Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 31
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
251
Í októberskjálftanum hrundi úr
hillum stórmarkaða og sást á öryggis-
myndavélum frá Krónunni á Granda
í Reykjavík að hristingurinn var tals-
verður þótt fjarlægðin frá upptökum
væri um 30 km í beinni loftlínu. Í
Morgunblaðsfrétt1 rúmum mánuði eftir
skjálftann kom fram í vitali við
Huldu Ragnheiði Árnadóttur, fram-
kvæmdastjóra Náttúruhamfaratryggingar
Íslands, að 35 tilkynningar hefðu borist
vegna jarðskjálftans. Þar af voru 30 til-
kynningar um skemmdir á húseignum
og 5 um skemmdir á innbúi og lausafé.
Vegna hættu á fleiri jarðskjálftum
bað Veðurstofan fólk á skjálftasvæð-
inu að fara að öllu með gát og sýna sér-
staka aðgæslu undir bröttum hlíðum.
Þess var getið að skriðusérfræðingar
Veðurstofunnar yrðu við störf á vett-
vangi dagana á eftir til að kortleggja
afleiðingar skjálftanna og meta hættu á
frekara grjóthruni og skriðum. Vetrar-
frí voru í skólum og búast mátti við
því að fólk væri töluvert í útivist
á svæðinu.
Talsvert grjóthrun varð úr Norð-
lingahálsi þannig að Vigdísarvallar-
vegur (eða Djúpavatnsleið eins og hún
var kölluð í fréttum) lokaðist um tíma.
Sprungur mynduðust í Krýsuvíkurbergi
(eða -bjargi) og hrundi stór fylla niður í
sjó um þekkta sprungu. Grjót hrundi úr
námunni við Vatnsskarð og tilkynnt var
um grjóthrun úr Trölladyngju. Helstu
ummerkin um bæði hrun og sprungur
virðast hins vegar hafa orðið við Keili.
Göngufólk á fjallinu þegar skjálft-
inn reið yfir var hætt komið. Stór fylla
hrundi úr toppi fjallsins og tvístraðist
niður eftir hlíðum þess. Á dróna-
myndum sem teknar voru á vettvangi
nokkrum dögum eftir skjálftann sáust
nokkurra sentimetra breiðar sprungur
víða á göngustígnum að Keili, og
einnig í hrauninu.
1. mynd. Á kortinu eru upptök skjálftans í október merkt með grænni stjörnu, sprungur með svörtu striki, og örvar sýna meginstefnu hreyfingarinnar
í skjálftanum. Svartir punktar tákna grjóthrun, appelsínugulir hringir tákna steina sem skoppuðu. Gul stjarna sýnir upptök skjálftans 17. júní 2000
af stærðinni Mw4,8. Amy Clifton kortlagði með samstarfsmönnum ummerki eftir þann skjálfta.2 Rauðir flekkir sýna grjóthrun í 17. júní-skjálftanum.
SAMANBURÐUR VIÐ 17.
JÚNÍ-SKJÁLFTANN 2000
Þjóðhátíðardaginn 17. júní árið 2000
varð jarðskjálfti á svipuðum slóðum,
að stærð Mw4,8 (1. mynd, gul stjarna).
Þá kortlagði Amy Clifton ummerki
og útbjó kort sem meðal annars sýnir
dreifingu grjóthruns og birtist það í
grein eftir hana og fleiri í Tectonoph-
ysics.2 Þessi skjálfti var einn af þremur
„stórum“ skjálftum í þeirri hrinu sem
er talin hafa hafist vegna Suðurlands-
skjálftans, að stærð Mw6,5, sem varð 26
sekúndum fyrr. Fyrsti stóri skjálftinn í
hrinunni var við Hvalhnúk (rétt austan
við mörk kortsins á 1. mynd vestan í
Heiðinni háu) og fjórum sekúndum
seinna varð skjálfti við Kleifarvatn. Ekki
var hægt að ákvarða stærð þess skjálfta
vegna álags á mælakerfið. Hins vegar
sýndi bylgjuvíxlgreining meiri aflögun
vegna hans en hinna tveggja í þessari
hrinu. Þriðji skjálftinn, að stærð Mw4,8,