Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 44
Náttúrufræðingurinn
264
Hegðun staranna
Behaviour of starlings amongst horses
Pikka í jörðina (56%)
Search for prey on the ground
Pota í skít (5%)
Probe into a dropping
Ganga, hlaupa, hoppa (8%)
Walk, run, jump
Flögra / Hawk (4%)
Á baki hests (4%)
On the back of a horse
Standa á jörðinni (13%)
Standing on the ground
Snyrta sig á jörðinni (7%)
Grooming on the ground
Illindi / Aggression (3%)
Hegðun staranna
Niðurstöður skimanamælinga á
störum nálægt hestunum eru sýndar
á 8. mynd. Á bak við prósentutölurnar
eru 647 punktmælingar. Grænleitu
sneiðarnar endurspegla allar fæðuleit
sem, eins og sjá má, tekur yfir 70% af
tíma staranna. Sérlega áhugavert var
að sjá starana í kringum nýlegar skíta-
hrúgur þar sem þeir söfnuðust nokkrir
saman og höfðu hátt. Hin skráðu illindi
urðu öll í tengslum við þetta.
Á 9. mynd má sjá nýlega skítahrúgu
og er líklegt að fuglarnir hafi þar verið
að tína orma sem koma með skítnum.
Lætin í þeim rétt áður en myndin var
tekin benda til að þetta sé eftirsótt
fæða. Þegar betur var að gáð sáust víða
NIÐURSTÖÐUR OG UMRÆÐA
Tengsl stara við hrossin
Afar misjafnt var hvort og hversu
mikið stararnir settust á hestana. Þeir
sem gerðu það stoppuðu oftast stutt. Þeir
virtust notfæra sér góða yfirsýn þaðan
yfir svæðið og skelltu sér síðan niður á
jörðina þar sem aðrir fuglar voru. Það
styður þá hugmynd að stararnir not-
færi sér hestana til að geta fylgst með
öðrum einstaklingum, bæði til að finna
fljótt fæðu og til að verða fyrr varir við
hættu. Stundum dvöldust þeir þó lengur
og sáust þá hvíla sig og kúra, snyrta
sig, standa, standa uppreistir, rífast við
aðra, betla fæðu af öðrum (ungarnir) og
í einstaka tilvikum tína lús eða flösu af
hrossunum. Í aðeins eitt skipti var fugl
greinilega að ná sér í æti úr feldinum á
síðum hestsins og það í töluverðan tíma.
Var þá um að ræða gamla hryssu sem var
mjög slæm í hárunum og líklega talsvert
lúsug. Í tvö önnur skipti sást fugl pikka í
feldinn hjá faxinu.
Ég varð aldrei vör við sérstök við-
brögð hjá hrossunum gagnvart stör-
unum, og engin merki um að þeir vildu
ekki hafa þá á sér eða í kringum sig.
Það var misjafnt hve margir fuglar
settust á sama hrossið. Þótt ég hafi ekki
náð að skrá fleiri en 15 í mælingunum
þegar ég skimaði yfir hópinn þá kom
það fyrir að stararnir voru fleiri en 20.
Eins og sést á 6. mynd er þó langalgeng-
ast að aðeins einn stari sé á baki í einu.
Í hópnum voru tveir gráir hestar,
tveir mósóttir, tveir bleikir, fimm rauðir,
tíu brúnir og þrír jarpir. Út frá þessari
dreifingu voru reiknaðar út líkur á því á
hvernig hross fugl myndi setjast ef það
væri tilviljunarkennt með tilliti til litar.
Síðan voru fundin gildi (þ.e. hve margir
starar voru á hrossum af mismunandi
lit) og þau borin saman við tilgátuna
um að það væri einungis tilviljun hvar
þeir settust, með Chi-kvaðrat prófi ( χ2 ).
Niðurstaðan var (sjá texta við 7. mynd)
að stararnir settust ekki tilviljunarkennt
á hestana. Grái og bleiki liturinn voru
vinsælir (slík hross voru marktækt oftar
valin en önnur) en sá brúni var mark-
tækt sjaldan valinn.
6. mynd. Misjafnt var hver fjöldi stara á baki hvers hests var. Skimað var yfir hestahópinn 14 sinnum og var heildarfjöldi stara á baki 225.
Lang algengast var að fuglinn væri stakur (55 af 225 fuglum, 26 af 225 með öðrum o.s.frv.) – The diagram shows how many of the 225 birds
were alone, or with others ( 2, 3, 4, 5, 6, 7 and 15) on the back of one horse. Based on 14 scans on thea group of 24 horses. Total number of
starlings were 225.
60
50
40
30
20
10
0
T
íð
ni
/
F
re
q
ue
nc
y
Fjöldi stara á einum hesti / Number of starlings sitting on one horse
1 2 3 4 5 6 7 15
3 3 1
Hve margir fuglar setjast á bak sama hestsins? / How many starlings sit on the back of a horse?
55
13
6 8 8
8. mynd. Myndin sýnir hvernig stararnir verja tímanum þegar þeir eru í hrossahóp. Allir grænu
litirnir standa fyrir hegðun sem fellur undir fæðuleit. – Probabilities for a bird to show different
behaviours when found amongst group of horses. Green colours represent foraging behaviours.