Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Page 138
Múlaþing
Undir aldalokin syrti mjög í álinn fyrir Kyhn, hann var mjög deilugjam og í stöðugum
málaferlum og lenti í miklum fjárkröggum. Lenti hann upp á kant við samstarfsmenn sína,
þá Niels 0rum og Jens Andreas Wulff, og slitu þeir félagsskap við hann og stofnuðu sitt eigið
fyrirtæki. Það hlaut nafnið 0mm & Wulffog stofndagurinn telst 13. september 1795. Málaferli
milli þeirra félaga og Kyhns enduðu með því að Kyhn var dæmdur frá æm og búslóð með
hæstaréttardómi 1808 og endaði hann ævi sína í fangavist mörgum árum seinna.
Kyhn missti fótanna í Vopnafírði eins og annars staðar upp úr 1800 og virðast tvö þýsk
félög þá hafa keypt verslunareignirnar þar, annað frá Hamborg en hitt frá Altona. Engum
sögum fer þó af verslun þessara félaga enda Napóleonastyrjaldir í hámarki og sigling til
landsins stopul. Furðu sætir reyndar að félag frá Hamborg hafi reynt fyrir sér í verslun á
Islandi því hún var þá einungis heimil þegnum Danakonungs. Altona sem er skammt frá
Hamborg er hins vegar í Holtsetalandi sem þá heyrði undir Danakonung. Arið 1813 keypti
Bjami Sívertsen riddari Vopnaljarðareignir en mun aldrei hafa stundað þar verslun því engin
verslun var á Vopnafirði áámnum 1810-1814.
Arið 1814 keyptu 0mm & Wulff Vopnaijarðarverslun. Pakkhúsin tvö sem flutt voru
héðan til Reykjavíkur og em nú í Arbæjarsafni em talin reist af því íyrirtæki á fyrstu árum
þess á Vopnafírði í kringum 1820 eða 1830. Er leitt að þau skulu ekki enn vera á uppruna-
legum stað. Eftir að 0rum og Wulfif tóku við rekstri Vopnaijarðarverslunar varð hún brátt
allumsvifamikil og þaðan var síðan rekin mikil lausaverslun á höfnum nyrðra og eystra.
Verslun 0rum og Wulff á Vopnafírði stóð óslitið í rúma öld og lauk ekki fyrr en 1918.
Fyrirtækið var lengst af þessum tíma hið langöflugasta á Norður- og Austurlandi og var
samtímis með verslun á ijölmörgum stöðum. Ekki hefur saga fyrirtækisins verið skráð en
þess skal getið að öll verslunargögn þess eru til og em geymd í skjalasafni atvinnulífsins,
svokölluðu Erhverfsarkiv, sem staðsett er í Arósum á Jótlandi. Eru þar vafalaust fleiri tonn
af verslunarbókum og þar á meðal bréfabækur og bréf sem geyma skýrslur verslunarstjóra
til eigenda fyrirtækisins í Danmörku. Þar er lykillinn að verslunarsögu og að mörgu leyti
héraðssögu Vopnaijarðar á 19. öld.
Um stofnendur fyrirtækisins þá 0rum og Wulff er það að segja að Niels 0rum dó árið
1828 og hélt ekkja hans þá áfram sem eigandi fyrirtækisins ásamt Wulffi Hún dó árið 1834
og þá kom nýr maður inn í fyrirtækið sem eigandi í hennar stað. Sá hét Andreas Hemmert,
var íslenskur að móðurkyni, alinn upp á Akureyri. Hemmert var svo aðalstjómandi fyrirtæk-
isins til dauðadags 1863 og síðan sonur hans Jens Andreas Hemmert þar til hann dó 1877.
Jens Andreas Wulff dó 1851 og tók þá sonur hans og alnafni við hans hlut í fyrirtækinu.
Hann dó 1873 og var þá Jens Andreas Hemmert einkaeigandi í fjögur ár. Við dauða hans
1877 var ekkjan, Harriet Hemmert, fædd Jensen, skráð fyrir fyrirtækinu en við dauða hennar
1882 tók bróðir hennar, Johannes J. Jensen við stjómartaumunum. Hann var ekki langlífur,
dó 1886 og þá var komið að föður þeirra, Jörgen Jensen hörkramara í Kaupmannahöfn að
halda um stjómartaumana. Árið 1895 var 0rum og Wulff svo breytt í hlutafélag og mun fyr-
irtækið Henriques & Zöllner í Kaupmannahöfn, sem var stærsti útflytjandi íslensks saltfisk
til Miðjarðarhafslanda, hafa verið stærsti hluthafmn.
Það er gaman til þess að vita að Vopnfírðingar sem leggja leið sína til Kaupmannahafnar
geta farið á söguslóðir 0mm og Wulff, séð hús þeirra og pakkhús sem enn standa þar flest
með góðum blóma. Fram til um 1855 var fyrirtækið til húsa í Nýhöfn 10 og þar var einnig
heimili Jens Andreas Wulff, annars stofnanda þess. Upp frá því flytur það sig um nokkrar
136