Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 95

Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 95
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 93 Vandi samtímans er að hinar stefnurnar, kommúnisminn og fasisminn, sem áttu að vera svör við frjálslyndri markaðs­ og einstaklingshyggju, hafa reynst enn verri. Þeir sem leita annarra leiða í stjórnmálum hafa því ekki í mörg hús að venda. Það sem er athyglisverðast við skrif Deneen er hvernig hann rökstyður að frjálslyndi kalli á aukna skriffinnsku, regluverk og útþenslu ríkisvaldsins. Einstaklingshyggjan og trúin á ríkið haldast í hendur, segir hann (bls. 17). Aukinni markaðsvæðingu fylgir aukin skriffinnska og miðstýring, en líka einmana­ leiki og niðurbrot smærri samfélaga þar sem fólk fær notið sín sem félagsverur. Hann segir líka að þrátt fyrir allt tal um jafnrétti stuðli frjálslynd samfélög í raun að viðhaldi stétta­ skiptingar og noti menntakerfi sín til þess (bls. 134). Samkvæmt því sem Deneen segir er frjáls lyndi samtímans spunnið úr hugsun af tvennu tagi. Annars vegar úr einstaklingshyggju sem gerir ráð fyrir að hver og einn velji sér líf að eigin vilja og hins vegar úr heimspeki sem að greinir manninn frá náttúrunni (bls. 31). Þessa tvenns konar hugsun rekur hann til heimspekinga sem uppi voru fyrir þremur til fjórum öldum, einkum til Englendingsins Thomasar Hobbes. Gegn þessari samsuðu einstaklingshyggju og tvíhyggju teflir Deneen fram eldri viðhorfum sem gera ekki ráð fyrir að menn séu fæddir frjálsir heldur að þeir þurfi að læra að vera frjálsir og stjórna sér sjálfir (bls. 111). Hann vitnar í Rússann Alexander Solzhenitsyn, sem sagði að frjálslyndi stæðist ekki, vegna þess að það gerði ráð fyrir að hver og einn þjónaði lund sinni, en hugmyndafræðin rúmaði ekki sjálfs stjórn. Hún gerði ekki ráð fyrir öðru taumhaldi en löggæslu ríkisins (bls. 83). Útúrdúr um James C. Scott Hægt er að nálgast sömu sannindi með ýmsu móti og skýra það á ólíka vegu hvers vegna mönnum er mikilvægt að læra að stjórna sér sjálfir með fleiri ráðum en því einu að ríkið setji lög og refsi fyrir brot á þeim. Bandaríski mannfræðingurinn James C. Scott hefur skrifað margt um ólán og afglöp sem fylgja miðstýringu, ríkisvæðingu og regluverki. Í þekktustu bók sinni, sem heitir Seeing like a state (Með augum ríkisins), fjallar Scott meðal annars um hvernig gamalgrónar borgir vinna gegn glæpum og tryggja öryggi með því að nágrannar líti til hver með öðrum. Þar sem smákaupmenn, veitingamenn og fleiri þekkja sitt heimafólk og sjá yfir götur og torg vex einhvers konar nágrannavarsla af sjálfri sér. En „þéttbýli þar sem enginn nema lögreglan sér um að halda reglu á hlutunum er afar hættulegur staður“ segir Scott (1998, bls. 136). Þar sem vinnan er markaðsvara og einkalíf aðgreint frá atvinnulífi er fólk lítt bundið átthögum sínum og flytur ýmist þangað sem vinnu er að hafa eða býr í hverfum þar sem það þekkir ekki fólkið í næstu húsum. Mér virðist sennilegt að þetta ýti undir ástand af því tagi sem Scott varar við, þar sem lög reglan ein sér um að hafa hemil á fólki. Ef það gerist verður væntanlega þörf fyrir aukin umsvif löggæslu og refsikerfis, meira regluverk, eftirlit og miðstýringu. Eftir því sem Scott (2012, 2017) segir hefur stór hluti mannkynsins lengst af lifað bæði án eiginlegs markaðshagkerfis og án ríkis­ valds. Það var fyrir minna en fjögurhundruð árum sem ríkisvald tók að móta lífsskilyrði þorra jarðarbúa. Síðan hefur vöxtur þess haldist í hendur við aukna markaðsvæðingu og einstaklings hyggju. Scott veltir því fyrir sér hvort þetta hafi eyðilagt getu fólks til að koma á og viðhalda skipulagi sem byggist á samvinnu jafningja fremur en valdstjórn: Hvort ríkið ali upp þýlynt fólk og fylgispakt og komi beinlínis í veg fyrir að við lærum að lifa sem frjálsir menn og sjá fótum okkur forráð. Scott kynnir sig sem róttækling og stjórn­ leysingja en flest orðalagið hjá Deneen bendir fremur til varfærni og íhaldssemi. Þeir eiga það þó sameiginlegt að standa utan við þá breiðu miðju sem ég lýsti í byrjun og hugmyndir þeirra eru að ýmsu leyti svipaðar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.