Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 14
Náttúrufræðingurinn
234
Ritrýnd grein / Peer reviewed
1. ás / Comp. 1 (21,0%)
2.
á
s
/
C
o
m
p
. 2
(1
8,
4%
)
Omalotheca
supina
Phleum
alpinum
Engin ríkjandi / No dominant
– Þekja / Cover
Salix arctica
– Þekja / Cover
2016
-10 -5
-5
0
0
5
5
10
10
K8
K1
K2
K4
B2
B4
B1B8
B3
B7
K5
B5
B10 B6
B9
K7
K3
?
framvinda hefur ekki komist af stað og
er núna að færast aftur í átt að rýrara
upphafsástandi í tegundasamsetningu
(10. mynd).
Gróðurfar reitanna árið 2016 (11.
mynd) var sett í aðra hnitunargrein-
ingu. Sú greining styrkir fyrrnefnda
túlkun framvinduferlisins. Allir reitirnir
í Bræðraskeri raðast saman á PCA-graf-
inu, ásamt K5, og hafa svipaða tegunda-
samsetningu. Fjallavíðireitirnir K3, K7
og K8 raðast yst til vinstri á grafinu,
en K1, K2 og K4 raðast langt frá þeim
öllum. Þegar gróðurfarið í þeim þremur
reitum er skoðað nánar eiga þeir það
sameiginlegt að vera tegundaríkir en
hafa eina eða tvær ríkjandi æðplöntu-
tegundir í gróðurþekjunni. K1 með
grámullu, K4 með fjallafoxgras og K2
báðar þessar tegundir með sömu þekju
(gögn ekki sýnd; 12. mynd).
Breytingar á jarðvegi
með gróðurframvindu
Styrkur heildarköfnunarefnis (N) í
efstu 5–7 cm jarðvegs var mjög lítill í
jökulskerjunum, 0,03% af þunga þurr-
efnis fínjarðar (efni <2 mm), en að jafn-
aði var hann þó um 4,6 sinnum hærri
í Káraskeri en Bræðraskeri. Þau voru
50 og 74 ára gömul þegar sýnatakan fór
fram (13. mynd a). Jarðvegssýni úr 5–10
ára gömlum reitum í Skálabjörgum í
Esjufjöllum í Breiðamerkurjökli voru
höfð til samanburðar, og höfðu þau að
jafnaði lægstan N-styrk. Hlutfallsleg
aukning í Káraskeri miðað við Skála-
björg var 12-föld. Samband meðalgróð-
urþekju í öllum reitum á öllum þremur
stöðunum og uppsafnaðs N í jarðveg-
inum var hámarktækt (P<0,001) og
með fylgnistuðul upp á 0,87 (13. mynd
d). C/N-hlutfall í jarðvegi breyttist
minna á milli skerjanna en N (13.
mynd a og b), en að jafnaði varð 27%
og 110% hækkun á C/N-hlutfalli jarð-
vegs í Káraskeri miðað við Bræðrasker
og ungu reitina í Skálabjörgum (13.
mynd b). Samband meðalgróðurþekju
og C/N-hlutfalls í jarðvegi var einnig
hámarktækt, með fylgnistuðulinn 0,85
(13. mynd e). Sýrustig jarðvegs lækk-
aði marktækt með aldri skerjanna og
var að jafnaði 7,9 í 5–10 ára gömlum
reitum í Skálabjörgum, 6,2 í 50 ára
reitum í Bræðraskeri og 5,7 í 74 ára
reitum í Káraskeri (13. mynd c). Einnig
hafði sýrustig hámarktæka fylgni við
meðalgróðurþekju í reitunum og var
með fylgnistuðulinn 0,84 (13. mynd f ).
Þess má geta að sá Káraskersreiturinn,
K5, raðast alltaf næst Bræðraskers-
reitunum í jarðvegsþáttum (13. mynd
d, e og f ).
10. mynd. Hnitunargreining (PCA) á breytingum í tegundasamsetningu
æðplantna, mosa og fléttna í Bræðraskeri (reitir B1–B10) og Káraskeri
(reitir K1–K7) í Breiðamerkurjökli á árabilinu 1965 til 2016. Bæði gröfin
eru niðurstöður sömu PCA–keyrslu og eru því samanburðarhæf.
– Principal Component Analysis of changes in species composition of
vascular plants, mosses and lichens on the nunataks of Bræðrasker
(plots B1–B10) and Kárasker (plots K1–K7) in the Breiðamerkurjökull
glacier during 1965 to 2016. Both graphs are derived from the same
PCA-analysis and therefore directly comparable.
11. mynd. Hnitunargreining (PCA) á gróðursamfélögum í
Bræðraskeri (reitir B1–B10) og Káraskeri (reitir K1–K8) í Breiða-
merkurjökli árið 2016, 56 og 80 árum frá því að skerin komu
upp úr jökli. Örvarnar sýna tilgátu um hvernig reitirnir í Káraskeri
hafa færst í hnitunarrýminu frá sambærilegu framvindustigi og í
Bræðraskeri árið 2016 og þangað sem þeir voru komnir sumarið
2016. – Principal Component Analysis of the species compos-
ition and cover of vascular plants, mosses and lichens on the
nunataks of Bræðrasker (plots B1–B10) and Kárasker (plots K1–
K7) in the Breiðamerkurjökull glacier in 2016, 56 and 80 years
after the nunataks appeared from the glacier. The arrows show
our proposal of how the Kárasker plots have developed from an
earlier successional stage similar to where the Bræðrasker plots
were at in 2016.
Bræðrasker
1965/70
1976
1985
1997
2005
2010
2016
10
5
0
-5
-10
10
5
0
-5
-10
-10 -5 0 5 10 15
Kárasker
2.
á
s
/
C
o
m
p
. 2
(1
3,
2%
)
1. ás / Comp. 1 (21,6%)