegundum garð- og
landslagsplantna og þar af er
yfirgnæfandi meirihluti runna-
tegundir. Af þeim eru 84 yrki af
samtals 44 tegundum sem bæði
teljast harðgerð við íslenskar
aðstæður og hentug til skjólbelta-
ræktunar, þ.e. þær fullnægja að
einhverju eða verulegu leyti þeim
kröfum sem gerðar eru til
skjólbeltaplantna. Af þeim 84 yrkjum
sem geta talist harðgerð og heppileg
eru:
62 yrki af 29 tegundum á
Reykjum
62 yrki af 37 tegundum í
Sandgerði
46 yrki af 30 tegundum á
Blönduósi
13 yrki af 13 tegundum í
tilraunaskjólbelti á Hvanneyri.
Tilraunareitir í Laugardal, Fossvogi
og Hvanneyri eru yngri eða í miklu
skjóli og því ekki teknir með hér.
Um 34 yrki af 27 tegundum hafa í
a.m.k. þremur af þessum fjórum
tilraunareitum sýnt það góða lifun og
þrif að ástæða er til að setja þau í
frekari tilraunir fyrir skjólbeltaplöntur
(1. tafla).
Það sem kemur skýrt út úr fyrstu
niðurstöðum er að yrki sömu
tegunda sýna mikinn mun á harðgeri
og hentugleika s.s. með tilliti til
vaxtarlags og grósku. Það er því
afgerandi við val á tegundum til
skjólbeltaræktar að rétta yrkið sé
valið fyrir hvert landsvæði.