Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 38
Náttúrufræðingurinn
258
SAMANTEKT
Út frá þeim upplýsingum sem bylgjuvíxlgreiningin sýnir
og því sem þekkt er úr fyrri rannsóknum2 má gera ráð fyrir að
ummerki eftir skjálftann sé víðar að finna en hér hefur verið
gerð grein fyrir. Nákvæmari kortlagning ummerkja gæti leitt
það í ljós. Samanborið við afleiðingar jarðskjálfta á Norður-
og Suðurlandi er dreifing skriðufalla í kjölfar jarðskjálfta á
Reykjanesskaga lítið þekkt. Það vakti athygli í vettvangs-
skoðun að ekki hafði hrunið á mörgum þekktum skriðu-
svæðum, eins og búast mátti við. Engar fréttir hafa borist af
grjóthruni í hellum á svæðinu samkvæmt upplýsingum frá
Hellarannsóknafélaginu. Hins vegar hrundi úr hillum stór-
markaða á höfuðborgarsvæðinu en skemmdir á mannvirkjum
af völdum skjálftans eru taldar óverulegar.
11. mynd. Sprungur í Krýsuvíkurbergi, bæði eldri (fyrir miðju) og nýjar. Ljósm.: Dagur Jónsson.
Esther Hlíðar Jensen (f. 1969) lauk BS-prófi í jarðfræði
við Háskóla Íslands árið 1993 og MS-prófi í landmót-
unarfræði við Victoria University of Wellington, Nýja
Sjálandi, árið 1998. Esther starfaði hjá Veðurstofu Ís-
lands á árunum 2000–2008 við skriðurannsóknir. Hún
starfaði hjá Vatnamælingum Orkustofnunar frá árinu
2008 við landupplýsingar og aurburðarrannsóknir þar
til þær sameinuðust Veðurstofu Íslands árið 2009. Hún
starfar nú á Veðurstofu Íslands, m.a. við flóðahættumat
og aurburðarrannsóknir ásamt því að sinna skriðuvökt-
un. Hún hefur einnig unnið ýmis önnur verkefni tengd
landmótun, m.a. að rannsókn á sandfoki, útreikning-
um á hraunflæði í eldgosum, kortlagningu ummerkja
eftir jarðskjálfta, ásamt ýmsum verkefnum tengdum
landupplýsingum.
UM HÖFUNDINN
PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR
/ AUTHOR'S ADDRESS
Esther Hlíðar Jensen
Veðurstofu Íslands
Bústaðavegi 7–9
105 Reykjavík
esther@vedur.is
1. mbl.is 2020, 23. nóvember. Þrír fengið bætur vegna skjálftans. Frétt. Slóð (sótt
28.11. 2020): https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/11/23/thrir_fengid_bae
tur_vegna_skjalftans/
2. Clifton, A.E., Paglia, C., Jóna Finndís Jónsdóttir, Kristjana Eyþórsdóttir, Kristín
Vogfjörð 2003. Surface effects of triggered fault slip on Reykjanes Peninsula,
SW Iceland. Tectonophysics 369. 145–154.
3. vedur.is 2020, 30. október. Áhrif jarðskjálftans á Núpshlíðarhálsi á yfir-
borð umtalsverð. Frétt á vefsetri Veðurstofu Ísland. Slóð (sótt 28.11.2020):
https://www.vedur.is/um-vi/frettir/ahrif-jardskjalftans-a-nupshlidarhalsi-a-
yfirbord-umtalsverd
HEIMILDIR