Morgunblaðið - 03.06.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 03.06.2021, Síða 29
staða skapist um markvissar að- gerðir og fumlaus vinnubrögð. Auðugt myndefni hefur safnast sem að lokinni klippingu verður ein klukkustund, meðal annars mikið og fágætt efni sem sjón- varpsmenn og kvikmyndagerð- armenn tóku í gosinu. Myndin bregður upp ljósri mynd af því sem gerðist vikurnar og mánuðina eftir að gos hófst á Heimaey 23. janúar 1973. Á einni nóttu urðu til yfir 5.000 flótta- menn á Íslandi þegar Eyjamenn fóru á bátum sínum upp á land. Úti í Eyjum var reynt af litlum mætti að takast á við ógnina sem gosið var. Fljótlega komst skipu- lag á björgunarstarfið og er það rakið í myndinni. Líka þegar ráðist var gegn vánni sem hraunið var, fyrst með varnargörðum og nokkrum slöng- um slökkviliðsins, næst dæluskip- um og loks tugum dælna frá bandaríska hernum sem dældu óhemjumagni af sjó á hraunið vikum saman. Þeir sem unnu við að koma lögnum inn á hraunið standa undir nafninu, eldhugar, vaðandi reyk og eimyrju og stundum rammviltir inni á hrauni sem enn ruddist fram um leið og gos- bombum frá gosinu rigndi niður. Ekki má gleyma gasinu sem var lífshættulegt. Niðurstaðan er að hugmyndin sem tólgin kveikti bjargaði hús- um og öðrum mannvirkjum og gerði það að verkum að Flakk- arinn, norðurhlið eldfjallsins sem tók á rás yfir hraunið í átt að innsiglingunni, stoppaði á síðustu stundu. Þökk sé dælingunni. Bólstaður okkar allra Í myndinni sannast enn og aft- ur að Eyjamenn eru góðir sögu- menn sem gefur myndinni frek- ara gildi og alltaf sjá þeir björtu hliðina á málunum. Bæði í mót- byr og þegar allt leikur í lyndi. Bjartsýnir, en þá með báða fætur á jörðinni. En minningin lifir og eitt áhrifamesta atriði mynd- arinnar er þegar Siggi Óskars sýnir Gísla lykilinn að Bólstað. Grunnstefið í myndinni er staða mannkyns í dag, á tímum hamfarahlýnunar. Gísli er fædd- ur 1949 á Bólstað sem hann kennir sig í dag við, þetta litla hús við Heimagötu á Heimaey. Fór undir hraun en því hefði sennilega mátt bjarga ef fyrr hefði verið settur kraftur í dæl- ingu. Gísli sér víðari merkingu Bólstaðar, sem húss, heimilis, götu, bæjar, borgar, lands og alls heimsins. Allt eru þetta bólstaðir sem gætu hlotið sömu örlög og litla húsið í Vestmannaeyjum 1973. Aldrei áður hafði gosið í byggð á Íslandi og tjónið var mikið. Af um 1.200 íbúðum fóru um 400 undir hraun auk tjóns á fyrir- tækjum og vega- og lagnakerfi bæjarins. Gosið var blásið af þann 3. júlí 1973 en strax í febr- úar hófst hreinsun í bænum og var fólk byrjað að flytja heim áð- ur en gosinu var formlega lokið. Gísli og Valdimar nutu að- stoðar Ragnars Th. ljósmyndara sem tók drónamyndirnar. Báðir eru reyndir á sínu sviði, Gísli á að baki bækur sem gefnar hafa verið út víða um heim og Valdi- mar býr að áratugareynslu sem kvikmyndagerðarmaður. Saman leiddu þeir hesta sína í myndinni um Hans Jónatan, manninn sem stal sjálfum sér og byggir á sam- nefndri bók Gísla. Mikið ævintýri Valdimar segir að gerð mynd- arinnar hafi verið mikið ævintýri. „Eyjamenn eru alvörufólk sem hugsar í lausnum. Þeir hafa allir sínar skoðanir en reifa þær á kurteisan hátt. Byrjuðu með brunabíl í baráttunni við hraunið undir stjórn Þorbjörns Sigur- geirssonar, vísindamenn komu að þessu en pólitíkin vildi þvælast fyrir,“ segir Valdimar sem dáist að samstöðunni sem náðist. Kvikmynd verður ekki til á einni nóttu og segja þeir ferlið hafa tekið um fimm ár. „Við dutt- um ofan á mjög athyglisvert myndefni,“ segir Gísli, „eins og viðtal Magnúsar Bjarnfreðssonar við Þorbjörn og „time-lapse“- myndir sem minna á streymi af yfirstandandi gosi.“ „Ég held að ég hafi lært mikið af þessu. Við erum á þeim tíma- punkti að við þurfum að standa öll saman. Þegar kófið er búið kemur hlýnun jarðar. Finnst ég hafa þroskast við að gera þessa mynd, við að sjá að þegar fólk stendur saman þá er allt hægt,“ segir Valdimar að endingu. Myndin verður frumsýnd í Kviku bíói í Vestmannaeyjum á laugardaginn og fyrir almenning á sunnudag kl. 17. RÚV sýnir myndina á goslokum, sunnudaginn 4. júlí kl. 20:20. Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Í Eyjum Rætt er við Svanhildi Gísladóttur í heimildar- myndinni um hraunkælinguna í Heimaeyjargosinu. Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Fagnað Skálað að loknum myndatökum. Frá vinstri eru Valdimar, Guðný, Ásdís, Gísli, Ragnar og Bryndís. FRÉTTIR 29Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021 Bæjarlind 4 Sími: 510 7900 www.fastlind.is DÆMISÖGUR FRÁ VIÐSKIPTAVINUM: VILDARKORT LINDAR: HJÁ EFTIRFARANDI FYRIRTÆKJUM: 30%AFSLÁTTUR Húsgagnahöllin: 30% afsláttur af öllum vörum. Betra bak: 30% afsláttur af öllum vörum. Dorma: 30% afsláttur af öllum vörum. Flügger: 30% afsláttur af allri innimálningu. S. Helgason: 30% afsláttur af öllum borðplötum. Parki: 30% afsláttur af öllum vörum nema innréttingum. Z-brautir & gluggatjöld: 30% afsláttur af öllum vörum. Vídd: 30% afsláttur af öllum vörum. Húsasmiðjan: 30% afsláttur af hreinlætistækjum og ljósum. ATH!Afslátturinn gildir ekki á útsölum. Á Lind fasteignasölu starfa yfir 30 löggiltir fasteignasalar með áratugareynslu. Breytt aldursbil þeirra frá 25 ára til 66 ára og jafnt kynjahlutfall tryggir að allir ættu að geta fundið fasteignasala við sitt hæfi. Jónína, kona á besta aldri, keypti sér nýja íbúð. Hana vantaði öll ljós, parket og gardínur. Gamli sófinn hennar var líka of stór þar sem hún var að minnka við sig. Hún keypti það sem hana vantaði, viðar- parket, fallegar gardínur og myrkvunar- tjöld, borðstofuborð, stóla og sófa. Þar sem hún var í viðskiptum við Lind fasteignasölu og nýtti sér vildarkortið, sparaði hún umtalsverða fjárhæð. Með vildarkortinu sparaði hún sér: 458.978 kr. Jón og Gunna eru ungt par sem nýlega keypti sína fyrstu íbúð. Íbúðin þarfnaðist viðhalds og þau vantaði ný húsgögn, rúm og gardínur. Þau máluðu íbúðina, skiptu um gólfefni, tóku baðherbergið í gegn og skiptu um blöndunartæki. Þar sem þau voru í viðskiptum við Lind fasteignasölu fékkst 30% afsláttur af öllu því sem þau vanhagaði um. Með vildarkortinu spöruðu þau sér: 687.368 kr. Borgþór og Aníta eru hjón um fimmtugt. Þau keyptu sér gamalt einbýlishús sem þarfnaðist yfirhalningar. Þau tóku húsið meira og minna í gegn, skiptu um öll gólfefni, endur- nýjuðu tvö baðherbergi ásamt því að sparsla og mála allt húsið. Þau settu granítborðplötur í eldhúsið og annað baðherbergið, skiptu svo út öllum gardínum og keyptu sér að lokum nýtt rafmagnsrúm í versluninni Betra bak. Með vildarkortinu spöruðu þau sér: 1.442.500 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.