Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 32
Náttúrufræðingurinn
252
2. mynd. Bylgjuvíxlmynd gerð eftir reiknuðum fasamun á radarmyndum úr Sentinel-1-gervitungli. Myndirnar sem notaðar voru eru annars vegar
frá 16. október 2020 og hins vegar frá 22. október 2020. Litakvarðinn sýnir fasa bylgjunnar í radíönum. Hver fasi lýsir ákveðinni hæðarbreytingu
í átt að gervitunglinu. Aðlöguð mynd úr frétt frá Veðurstofu Íslands.3
var í Núpshlíðarhálsi og átti upptök rétt
austar en skjálftinn nú í haust. Hann
varð 4,21 mínútum eftir Kleifarvatns-
skjálftann 17. júní 2000. Grjóthrun og
skrið sást í nokkrum bröttum hlíðum
milli Djúpavatns og skjálftamiðjunnar
um 3 km til suðurs. Aflögun minnkaði
í átt til suðurs en var mest meðfram
strúktúrum með norðurstefnu. Það
var ekki hægt að fullyrða að ummerki
sem sáust í Sveifluhálsi mætti rekja til
Núpshlíðarhálsskjálftans en ummerki
voru látin fylgja þeim skjálftaupptökum
sem næst voru.
Hreyfing
Bylgjuvíxlagreiningar (e. InSAR)
á radarmyndum 16. október / 22.
október 2020 úr Sentinel-1-gervitungli
Evrópsku geimvísindastofnunarinnar,
sem Michelle Parks á Veðurstofu Ís-
lands annaðist,3 sýndu skýr merki um
aflögun við Skolahraun og er færslan
allt að 5 sentimetrar, aðallega láréttar
færslur miðað við sjónarhorn og flug
gervitunglsins (2. mynd). Einnig sást
aflögun í nágrenni Driffells og austan
Keilis (sjá frétt á vefsetri Veðurstof-
unnar3). Bylgjuvíxlgreining hefur það
allajafna fram yfir aðra greiningu að
hægt er að tengja upplýsingar við
þann tíma sem líður á milli myndanna.
Greiningin er gerð með því að reikna
fasamun á milli mynda – sú fyrri er
tekin fyrir skjálftann og sú seinni eftir
hann. Því er ljóst að sprungur sem sjást
á yfirborði tengjast aflöguninni sem
kemur fram í bylgjuvíxlgreiningunni,
og stafa frá þessum skjálfta en ekki
öðrum stórum frá því fyrr um sumarið.
KORTLAGNING UMMERKJA Á YFIR-
BORÐI EFTIR JARÐSKJÁLFTANN
Farnar voru vettvangsferðir til
að kanna aðstæður við nokkrar
gönguleiðir á þekktum útivistar-
svæðum. Ekið var eftir Krýsuvíkurvegi
meðfram Kleifarvatni að Krýsuvíkur-
skóla, þaðan að Suðurstrandarvegi,
eftir honum að Vigdísarvallarvegi og
áfram eftir honum alla leið aftur að
Krýsuvíkurvegi. Þá um morguninn
höfðu vegagerðarmenn opnað leiðina
sem lokaðist daginn áður vegna grjót-
hruns á þekktum grjóthrunsstað
(3. mynd). Það vakti þó athygli höf-
undar að grjóthrun hafði ekki orðið á
nokkrum þekktum grjóthrunsstöðum
á leiðinni.