Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Síða 162
Múlaþing
irmynd er eitthvað sem mætti miða við í þróun
námsbrauta á landsbyggðinni. Viðfangsefnið
hefur tilvísun í umhverfi og samfélag á eyjunni
Lews nyrst í Skotlandi.
Jönköbing University, þátttakandi í
netháskóla Svíþjóðar
Háskólar í Svíþjóð vinna mikið með fræðslu-
miðstöðvum. I tengslum við slík setur eru oft
þekkingarsetur og stofnanir sem sinna þróun og
rannsóknum tengdum sérstöðu ólíkra svæða.
Fræðslumiðstöðvamar em kostaðar af sveitar-
félögum og fyrirtækjum en kenndir eru ein-
ingabær námskeið og náinsbrautir á háskóla-
og framhaldsskólastigi í miðstöðvunum auk þess sem þær sinna símenntun, raunfærnimati og
hæfnisuppbyggingu í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir. Þetta módel gæti verið fyrirmynd
að samstarfi háskóla, atvinnulífs, fræðslumiðstöðva og þekkingarsetra á Islandi. JU vinnur
gæðastaðla og handbók fyrir fræðslusetur í tengslum við verkefnið.
I Svíþjóð er samræmd upplýsingasíða um allt háskólanám í landinu. Þar er einnig samræmd
nemendaskráningakerfi háskóla.
Smart Labrardor, Nýfundnalandi og Kanada
Öll skólastig í Labrador og Nýfundnalandi í Kanada nota sama rafræna námsumhverfið á
öllum skólastigum. I Kanada er mikil ánægja með þetta fýrirkomulag. A Islandi er verið að
nota mörg mismunandi námsumhverfi en það mætti auðveldlega sjá fyrir sér að Island myndi
taka upp eitt rafrænt kerfi. Samræmt umhverfi gæti orðið til þess að einfalda samstarf allra
skólastiga við þróun náms auk þess að bæta þjónustu við nemendur umtalsvert og auðvelda
nemendum þannig námið.
Fyrirkomulag dreifmenntunar er mjög gott í Kanada enda dreitbýli mikið og rík hefð fyrir
samstarfi skóla á þessu sviði, samanber samstarf háskóla um Canadian Virtual University
og samstarf framhaldsskóla í Canadian Virtual College Consortium. Þar hafa háskólar og
framhaldsskólar unnið saman að samræmdu framboði á dreifnámi.
Af ofangreindu má sjá að það er margt sem má læra og yfirfæra frá nágrönnum okkar
í vestri og austri. Þróun
háskólanáms hvort sem er
á landsbyggð eða í borg-
arbyggðum er að horfa
til þarfa nemenda, þróa
sveigjanlegt nám, auka
framboð á námi og byggja
upp menntakerfi sem opnar
á möguleika dreifbýlis til
að taka þátt í akademískri
uppbyggingu.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.nethaskolinn.is.
Fólkið í Net-university verkefninu
• Prófessor Frank Rennie frá Lews Castle Colleg - UFli
• Svante Hultman frá Jönköbing University
• Siv Sjöström frá Jönköbing University
• Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, frá RHA Háskólanum á Akureyri
• Sigrún Sif Jóelsdóttir, frá RHA
Eftirfarandi starfsmenn ÞNA hafa komið að verkefninu:
• Stefanía G. Kristinsdóttir, verkefnastjóri
• Sigrún Víglundsdóttir
• Emil Björnsson, náms- og starfsráðgjafi
160