Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Blaðsíða 131
Vopnafjörður-danskur kaupstaður
Kornhúsið og Ullarhúsið byggð af 0rum & Wulff. Mynd í eigu Aagotar Arnadóttur frá Vopnafirði. Húsin eru nú
uppgerð í Arbœjarsafni.
Austurlandi og þar á meðal Vopnaijörð. Frá slíkum höfnum var einkum flutt sauðakjöt sem
brytjað var niður í tunnur, smjör, tólg og aðrar hefðbundnar landbúnaðarafurðir, aðallega ull,
vaðmál og skinnavara. Þegar kom fram á 17. öld lærðu Islendingar að prjóna, líklega kom sú
kunnátta frá Þýskalandi, og þá tók prjónlesið smátt og smátt við af vaðmálinu sem ein helsta
útflutningsvaran. Besta prjónlesið kom frá norðaustanverðu landinu.
Margir af kaupmönnum sem fengu einstakar hafnir á Islandi voru lánardrottnar Danakon-
ungs. Hann var háður þeim með vopn og vistir í hinum mörgum stríðum sem hann tók þátt
í og launaði þeim meðal annars með einkarétti á íslenskum höfnum. Þetta átti t.d.við um
borgarann Herman von Oldenseel í Liibeck sem fékk Vopnaijörð árið 1566, hann virðist
hafa verið einn af birgjum Danakonungs og hefur líklega fengið Vopnaijörð að léni sem lið
í þeim viðskiptum.
Fyrir utan Vestmannaeyjakaupmenn voru sárafáir Danir meðal Islandskaupmanna fram til
þess að dönsku einokunarversluninni var komið á fót árið 1602. Ein helsta undantekningin var
Marcus Hess sem líklega hefur verið af þýskum eða hollenskum uppruna þó að hann byggi
í Kaupmannahöfn. Þar var hann ríkastur allra kaupmanna og borgarstjóri um áratugaskeið.
Árið 1569 hafði Marcus Hess 12 kaupskip í förum sem fóru viða um lönd og voru allir skip-
stjórar hans nema einn frá Fríslandi í Hollandi. I Sjö ára stríðinu 1563 - 1570 tók Marcus
Hess að lána konungi peninga eða útvega honum lán frá Hollandi. Ennfremur útvegaði hann
hirðinni klæði, silki, stangarjárn, kopar og aðra kaupmannsvöru. Árið 1569 tók hann að sér
að útbúa nýtt stríðsskip konungs og var konungur honum lengi skuldugur á eftir.
Það var því ekki óvænt þegar Friðrik II tók að veita Marcusi Hess íslenskar hafnir að léni.
Árið 1566, er hann stóð á fertugu og nýorðinn borgarstjóri Kaupmannahafnar, fékk hann sínu
fyrstu höfn á íslandi. Það var fískihöfnin Básendar á Suðumesjum. Tíu ámm síðar fékk hann
Hafnarfjörð og Vopnafjörð til þriggja ára. Hann hélt þessum höfnum þó ekki lengi því að 1579
129