Þjóðmál - 01.09.2018, Side 55

Þjóðmál - 01.09.2018, Side 55
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 53 Fyrir skömmu var fjallað um lítið dæmi um þetta í fjölmiðlum sem er engu að síður mjög lýsandi fyrir stöðuna almennt. Þar kom fram að Umhverfisstofnun hefði við eftirlit með húðsnyrtivörum skoðað 32 vörur frá ríkjum utan EES og gert athugasemdir við tólf þeirra þar sem þær reyndust ekki standast kröfur í regluverki Evrópusambandsins. Flestar hefðu þær komið frá Bandaríkjunum en einhverjar frá Asíu. Engin hætta hefði þó verið á ferðum að sögn stofnunarinnar enda engin bönnuð innihaldsefni í vörunum. Hins vegar hafði í einhverjum tilfellum láðst að tilnefna ábyrgðaraðila fyrir viðkomandi vörur, en þeir eiga að sjá um að skrá þær í snyrtivöru­ gátt Evrópusambandsins, setja saman vöru­ upplýsingaskjal og tryggja að merkingar á þeim uppfylli reglur sambandsins, og/eða að þær höfðu ekki verið skráðar í gáttina. Þá vantaði upplýsingar á umbúðir í tveimur tilfellum. Viðbrögð Umhverfisstofnunar eru að sögn Einars Oddssonar, sérfræðings hjá stofnun inni, í samtali við mbl.is að gera kröfur um úrbætur innan ákveðins frests að viðlögðum þvingunaraðgerðum sem gætu falizt í stöðvun á markaðssetningu og dag­ sektum. Þetta yrði til þess í sumum tilfellum að birgjar tækju vöruna af markaði hér á landi.11 Hliðstæð sjónarmið komu fram á fundi sem haldinn var í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálf­ stæðis flokksins, af utanríkismálanefnd flokks­ ins fyrir fáeinum árum þar sem mættir voru fulltrúar fyrirtækja sem átt hafa í við skiptum í Bandaríkjunum, þar á meðal Iceland air, Marels og Inness. Þar kom að sama skapi fram að regluverk Evrópusambandsins í gegnum EES­ samninginn væri mjög til trafala þegar kæmi að slíkum viðskiptum. Regluverkið virkar eins og tollabandalag Helzta vandamálið við aðild Íslands að EES­ samningnum er það að hún gerir landið of háð viðskiptum við Evrópusambandið með því að gera viðskipti við ýmis önnur markaðssvæði erfiðari. Þannig hegðar EES­ samningurinn sér í raun eins og tollabandalag í gegnum regluverk sambandsins enda beinlínis markmiðið í mörgum tilfellum. Þessi staða er bæði hættuleg efnahagslega og pólitískt. Efnahagslega einkum vegna mögulegs samdráttar á viðkomandi markaði og pólitískt þar sem ráðamenn í Brussel hafa þegar sýnt að þeir eru reiðubúnir að notfæra sér þessa stöðu gegn Íslandi, eins og gerðist til að mynda í makríldeilunni þegar þeir voru komnir á fremsta hlunn með að beita landið refsiaðgerðum. Hér er þess utan einfaldlega á ferðinni hið sígilda heilræði að geyma ekki öll eggin í sömu körfunni. Íslendingar þurfa að hafa greiðan aðgang að sem flestum mörkuðum og þá ekki sízt mörkuðum framtíðarinnar. Því miður bendir flest til þess að það eigi ekki við um Evrópusambandið. Þannig hefur hlutdeild sambandsins í heimsviðskiptunum dregizt saman á liðnum árum og mun sú þróun líklega halda áfram. Þannig má til að mynda nefna að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir ráð fyrir að 90% af hagvexti í heiminum í framtíðinni verði utan Evrópusambandsins og hefur sambandið tekið undir það.12 Fyrir liggur að Evrópusambandið er hlutfalls­ lega hnignandi markaður, eins og Jean­ Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, viðurkenndi um árið.13 Evrópusambandið hefur í raun aldrei verið sérlega áhugasamt um fríverzlun, sem er ein af ástæðum þess að Bretland er á leið úr sambandinu.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.