Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Qupperneq 134
Múlaþing
eru til frá gefa þó litla heildarmynd af rekstri Islandsk kompagni í þau rúmlega fjörutíu ár
sem það starfaði.
Sjötti áratugur 17. aldar varð Islandsk kompagni þungur í skauti af mörgum ástæðum.
Kom þar margt til, ekki síst styrjaldir milli Dana og Svía. Svíar tóku nokkur kaupskip Islandsk
kompagni herskildi með farmi og áhöfnum en öðrum hlekktist á eða komu aldrei fram. Islandsk
Kompagni var því á endanum leyst upp. Nýtt Islandsfélag var stofnað sumarið 1662, það var
byggt á helmingaskiptareglu og var kallað Félag aðalútgerðarmanna (De fire Hovedparticip-
anter). Islandi var skipt í ijögur kaupsvið. I raun og veru skiptu helstu fjármálajöframir, sem
konungur var skuldbundinn, Islandi á milli sín.
Eitt af þessum kaupsvæðum náði yfir hafnimar Vestmannaeyjar og Eyrarbakka við suður-
strönd Islands, Hafnaríjörð við Faxaflóa, Hofsós á Norðurlandi og Vopnaljörð á Austurlandi.
Hans Nansen, hinn voldugi borgarstjóri og forystumaður borgara í Kaupmannahöfn, fékk
þetta kaupsvæði í sinn hlut ásamt tengdasyni sínum, Find Nielsen Trellund sem einnig varð
borgarstjóri Kaupmannahafnar. Nansenarnir bám hitann og þungann af Vopnafjarðarverslun
um áratugaskeið og ætla ég að segja nokkuð gjörr frá þeim.
Hans Nansen eldri hafði miklu meiri persónuleg kynni af Islandi og Islendingum en aðrir
forkólfar Islandsk kompagni og raunar flestir aðrir Islandskaupmenn á þessum tíma. Hann er
líka mjög þekkt nafn í danskri sögu og í Kaupmannahöfn ber breið og mikil gata nafn hans
enn þann dag í dag og er kölluð Nansensgata.
Nansen var af borgaralegum ættum, fæddur 1598 í Flensborg sem þá var lífleg versl-
unar- og siglingaborg. Hann missti föður sinn ungur og fylgdi eftir það föðurbróður sínum
og alnafna sein var skipstjóri og tók hann með sér í siglingar norður í Dumbshaf þar sem þeir
lentu í hvers kyns hættum. Meðal annars urðu þeir tvisvar fyrir árásum frá enskum sjóræn-
ingjum. Þetta mótaði og herti drenginn og um tvítugt fór hann á eigin vegum í verslunarferðir
til Rússlands og lærði þá rússnesku. Arið 1619, er hann var aðeins 21 árs gamall, skipaði
Kristján konungur hann leiðangursstjóra í könnunarferð um Ishafið. Heimkominn gekk hann
svo í þjónustu Mikkels Vibe borgarstjóra og Islandskaupmanns, stærsta hluthafans í Islandsk
kompagni og var ráðinn í þjónustu félagsins. Eftir það sigldi Nansen að sögn næstu átján sumur
samfleytt til íslands eða allt til ársins 1639. Við það fékk hann góða þekkingu á landinu og
lærði íslensku nokkuð. Nansen var bókhneigður og safnaði bókum og hefur sjálfsagt eignast
helstu íslensku bækur sem þá höfðu verið prentaðar. I raun varNansen mikill lærdómsmaður
þótt ekki væri hann háskólagenginn Hann talaði dönsku, þýsku, rússnesku og hollensku en
auk þess gat hann bjargað sér á sænsku, ensku og íslensku. Náttúruskoðun lá og í eðli hans.
Hann gerði sér m.a. far um að kynna sér náttúru Islands, lifnaðarhætti Islendinga og sögu
þjóðarinnar. Hann var afar vel látinn á Islandi og átti í bréfaskriftum við helstu menn á Islandi
sem leituðu jafnan til hans ef þá vanhagaði um eitthvað.
Meðan Hans Nansen var í þjónustu Islandsk Kompagni skiifaði hann rit sem byggði á
lærdómi hans og siglingum í Norðurhöfum. Kom það út árið 1633 og nefndist Compendinm
Cosmographicum & Cron/ologicum eða Stutt lýsing á öllum heiminum. Þetta var í senn
landafræði, stjörnufræði, eðlisfræði, sjómannafræði, rímfræði og leiðalýsing og náði það
miklum vinsældum, ekki síst meðal sjófarenda, þannig að ritið var prentað hvað eftir annað.
Árið 1639 var hann svo kallaður til Kaupmannahafnar til að taka við forstöðu Islandsk komp-
agni og var þá orðinn hluthafi í félaginu. Gegndi hann því starfí í tíu ár. Sama ár og hann
132