Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 4
224
Sólarupprás yfir Þingvallavatni á vetrarsólstöðum 2018. Nú tekur daginn að lengja, 2020 kveður og brátt heilsum við nýju ári með bjartsýni og von um
árangur í baráttu mannkyns gegn veirunni og loftslagsvánni. Ljósm. Eygló Aradóttir.
Það er auðvelt að fyllast svartsýni
þegar loftslagsváin er annars vegar, en
nú er ástæða til hóflegrar bjartsýni!
Joe Biden nýkjörinn forseti Banda-
ríkjanna hefur ákveðið að ganga aftur
til liðs við alþjóðasamfélagið og skip-
aði fyrir skömmu einn helsta hvata-
mann Parísarsamningsins til að fram-
fylgja stefnu sinni í baráttunni gegn
loftslagsbreytingum.
Og Parísarsamningurinn er að
virka! Á þeim fimm árum sem liðin
eru frá samþykkt hans hefur baráttan
gegn hamfarahlýnun tekið á sig breytta
mynd. Þótt Trump hafi sagt Banda-
ríkin frá samningnum á sínum tíma, þá
voru önnur ríki, einkum ríki Evrópu-
sambandsins, einbeitt í því að standa
við samninginn: Í stað fallegra orða á
hátíðarstundum hafa þau á síðustu 2–3
árum sett lög sem takmarka útblástur
í álfunni og regluverk til að framfylgja
loftslagsstefnu sambandsins og Par-
ísarsamningnum. Þetta á einnig við um
Ísland þar sem áætlanir með tímasettum
aðgerðum og fjármagni hafa nýlega
verið kynntar og stefnan sett á 55% sam-
drátt í losun gróðurhúsalofttegunda
fyrir 2030, líkt og Noregur og ríki ESB.
Árið 2020 var ekki alvont og nú sér til
ljóss fyrir enda ganganna, eins og sagt er.
Sumarið 2020 var landsmönnum gott.
Virk smit voru fá og bjartsýni tók við af
drunga og kvíða sem fylgdi farsóttinni
síðasta vetur og vor. Veðurguðirnir
voru hliðhollir þessu kærkomna fríi frá
veirunni og allt í einu voru allir komnir
í ferðalag – innan lands að þessu sinni.
Menn nýttu tækifærið – ferðagjöfina
og óteljandi tilboð á gistingu og afþr-
eyingu – og gerðust túristar í eigin landi,
upplifðu Ísland á nýjan hátt, kynntust
stöðum sem þeir höfðu aldrei komið til
áður eða heimsóttu aftur gamla uppá-
haldsstaði. Margir fengu fjallabakterí-
una og hafa vonandi smitast fyrir lífstíð!
Það er nefnilega ótvíræður kostur á
hnattræna vísu við það að ferðast inn-
anlands: Minna kolefnisspor og minni
losun á einstaklings- og landsvísu, sem
spornar gegn hamfarahlýnun!
Álfheiður Ingadóttir,
ritstjóri Náttúrufræðingsins