Morgunblaðið - 03.06.2021, Síða 74

Morgunblaðið - 03.06.2021, Síða 74
74 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2021 Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat, fyrrum aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun á þessu ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til framhaldsnáms erlendis á skólaárinu 2021-2022. Veittur er einn styrkur að upphæð 1.500.000 kr. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist til formanns sjóðsins á netfangið: jpj@i8.is fyrir 20. júní nk. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. 2019GeirþrúðurA.Guðmundsdóttir- selló 2018HrafnhildurM.Guðmundsdóttir-selló 2017 Sölvi Kolbeinsson-saxófón 2016BaldvinOddsson-trompet 2015RannveigMarta Sarc-fiðla 2014Sólveig Thoroddsen-harpa 2013Hulda Jónsdóttir-fiðla 2012BenediktKristjánsson-söngur 2011Matthías I. Sigurðsson-klarinett 2010GunnhildurDaðadóttir-fiðla 2009Helga ÞóraBjörgvinsdóttir-fiðla 2008 JóhannNardeau-trompet 2007MelkorkaÓlafsdóttir-flauta 2006Elfa RúnKristinsdóttir-fiðla 2005ÖgmundurÞór Jóhannesson-gítar 2004VíkingurHeiðarÓlafsson-píanó 2003BirnaHelgadóttir-píanó 2002LáraBryndís Eggertsdóttir-orgel 2001PálínaÁrnadóttir-fiðla 2000HrafnkellOrri Egilsson-selló 1999UnaSveinbjarnardóttir-fiðla 1998ÁrniHeimir Ingólfsson-píanó 1997ÞórðurMagnússon-tónsmíðar 1996 IngibjörgGuðjónsdóttir-söngur 1995 SigurbjörnBernharðsson-fiðla 1994GuðniA. Emilsson-hljómsveitarstjórn 1993TómasTómasson-söngur 1992ÞóraEinarsdóttir-söngur Ím y n d u n a ra fl / M -J P J F Y R R UM S T Y R K Þ E G A R www.minningarsjodur-jpj.is MINNINGAR SJÓÐUR JPJ Tilkynnt verður samtímis um styrkhafa fyrir 2020 og 2021. Styrkur til tónlistarnáms Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sýningar hófust í gær á nýrri ís- lenskri gamanmynd, Saumaklúbbn- um, sem leikstýrt var af Göggu Jóns- dóttur sem skrifaði einnig handrit myndarinnar með Snjólaugu Lúð- víksdóttur, handritshöfundi og uppi- standara. Í myndinni segir af hópi vinkvenna í saumaklúbbi sem halda saman í sumarbústað yfir helgi í þeim tilgangi að skemmta sér og hafa það huggulegt. Með í för er samstarfskona einnar þeirra og kárnar fljótlega gamanið þegar gamlar syndir koma upp á yfirborðið og uppgjör virðist óumflýjanlegt. Með hlutverk kvennanna fara Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Arndís Egilsdóttir og Helga Braga Jónsdóttir og nokkrir karlar koma einnig við sögu í litlum hlutverkum. Kvikmyndina framleiða þeir Örn Marinó Arnarson og Þor- kell Harðarson sem frumsýndu í fyrra hina mjög svo vinsælu gaman- mynd Síðustu veiðiferðina og fram- leiddu einnig Ömmu Hófí. Í Síðustu veiðiferðinni létu miðaldra karlar eins og kjánar en nú eru það mið- aldra konur. Nauðsynlegt að grínast Saumaklúbburinn er að mörgu leyti svar kvenna við karlamyndinni Síðustu veiðiferðinni og segist Gagga ekki hafa verið ein um þá hugmynd að gera þyrfti kvennamynd á móti karlamyndinni. Hún hafi sent Erni Marinó og Þorkeli skilaboð degi eftir að hafa séð myndina og áttuðu þeir sig strax á því hvað klukkan sló. Nú eru tökur hafnar á annarri gaman- mynd þeirra félaga í Veiðiferða-syrp- unni og fleiri eru fyrirhugaðar. Saumaklúbburinn er fyrsta kvik- myndin sem Gagga leikstýrir en hún hefur áður leikstýrt tveimur þáttum í gamandramasyrpunni Borgarstjór- anum. Gagga er spurð að því hvort húmorinn sé ekki töluvert öðruvísi í Saumaklúbbnum. „Já og nei,“ svarar hún, „það eru alveg alvarlegheit þarna á bak við.“ Henni hafi enda verið bent á að ekkert sé fyndnara en óhamingjan. „Það er svolítið þannig,“ segir hún kímin og að hún viti til þess að fólk í háalvarlegum störfum þurfi að slá á létta strengi til að draga úr álaginu. Miðaldra áhrifavaldar Gagga segist hafa lagt fram grunnhugmynd að handritinu og þær Snjólaug unnið út frá henni og búið til persónur, ólíkar týpur kvenna. „Þetta eru konur sem við þekkjum, smá erkitýpur kannski, gamlar vin- konur og þetta eru mjög íslenskar konur, myndi ég segja. Þær eru ólík- ar. Það er múltítaskarinn sem er kappsfull og fyrrverandi íþróttakona sem er alltaf með allt á fullu og stoppar aldrei. Svo er það verkakon- an og gamla skutlan.“ – Og fína frúin sem rekur lífsstíls- eða húsgagnaverslun … „Já, það er „doer-inn“, sú sem stoppar aldrei og er alltaf að tappa inn á nýjasta nýtt.“ – Hún er uppinn í hópnum? „Já, hún er uppinn í hópnum og áhrifavaldur,“ svarar Gagga og blaðamaður nefnir þá að maðurinn hennar, Þorsteinn Bachmann, hafi einmitt leikið uppann í hópnum í Síð- ustu veiðiferðinni. „Já, hún myndi blikka hann og hún er svona keppn- ismanneskja, áfram veginn, og það væri enginn saumaklúbbur ef ekki væri fyrir hana,“ segir Gagga. Jóhanna Vigdís leikur þá kapps- fullu konu, Írisi, og Helga Braga samstarfskonu hennar, Sif, sem er í alls konar kukli og nýaldarfræðum. Þær eru að hasla sér völl á netinu. „Miðaldra áhrifavaldar, ég er búin að kynna mér þá og það er mikið að gera í því úti í heimi, skal ég segja þér,“ segir Gagga kímin um þær stöllur. „Okkar kona, uppinn í hópn- um, nýtir tækifærin í rauninni. Hún er að gera eitthvað eitt og getur yfir- leitt snúið því þannig að hún fái eitt- hvað út úr því á öðrum vígstöðvum líka. Hún leggur upp með það en þetta snýst svolítið í höndunum á henni.“ Kúgaðist yfir fötunum – Ein af mínum uppáhaldspersón- um í myndinni er sú sem Elma Lísa leikur, Eydís, þessi sem hefur búið erlendis og finnst allt betra þar og allt ömurlegt á Íslandi. Þetta er týpa sem við þekkjum. „Jú, svolítið allir sem flytja til út- landa og eru svo liggjandi á Face- book tólf tíma á dag,“ segir Gagga kímin. „Ég þekki þetta alveg sjálf úr minni æsku, það var allt svona og hinsegin og þetta er líka bara Reykjavík á móti landsbyggðinni. Henni þykir þær dálítið óuppdregn- ar, vinkonur hennar, og hún er í allt öðrum bransa en þær, tískubrans- anum, og það er líka svolítið spes að vera í honum.“ Vinkvennahópurinn er trúverð- ugur í myndinni og segir Gagga að persónurnar hafi líka mótast á æf- ingum og við samlestur. „Þær fóru dálítið vel í sínar konur,“ segir Gagga um leikkonurnar, baksögur búnar til um persónurnar og þar fram eftir götunum. – Það er líka sögn í klæðaburði kvennanna, er það ekki? „Jú og það var svolítið úthugsað því myndin gerist öll í bústaðnum og við lögðum mikið í búningana, klæða- burðinn og týpurnar þar af leiðandi,“ segir Gagga og að förðunin hafi líka skipt miklu máli. Eydís, sú sem hefur búið til fjölda ára á Ítalíu og starfað í tískubransanum, er í áberandi dýrari og fínni fötum en hinar en Ella, sem Edda Björg leikur, er hins vegar í pleðurbuxum og snákaskóm, svo dæmi séu tekin. Arndís Hrönn leikur leikskóla- stjórann Steingerði og segir Gagga að hún hafi kúgast þegar hún sá fötin sem hún átti að vera í í myndinni. „Ég held að hún hafi aldrei verið í svona ljótum fötum í lífinu því Arndís er mjög smart. En það eru alveg konur þarna úti sem hafa áhuga á öðru en í hverju þær eru og Stein- gerður er ein af þeim.“ Gagga segir myndina fjalla að hluta til um að í samtímanum á tím- um samfélagsmiðla eigi allt að vera svo gott, skemmtilegt og huggulegt. Ekkert pláss fyrir einhvers konar vanlíðan. „Svo gerist eitthvað óhjá- kvæmilega þarna sem fær þær til að líða mjög illa en í staðinn fyrir að opna sig fer allt í bál og brand,“ segir Gagga um sumarbústaðarferðina og að vonandi muni sem flestir njóta hennar í sumar. Heilun Helga Braga í hlutverki Sifjar að leiðbeina saumaklúbbnum í einhvers konar heilunaræfingu í sumarbústaðarferðinni afdrifaríku. Ekkert er fyndnara en óhamingjan - Saumaklúbburinn er fyrsta kvikmynd Göggu Jónsdóttur - Gamanmynd um vinkonur sem fara í sumarbústað til að njóta lífsins - „Þetta eru mjög íslenskar konur,“ segir Gagga um vinkonurnar Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir Leikstjóri Gagga Jónsdóttir. Listahátíð í Reykjavík 2020 lýkur formlega síðar í þessum mánuði og varð að fresta nokkrum við- burðum á aðaldagskrá sökum ferða- og samkomutakmarkana og færast flestir þeirra fyrir vikið yf- ir á næstu hátið. Í júní fara fram síðustu þrír við- burðir hátíðarinnar 2020. Sá fyrsti er Einangrun, samskotsverk úr smiðju Leikhópsins Lakehouse þar sem raðað er saman ljóðum, örsögum og stuttum leikþáttum, eins og segir í tilkynningu. Ellefu höfundar víða af landinu lögðu til efnivið og úr varð 30 mínútna verk sem birtist í óvenjulegu um- hverfi, á flugvöllum í fjórum landshlutum, í flutningi Guð- mundar Inga Þorvaldssonar, leik- ara og tónlistarmanns. Sýningar fara fram 10. júní á Reykjavík- urflugvelli kl. 17, 11. júní á Egils- staðaflugvelli kl. 15:15 og kl. 18.45 hinn 12. júní á Akur- eyrarflugvelli kl. 13 og 17 og 13. júní á Ísafjarðarflugvelli kl. 10.20 og kl. 17. Innsetningin Meira ástandið eft- ir hljóðlistakonuna Inki, Ingi- björgu Friðriksdóttur, verður í Hörpu, verk sem samanstendur af átta rása hljóðverki, vídeóverki og bókverki en við rannsókn verksins safnaði listakonan saman 850 setningum, setningarbrotum og frösum úr blaðagreinum frá árunum 1940 til 1945 sem undir- strika sýn samfélagsins á „ástand- ið“ svonefnda. Innsetningin verð- ur opin í fjölnota rými í neðri bílakjallara Hörpu 12.-19. júní og aðgangur er ókeypis. Þriðji og síðasti viðburðurinn nefnist Hljóðmyndir og segir um hann að með hjálp tækni sem sé göldrum líkust séu gestir leiddir um ómælisvíðáttur hljóðheima þar sem þeirra bíði ýmislegt óvænt, áhrifaríkt og hljómmikið. List- rænir stjórnendur eru Curver Thoroddsen, Þóranna Dögg Björnsdóttir, Francisco López, Barbara Ellison, Ríkharður H. Friðriksson, Lydía Grétarsdóttir og Sóley Sigurjónsdóttir. HljóðMyndir fara fram í Laug- arásbíói 19. júní kl. 11 og miða- verð er kr. 1.650. Lokaviðburðir Listahátíðar Einangrun Verkið verður í flutningi Guðmundar Inga Þorvaldssonar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.