Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 72
Náttúrufræðingurinn
292
Ritrýnd grein / Peer reviewed
sýna enn fremur að formleg staða sem
náttúruverndarsvæði eykur gildi víð-
erna. Þrátt fyrir að flestir þátttakendur
könnunarinnar flokkist sem þjónustu-
sinnaðir eða hlutlausir samkvæmt
viðhorfskvarðanum telja þeir þjónustu á
borð við bensínstöðvar, hótel, verslanir,
veitingastaði og fjölbreytta afþreyingu,
auk orkuvinnslu, skerða gildi víðerna.
Þetta bendir til þess að landsmenn líti
flestir á óbyggð víðerni sem mikilvæg
verðmæti í því ástandi sem þau eru nú
og vilji halda í sérstöðu þeirra.
Miðhálendi Íslands er eitt af fjórum
meginviðfangsefnum landsskipulags-
stefnu 2015–2026, sem samþykkt var á
Alþingi á vordögum 2016.6 Þar er lögð
áhersla á verndun víðerna hálendisins
með þeim rökum að þau hafi mikið nátt-
úruverndargildi og séu mikilvæg úti-
vistarsvæði. Í landsskipulagsstefnunni
er lögð áhersla á að víðerni séu mikils
virði fyrir Íslendinga og að þau beri að
vernda. Einnig er í stefnunni bent á mik-
ilvægi þess að skerða ekki óbyggðaupp-
lifun og náttúrugæði á miðhálendinu, en
að sama skapi er kveðið á um að leitast
skuli við að stuðla að góðri aðstöðu fyrir
ferðamenn. Í þessu er fólgin ákveðin
þversögn, sem kemur einnig fram í
þessari rannsókn á viðhorfum lands-
manna til víðerna, og byggist að miklu
leyti á vilja til að varðveita lítt snortna
náttúru á sama tíma og landsmenn vilja
geta nýtt þessar auðlindir sjálfum sér og
þjóðinni til hagsbóta. Skipulag íslenskra
víðerna er því mikil áskorun til fram-
tíðar. Landsskipulagsstefnan kveður
enn fremur á um mikilvægi þess að
auka þekkingu og skilning á því hvernig
Íslendingar upplifa víðerni, og er þessi
rannsókn einn liður í að bæta úr því.
Óbyggð víðerni eru einstök auðlind.
Auðlind sem unnt er að nýta til verð-
mætasköpunar nú þegar, og auðlind í
sinni eigin tilvist. Við nýtingu víðerna
er mikilvægt að hún grundvallist á hug-
myndafræði um sjálfbæra þróun. Sjálf-
bær þróun krefst heildarsýnar og skiln-
ings á orsakatengslum allra áhrifaþátta.
Breytt landnýting á miðhálendinu og
á öðrum óbyggðum svæðum landsins
kallar á auknar rannsóknir. Öðruvísi er
ekki unnt að öðlast yfirsýn og átta sig á
eðli og umfangi breytinganna. Þá þarf
einnig að kortleggja og vakta ástandið
í óbyggðunum til að efla skilning á eðli
breytinganna.
ABSTRACT
The highlands in the mind of
Icelanders. Part 2: Icelanders’
wilderness perceptions
There has been a progressive
increase in the emphasis on wilderness
protection in public discourse in Ice-
land over the past years. This empha-
sis is affirmed in the Nature Conserva-
tion Act No 60/2013 as well as in the
National Planning Policy 2015–2026. It
is stated in the National Planning Strat-
egy that municipalities adjacent to the
central highlands must develop a strat-
egy for the protection of wilderness in
their strategic plans. The scope of wil-
derness should be mapped to serve as
a foundation for the Strategy. However,
the definition of the concept wilder-
ness has long been in dispute, especially
since individual ideas/conceptions of
wilderness can differ drastically. As a
result, it can be difficult to decide pre-
cisely what must be conserved. The
primary objective of this research is to
analyze Icelanders’ ideas and attitudes
towards wilderness. A questionnaire,
which partly consisted of scenarios in
which the participants chose between
the images they thought matched best
and worst with their wilderness expe-
rience, was sent to a sample group in
Iceland. The results show that all signs
of human interference, except archeo-
logical remains, reduces the wilderness
value in the eyes of Icelanders. For them
this value is primarily grounded in the
opportunity to experience tranquility
and quiet in areas whose infrastructure
is simple and primitive. Moreover, the
results demonstrate that nature con-
servation increases the value of wilder-
ness for most, while energy production
and the development of infrastructure
and services for tourism decrease the
value of wilderness.
13. mynd. Gengið á Herðubreið. Trölladyngja í baksýn. – Hiking on the tuya Herðubreið.
The shield volcano Trölladyngja in the back. Ljósm./Photo: Anna Dóra Sæþórsdóttir.