Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021 Jón Pétur Zim- sen hefur verið ráðinn skóla- stjóri Melaskóla. Jón Pétur lauk B.Ed-prófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1999 og M.Ed-námi í stjórnun mennta- stofnana við Há- skóla Íslands. Hann kenndi við Réttarholts- skóla frá árinu 1998 auk þess að vera aðstoðarskólastjóri og skóla- stjóri. Jón Pétur var aðstoðar- maður menntamálaráðherra í eitt ár, m.a. til að sinna endurskoðun aðalnámskrár og vinna við nýja menntastefnu. Eftir ár í ráðuneyt- inu sneri hann aftur í Réttarholts- skóla. Jón Pétur mun stjórna ásamt tveimur aðstoðaskólastjórum, þeim Helgu Jónu Pálmadóttur, sem hef- ur starfað í Melaskóla um árabil, og Hörpu Reynisdóttur, sem verður staðgengill skólastjóra. Harpa vann með Jóni Pétri í Réttarholtsskóla en hefur undanfarinn áratug starf- að við kennslu og skólastjórnun í Svíþjóð, í Helsingborg og í Knivsta. Í Melaskóla eru um 580 nem- endur og 85 starfsmenn. Jón Pétur er mættur til starfa í Melaskóla auk þess að klára skólaárið í Réttar- holtsskóla, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar. sisi@mbl.is Ráðinn skólastjóri Melaskóla Jón Pétur Zimsen Teymi sem fóru í gegn hjá sprota- verkefninu Icelandic Startups á þessu og seinasta ári eru áberandi í vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs. Tæpur þriðjungur verkefna sem fengu úthlutun í flokknum Sproti fóru í gegnum fjóra svonefnda hraðla, auk þess sem eitt verkefni tók þátt í frumkvöðlakeppninni Gullegginu. Alls fengu 15 verkefni úthlutun í flokknum Fræ, þar af Krakka- kropp og Surova. Nítján verkefni fengu úthlutun í flokknum Sproti og þar af eru Marea og Horseday, Hemp pack, SoGreen, SVAI og Showdeck. Hraðallinn Vöxtur veitir lengra komnum verkefnum styrki og þar fá styrki Nordverse og Genki, sem fóru í gegnum Startup Reykjavík á sínum tíma, og Icewind, sem tekur þátt í hraðlinum Hringiðu á þessu ári. Í fréttatilkynningu er vitnað í Kristínu Soffíu Jónsdóttur, fram- kvæmdastjóra Icelandic Startups, sem segir árangur verkefnanna flottan. Nú séu þau búin að tryggja sér nauðsynlega fjármögnun. Sprotar styrktir Lokakynning Fulltrúar nýsköpunarverkefnanna hjá Icelandic Startups, þegar úthlutun var kynnt. - Úthlutað úr Tækniþróunarsjóði Borgarstjórn hefur samþykkt til- lögu borgarstjóra um að lækka gjaldskrá fyrir hundahald. Mark- miðið með þessum breytingum er að hækka hlutfall skráðra hunda í Reykjavík en um tímabundið til- raunaverkefni er að ræða til þriggja ára, segir í tilkynningu frá borginni. Núverandi gjaldskrá fyrir ný- skráningu hunds er í dag 20.800 krónur en verður eftir gjaldskrár- lækkun 2.000 krónur. Með eftirlits- gjaldi, sem er 9.900 krónur, mun gjaldið fyrsta árið verða kr. 11.900 sem er lækkun upp á 42,8 prósent. Lækka gjöld fyrir hunda Í Morgunblaðinu síðastliðinn mánu- dag, 31. maí, var ranglega sagt í um- fjöllun um athöfn við leiði Páls Ólafs- sonar skálds, að Ágúst H. Bjarnason hefði rakið ævi Páls í stuttu máli. Hið rétta er að það gerði Jón Bene- dikt Guðlaugsson en Ágúst, skipu- leggjandi athafnarinnar, rakti ferlið við leitina að leiði Páls, sem hafði verið týnt í Hólavallagarði áratugum saman. Þetta leiðréttist hér með og er beðist velvirðingar á rangherminu. LEIÐRÉTT Jón rakti ævi Páls
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.