Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 62
Náttúrufræðingurinn
282
Ritrýnd grein / Peer reviewed
Hálendið í hugum Íslendinga
2. hluti: Hugmyndir og viðhorf
Íslendinga til víðerna
Rannveig Ólafsdóttir og Anna Dóra Sæþórsdóttir
Áhersla á verndun víðerna hefur farið stigvaxandi á opinberum vettvangi hér
á landi síðastliðin ár. Í lögum um náttúruvernd nr. 60/2013 og í landsskipulags-
stefnu 2015–2026 er þessi áhersla ítrekuð. Í landsskipulagsstefnunni er sveitar-
félögum sem land eiga að miðhálendinu meðal annars gert að útfæra stefnu
um verndun víðerna í skipulagsáætlunum sínum. Til grundvallar þeirri stefnu
á að liggja kortlagning á umfangi víðerna. Skilgreining á hugtakinu víðerni
hefur hins vegar lengi verið umdeild, einkum þar sem bæði viðhorf og upplifun
fólks um víðerni er mjög mismunandi. Það getur því reynst torvelt að ákvarða
hvað nákvæmlega á að varðveita. Meginmarkmið þeirrar rannsóknar sem hér
er skýrt frá var að meta hugmyndir og viðhorf Íslendinga til víðerna. Spurn-
ingakönnun var send á úrtak landsmanna og var þar meðal annars stuðst við
ákveðnar sviðsmyndir. Hver þátttakandi valdi milli mynda sem hann taldi passa
best og síst við hugmynd sína um víðerni. Niðurstöður sýna að ummerki um
mannvist í hvaða mynd sem er, fyrir utan fornminjar, dregur úr víðernisupplifun
Íslendinga. Í hugum þeirra felst gildi víðernis einkum í tækifæri til að upplifa
kyrrð og ró á svæðum með fábrotna og einfalda innviði. Niðurstöður sýna enn
fremur að í hugum flestra eykur formleg staða sem náttúruverndarsvæði á gildi
víðernis, en orkuvinnsla og uppbygging innviða og þjónustu við ferðamenn
skerðir gildi víðernis.
INNGANGUR
Víða um heim fer verðmæti víðerna
(e. wilderness) vaxandi, meðal annars
vegna þess að sífellt fleiri ferðamenn
hafa áhuga á að sækja slík svæði heim,
en einnig vegna þess að víðernum
fækkar ört á heimsvísu. Efnahagslegir
þættir eru því í vaxandi mæli notaðir
sem rök fyrir varðveislu víðerna.1,2
Viðhorf manna til víðerna og upplifun
af því hvað er víðerni er á hinn bóginn
mjög mismunandi3 og því getur reynst
erfitt að skilgreina hvað nákvæmlega á
að varðveita. Erlendis hefur umræðan
um hugtakið víðerni og skilgreiningu
þess staðið lengi og fjöldinn allur af
greinum og skýrslum verið ritaður án
þess að sameiginleg alþjóðleg skilgrein-
ing hafi náðst.4 Þessi staðreynd sýnir
hversu flókið og umdeilt hugtakið er.
Hvergi getur maður eins hjartanlega og eins fullkomlega sökkt
sér niður í að njóta náttúrunnar og uppi á fjöllunum. Í byggð-
inni rekur maður sig alltaf á mannaverk og mannabýli, og það er
ekki trútt um stundum, að manni finnist þess konar smásmíði hálft
um hálft eins og einhvers konar blettir á náttúrunnar stóru bók,
eins og náttúran væri hreinni og svipmeiri, ef væru þau ekki.*
* Gestur Pálsson, 1970. Sagan af Sigurði formanni, Almenna bókafélagið, Reykjavík. 239 s.
Náttúrufræðingurinn 90 (4–5) bls. 282–293, 2020