Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 63
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
283
Ritrýnd grein / Peer reviewed
Í stefnumörkun íslenskra stjórn-
valda frá árinu 2010 um sjálfbæra þróun
kemur fram að tryggja skuli að stór
samfelld víðerni verði áfram að finna í
óbyggðum Íslands.5 Í landsskipulags-
stefnu 2015–2026, sem samþykkt var
sex árum síðar, er áhersla á verndun
víðerna aukin, sérstaklega með tilliti
til skipulags á miðhálendinu þar sem
stærstu víðerni landsins er að finna.6
Síðastliðna áratugi hefur landnýting á
miðhálendi Íslands breyst mikið með
tilheyrandi umhverfisáhrifum. Beit er
ennþá tíðkuð, en auk hennar hafa orku-
vinnsla og ferðaþjónusta jafnt og þétt
vaxið þar að umfangi. Þessar atvinnu-
greinar krefjast mikils landrýmis og
þeim fylgja innviðir og ágangur sem
geta breytt íslensku landslagi og þar af
leiðandi haft áhrif á upplifun fólks sem
um landið fer.
Meginmarkmið rannsóknarinnar var
annars vegar að meta hugmyndir og
viðhorf Íslendinga til víðerna, og hins
vegar að meta mikilvægi og gildi víð-
erna í hugum þeirra. Undirmarkmið
voru eftirfarandi:
Að bera kennsl á hvaða þættir í lands-
laginu stuðla mest að víðernisupplifun
landsmanna.
Að greina hvort mannvirki og önnur
ummerki af völdum manna hafi áhrif
á mat landsmanna á því hvort svæði
telst til víðerna.
Að greina hvaða mannvirki og um-
merki landsmenn telja vera viðeigandi
án þess að gæði víðerna skerðist.
Verkefnið er hluti stærra verk-
efnis sem unnið var fyrir faghóp tvö í
þriðja áfanga rammaáætlunar á vegum
umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.7
YFIRLIT UM MAT OG KORT-
LAGNINGU ÍSLENSKRA VÍÐERNA
Í gildandi lögum um náttúruvernd
(nr. 60/2013 með síðari breytingum) er
mikilvægi víðerna í íslenskri náttúru
undirstrikað með því að setja inn, í fyrsta
skipti í íslenskri náttúruverndarlög-
gjöf, sérstakan friðlýsingarflokk helg-
aðan óbyggðum víðernum (46. gr.). Þar
segir meðal annars: „Friðlýsa má sem
óbyggð víðerni stór landsvæði þar sem
ummerkja mannsins gætir lítið sem
ekkert […]. Friðlýsingin skal miða að
því að varðveita einkenni svæðisins, t.d.
að viðhalda fjölbreyttu og óvenjulegu
landslagi, víðsýni og/eða vernda heild-
stæð stór vistkerfi, og tryggja að núlif-
andi og komandi kynslóðir geti notið
þar einveru og náttúrunnar án truflunar
af mannvirkjum eða umferð vélknúinna
farartækja.“ Verndun óbyggðra víðerna
er enn fremur lögð til grundvallar við
verndun jarðfræðilegrar fjölbreytni: „Til
að stuðla að vernd jarðfræðilegrar fjöl-
breytni landsins og fjölbreytni landslags
skal stefnt að því: [...] að standa vörð um
óbyggð víðerni landsins“ (3. gr., 1. máls-
liður og stafliður e). Í landsskipulags-
stefnu 2015–2026 er sveitarfélögunum
sem land eiga að miðhálendinu gert
að útfæra stefnu um verndun víðerna í
skipulagsáætlunum sínum. Enn fremur
er þeim gert að kanna möguleika um
endurheimt þeirra. Til grundvallar
þessari stefnu á að liggja kortlagning
Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofn-
unar á umfangi víðerna.6
Lítil hefð er fyrir kortlagningu víð-
erna hér á landi og fáar rannsóknir
liggja fyrir. Fyrsta tilraunin í þessa veru
var gerð í kjölfar samþykktar náttúru-
verndarlaga nr. 44/1999 þar sem skil-
greining á víðerni var í fyrsta skipti sett
fram í íslenskum lögum. Sú kortlagning
fór fram á árdögum Umhverfisstofn-
unar og byggðist á skilgreiningu lag-
anna og tiltækum stafrænum landupp-
lýsingum þess tíma. Það kort var upp-
fært árið 2009. Aðgengi að stafrænum
landupplýsingum gjörbreyttist hér
á landi árið 2004 við tilkomu IS50v,
stafræns gagnagrunns Landmælinga
Íslands, sem síðan hefur verið í stöð-
ugri uppfærslu. Árið 2009 vantaði
þó enn töluvert af landupplýsingum í
IS50v-gagnagrunninn, meðal annars
gögn frá RARIK, Landsneti og Orkubúi
Vestfjarða, sem skekkti kortlagningu
Umhverfisstofnunar. Næstu tilraun
til kortlagningar víðerna unnu Rann-
veig Ólafsdóttir og Micael Runnström
1. mynd. Kortlagning Rannveigar Ólafsdóttur og Micaels Runnströms á ósnortnum víðernum samkvæmt skilgreiningu náttúruverndarlaganna nr.
44/1999. Mynd A sýnir útreikninga byggða á fjarlægðargreiningu og mynd B útreikninga byggða á útsýnisgreiningu. – Wilderness mapping from
Ólafsdóttir and Runnström based on the definition of pristine wilderness according to Act No. 44/1999 on nature protection. A shows calculation
based on a distance analysis and B calculation based on a viewshed analysis.8,9
•
•
•