Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 30
Náttúrufræðingurinn
250
Ummerki jarðskjálfta
á Reykjanesskaga
Hinn 20. október 2020 kl. 13:43 mældist jarðskjálfti á 3,3 km dýpi með
upptök á Núpshlíðarhálsi, um 5 km vestan við jarðhitasvæðið í Seltúni
(1. mynd). Stærð skjálftans* var Mw5,6 en nokkrir eftirskjálftar fylgdu
og var sá stærsti Mw4,1. Stóri skjálftinn fannst vel um mestallt land,
sér í lagi á suðvesturhorninu. Skjálftinn var sá stærsti sem mælst hefur
á Reykjanesskaganum frá því árið 2003. Veðurstofunni bárust nokkrar
tilkynningar um skriðuföll á Reykjanesskaga. Innan áhrifasvæðis jarð-
skjálftanna eru mörg vel sótt útivistarsvæði og voru ummerki um
skjálftann skoðuð í grennd við nokkur þeirra dagana á eftir. Ferðafólki
var bent á að sýna sérstaka aðgát undir bröttum hlíðum á meðan líkur
voru á áframhaldandi skjálftavirkni. Tilkynningar bárust einnig til Veður-
stofunnar um aukna gaslykt í nágrenni Grænavatns á Núpshlíðarhálsi
(1. mynd) í tengslum við jarðskjálftana en einnig barst tilkynning um að
lækkað hefði í Kleifarvatni. Vatnagróður í flæðarmálinu benti til þess.
* (Mw) er kvarði sem mælir vægisstærð, það er hversu mikil orka losnar þegar einn fleki færist framhjá öðrum. Þessi kvarði er talinn sá besti til
að mæla stóra skjálfta og henta best til að bera saman mismunandi skjálfta. Richters-kvarðinn mælir mestu sveifluvídd jarðskjálftabylgjunnar en
gerir ekki greinarmun á mismunandi jarðskjálftabylgjum. Þess vegna vanmetur sá kvarði jarðskjálfta sem eru langt í burtu frá mælinum, djúpir
eða mjög sterkir.
Esther Hlíðar Jensen
JARÐSKJÁLFTAR Á
REYKJANESSKAGA
Mikil skjálftavirkni hófst í lok
árs 2019 á Reykjanesskaga og hélst
hún mestallt árið 2020. Í júlí mæld-
ust skjálftar um og yfir Mw5 að stærð
við Fagradalsfjall, vestan við upptök
skjálftans sem varð 20. október. Saga
jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga ber
með sér að snarpir skjálftar hafa orðið
í tengslum við meiriháttar jarðskjálfta-
hrinur og því var ekki hægt að útiloka
að stærri jarðskjálftar gætu fylgt þessari
hrinu. Stærstu skjálftar á Reykjanes-
skaga eru taldir geta orðið um það
bil Mw5,5–Mw6 að stærð og gætu þeir
valdið tjóni á höfuðborgarsvæðinu.
Náttúrufræðingurinn 90 (4–5) bls. 250–258, 2020