Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 66
Náttúrufræðingurinn
286
Ritrýnd grein / Peer reviewed
AÐFERÐIR
Til að meta hugmyndir og viðhorf
Íslendinga til víðerna sendi Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands út rafræna
spurningakönnun á úrtak landsmanna
vorið 2016. Á spurningalistanum var
sambland opinna og lokaðra spurninga
sem skiptust í tvo hluta auk almennra
bakgrunnsspurninga. Í fyrri hlutanum
var sjónum beint að gildi víðerna í
hugum landsmanna og hvaða þættir það
eru í landslaginu sem stuðla mest að
víðernisupplifun þeirra. Í þessum hluta
könnunarinnar var stuðst við skoska
könnun frá árinu 2012 um viðhorf
almennings í Skotlandi til víðerna.27 Í
þeirri könnun var reiknað út það sem
kalla má víðernisskor (e. wilderness
score) sem liggur til grundvallar mati á
gildi víðerna, þ.e. víðernisgildi (e. wilder-
ness value). Útreikningar Skotanna
byggðust á mati þátttakenda á mismun-
andi sviðsmyndum sem studdar voru
ljósmyndum. Þeir settu upp 25 sviðs-
myndir, sem hver um sig var byggð á
ákveðinni staðhæfingu (e. statement),
sem snerta eftirfarandi fjóra lykilþætti
við upplifun víðernis:
Náttúrulegt ástand lands og lífríkis
(e. the naturalness of the land cover
and wildlife)
Tilvist manngerðra þátta (e. the
presence of man-made structures
and features)
Fjarlægð frá vegum (e. the remote-
ness from roads)
Landslag og staðhætti (e. the terrain)
Samskonar sviðsmyndir voru lagðar
fyrir þátttakendur í þessari könnun,
sem aðlagaðar höfðu verið að íslenskum
aðstæðum. Áður en þátttakendur svör-
uðu sviðsmyndaspurningunum voru
þeim kynntir ofangreindir fjórir lykil-
þættir og gefin dæmi. Hver sviðsmynd
samanstóð af einni staðhæfingu og
nokkrum ljósmyndum (6. mynd). Vegna
fjölda sviðsmynda fékk hver þátttakandi
til skoðunar fimm sviðsmyndaspurn-
ingar, og dreifðust þær tilviljunarkennt
á þá. Þátttakendur voru beðnir um að
velja þá staðhæfingu sem þeim þótti
lýsa hugmyndum sínum og upplifun á
víðernum best og síst. Hver þátttakandi
valdi fyrst á milli fimm staðhæfinga. Sú
sem hann taldi lýsa hugmyndum sínum
5. mynd. Kortlagning Þorvarðar Árnasonar, Davids Ostmans og Adams Hoffritz á óbyggðum
víðernum á miðhálendinu samkvæmt skilgreiningu náttúruverndarlaga nr. 60/2013.
– Wilderness mapping from Árnason, Ostman and Hoffritz based on the definition of uninhab-
ited wilderness according to Act No. 60/2013 on nature protection.26
4. mynd. Upplifun ferðamanna á víðernum
á suðurhálendinu. – Tourists' experience of
wilderness in the S-Icelandic highlands.22
Eindregnir náttúrusinnar
Strong purists
Hlutlausir ferðamenn
Neutralists
Náttúrusinnar
Moderate purists
Þjónustusinnar
Non-purists
•
•
•
•