Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 80
Náttúrufræðingurinn
300
er nokkuð ofar í hrauninu og nógu langt
er á milli þeirra til að þeir teljist tveir
mismunandi hellar að svo stöddu. Betri
könnun hraunsins mun væntanlega
leiða tengsl þeirra í ljós. Fyrir lokun
hellisins var best að komast ofan í TES-
13 í gegnum „glugga“ þar sem hellis-
loftið hefur gefið sig og opnað á tölu-
verða hvelfingu. Hellirinn hefur verið
kortlagður að hluta út frá hvelfingunni,
en frá henni liggur net rása sem samtals
hafa verið mældar um 50 metrar á lengd
sunnan hennar og hátt í 300 metrar
norðan megin (8. mynd). Gólfið í hell-
inum er meira og minna þakið glerungi
og mikill fjöldi dropsteina stendur þar
meðfram veggjum. Mesti dropsteina-
skógur hellisins er norðan við hvelf-
inguna og eru flestir dropsteinarnir
þar 20–30 cm á hæð (9. og 10. mynd).
Standa þeir þéttast í lítilli hliðarrás og
er því ekki nauðsynlegt að fara yfir þá
til að komast lengra inn. Meginrásin er
víðast hvar manngeng en þrengist eftir
því sem lengra er farið frá hvelfingunni
til norðurs. Sumar hliðarrásirnar eru
sömuleiðis lokaðar vegna hruns og
aðrar kvíslast í mismunandi áttir þar
til þær lokast. Mældur hluti TES-13 er
348 metrar en heildarlengd hellisins
er mun meiri.
HRAUNHELLAR Á ÍSLANDI
OG VERNDUN ÞEIRRA
Sökum jarðfræðilegrar sérstöðu
er Ísland sérlega ríkt af hraunhellum.
Mikið net hraunhella er að finna í
mörgum stórum dyngjuhraunum á
Íslandi. Í eldgosum hafa þessir hellar
gert hraunbráð kleift að renna langar
leiðir frá gosstöðvunum að hraunjaðr-
inum. Stærstu og þekktustu hellar
landsins, svo sem Kalmanshellir,
Stefánshellir, Víðgelmir og Surtshellir í
Hallmundarhrauni og Raufarhólshellir
í Leitahrauni eru dæmi um hraun-
rásarhella í stórum dyngjuhraunum. Þó
er afar sjaldgæft að finna jafn sérstaka
hella og þá í Þeistareykjahrauni.
Hellarannsóknafélag Íslands hefur
skráð 593 hraunhella í 75 mismunandi
hraunum hér á landi. Kalmanshellir
hefur verið mældur lengsti hellir-
inn með heildarlengd 4.014 metra7 en
skráðir eru hellar allt niður í 25 metra
lengd. Samkvæmt skrá félagsins eru
mældir hellar landsins samanlagt rúmir
70 km að lengd, en hluti hellanna hefur
ekki verið mældur og er heildarlengdin
því töluvert meiri. Oft getur reynst erfitt
að meta hvar einn hellir endar og annar
tekur við. Lítil höft eða hrun geta lokað
tengingu á milli mismunandi hellisbúta
sem eru þó sýnilega partur af sömu
hraunrás. Til heildarlengdar hellis telst
meginrás hans ásamt tengdum afhellum
sem liggja út frá henni. Hjá Hellarann-
sóknafélaginu hefur tíðkast að telja
hellisbúta sem tengjast einu og saman
niðurfallinu til sama hellis. Niðurfallið
er þá mælt sem hluti af lengd hellisins
ásamt þeim hellisbútum sem því tengj-
ast. Kortlagning og ýtarleg könnun
hefur þó stundum leitt í ljós tengingar
á milli hraunhella sem áður voru
óþekktar, til dæmis í kerfi hraunhella í
Hallmundarhrauni sem nefnist Surts-
Stefáns-Hulduhellir, þar sem þunn höft
neðanjarðar loka tengingu á milli þeirra
og því um aðskilda hella að ræða.
Skaftáreldahraun geymir flesta
þekkta hella á landinu og eru þeir alls
80. Í hrauninu finnst stórt hellakerfi,
kennt við Laufbalavatn, sem skilgreina
mætti sem það lengsta á landinu (alls
5.012 metrar), en þar er ekki um að
ræða einn samfelldan helli. Lengsti
hellirinn heitir Iðrafossar og er 1.913
metrar.7 Víðgelmir hefur verið mældur
1.585 metrar og er rúmtaksmestur
allra hella á landinu (um 150 þúsund
rúmmetrar). Hann er að mestu undir
sama þaki, en á Kalmanshelli eru hins
vegar um 50 op.7
8. mynd. Kort af hluta hellisins TES-13. Einungis þessi hluti hefur verið kortlagður. Stærsta
hvelfingin er við inngang og þaðan kvíslast rásin í margar áttir. Mælingar gerðu Þórir Már Jóns-
son og Christina Stadler, félagsmenn í Hellarannsóknafélaginu, 2019. – A map of TES-13. Only
a part of the cave has been mapped. The largest dome surrounds the entrance, where the
cave diverts into multiple smaller channels. Measures done by Þórir Már Jónsson and Christina
Stadler, members of the Icelandic speleology society. Teikning /Drawing: Þórir Már Jónsson.
7. mynd. Stakt hraunstrá hangandi úr lofti
TES-12-hellisins. Lengdin er um 30 cm. – A
single lava stalactite hanging from the ceiling
of TES-12. Length is about 30 cm. Ljósm./
Photo: Daníel Freyr Jónsson.