Þjóðmál - 01.09.2018, Page 77

Þjóðmál - 01.09.2018, Page 77
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 75 Hann lét svo um mælt, að ef allsherjarþingið tæki ekki af skarið, mundi það bregðast skyldu sinni og þá yrði ein hjartfólgnasta von mannkynsins að engu. Ég hélt til aðalstöðva allsherjarþingsins, þar sem mikil spenna ríkti. Blaðamenn og frétta­ menn sjónvarps og hljóðvarps um heim allan voru samankomnir í anddyri og göngum, en sæti allra fulltrúa voru skipuð og gestapallar voru þéttar setnir en nokkru sinni áður. Sameinuðu þjóðunum gafst einstakt tækifæri snemma á ferli sínum. Á forsætispalli sátu þeir, fölir og hátíðlegir, Oswaldo Aranha, Trygve Lie og Andrew Cordier, aðstoðarframkvæmdastjóri, sem var vel í holdum. Aranha setti fundinn og gaf fulltrúa Íslands orðið. Thors var frábær, mér til mikil hugarléttis. Hann sagði með miklum sannfæringarkrafi að þótt allar leiðir hefðu verið kannaðar, væri hann og samnefndar­ menn hans sannfærðir um, að samkomulag væri ekki fært fyrir fram. Eina sáttavonin væri fólgin í úrskurði og ákvörðun. Ef heims­ byggðin væri staðföst í stuðningi sínum við skiptingu, þá yrði skipting veruleiki og þeir, sem væru henni andvígir nú, ættu ekki annars úrkosti en að falla á hana. Loks var ræðuhöldum lokið og hátíðleg þögn varð í salnum. Aranha tilkynnti þá ákvörðun sína, að efnt skyldi til atkvæðagreiðslu með nafnakalli. Sumu okkar, sem vorum við staddir, er enn í minni raddblær Cordiers, þegar hann þuldi atkvæðin. „Argentína?“ „Greiðir ekki atkvæði.“ „Afghanistan?“ „Nei“. „Ástralía?“ „Já“. „Belgía?“ „Já“. „Bólivía?“ „Já“. „Byelo­Rússland‘“ „Já“. Og þannig hélt það áfram. þegar Frakkland sagði háum rómi „Oui“ kváðu við fagnaðaróp, sem Aranha þaggaði samstundis niður. Þegar stafrófið var hálfnað, vissum við, að okkur var örugglega borgið. Að endingu, þegar Júgóslavía hafði tilkynnt, að hún „greiddi ekki atkvæði“, heyrðum við hin sögulegu orð: „Þrjátíu og þrír með, þrettán á móti, tíu sátu hjá, einn fjarverandi. Ályktunin er samþykkt.“ Ég fór fram í anddyrissalinn, þar sem hrifinn manngrúi faðmaði sendinefnd Gyðinga að sér. Þarna voru Gyðingar grátandi og aðrir, sem voru ekki Gyðingar, komust við vegna þessa dýrðlega atviks. Enginn, sem lifði þetta andartak, mun nokkru sinni glata minningu þess úr hjarta sér. Áður birt í „FRIÐARÁR 1986 - Fjörutíu ára aðild Íslands að Sameinuðu þjóðunum”, afmælisblaði Félags SÞ á Íslandi, ritstj. Ragnar F. Ólafsson Thor Thors fæddist í Reykjavík 1903. Hann lést árið 1965, á 62. aldursári. Hann var sem kunnugt er bróðir Ólafs Thors alþingismanns og ráðherra. Árið 1940 var hann skipaður aðalræðismaður í New York og ári síðar sendiherra í Banda­ ríkjunum en því embætti gegndi hann til æviloka. Hann var jafnframt formaður sendinefndar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum frá upphafi 1946 til æviloka. Samhliða var hann jafnframt skipaður árið 1947 sendiherra í Kanada, 1952 sendiherra í Argentínu og Brasilíu og 1956 á Kúbu.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.